Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2019, Side 2
Hvernig jólatónleikar verða þetta?
Við ætlum að hafa þetta lágstemmda jólatónleika með
ljúfum jólalögum sem allir þekkja. Ég syng mikið um jól-
in, til dæmis með kór Lindakirkju, en þetta eru fyrstu
jólatónleikarnir sem ég stend fyrir sjálf. Við Lísa hugs-
uðum að það væri gott fyrir fólk að koma og kúpla sig út
úr jólastressinu, lygna aftur augunum og njóta þess að
hlusta á okkur syngja hugljúf jólalög við dásamlegan undir-
leik. Við erum óhrædd við samkeppni því það er til fólk sem
vill ekki endilega kóra, dansara, heila hljómsveit og tuttugu
búningaskipti. Svo er ég líka dálítið fyndin á milli laga.
Nú ert þú blaðamaður á Vikunni og söngkona í
hjáverkum. Fer þetta vel saman?
Já, hvort tveggja er mjög skapandi.
Hvað er skemmtilegast við að syngja fyrir fram-
an fullan sal?
Þetta er svo mikil tjáning og tónlist er svo heilandi, hvort sem það
er að flytja hana eða hlusta á hana. Það er líka svo gott að finna hvað
söngurinn gefur fólkinu úti í sal mikið. Það er eitthvað stórkostlegt
sem gerist þegar maður fer á svið að syngja.
Áttu þér uppáhaldsjólalag?
Mér finnst Driving home for Christmas með Chris Rea alltaf æð-
islegt. Kannski plata ég Hlyn til að syngja það.
Ertu komin í jólaskap?
Já, það er ekki annað hægt með þrjú börn á heimilinu.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
GUÐRÚN ÓLA JÓNSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Kúpla sig út úr
jólastressinu
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.12. 2019
Ríkissjónvarpið hlóð óvænt í svaðalegustu typpasýningu íslenskrarsjónvarpssögu á mánudaginn. Í boði bandaríska ljósmyndarans sál-uga Roberts Mapplethorpes. Hann var sem kunnugt er ástríðufullur
áhugamaður um typpi og myndaði þau í bak og fyrir, frá öllum mögulegum
og ómögulegum sjónarhornum, og sængaði svo gjarnan hjá eigendunum á
eftir, ef marka má heimildarmyndina sem um ræðir. Þarna gat að líta af-
slöppuð typpi, typpi í viðbragðsstöðu og allt þar á milli. Eitt typpi fékk sér-
staka athygli enda fullyrti viðmælandi í myndinni að Mapplethorpe hefði orð-
ið ástfanginn af því. Og eigandinn
fengið að fljóta með.
Eflaust hafa einhverjir áhorf-
endur velt fyrir sér hvort Mapple-
thorpe hafi í reynd verið listamaður
eða dónakall enda sjaldgæft að
myndefni af því tagi sem viðrað var
á köflum sé uppi á yfirborðinu. En
Mapplethorpe lifði á frjóum tímum í
sögu listsköpunar og merkilegt var
að kynnast viðhorfi hans til ljós-
myndunar sem hann lærði aldrei
með formlegum hætti og leit heldur
niður á, ef marka má heimildar-
myndina. Hann virðist hafa litið á sig sem listamann sem tók myndir frekar
en ljósmyndara. En hvað sem því líður þá er sýning þessarar heimildar-
myndar stórkostleg tíðindi fyrir typpið sem fyrirbrigði enda hefur það gegn-
um tíðina verið hálfgert olnbogabarn mannslíkamans þegar kemur að sjón-
varpi og gjarnan álíka vandlega falið fyrir umheiminum og umsækjendur um
stöðu útvarpsstjóra. Nú virðist þess tími loksins vera kominn.
Engin typpi voru í Landanum á sömu stöð daginn áður. Alltént ekki sýni-
leg. En þar voru á hinn bóginn bjúgu. Og hellingur af þeim. Útvarpsmað-
urinn knái Guðni Már Henningsson var kominn heim frá Tenerife til að gæða
sér á krásunum ásamt félögum sínum í einhverjum bjúgnaklúbbi. Hélt fyrst
að vertinn, sem bar ábyrgð á veislunni, væri gítarleikarinn í glysbandinu
goðsagnakennda Slade, en svo var ekki. Það voru vonbrigði.
Talandi um bjúgu þá rifjast upp sagan af félögunum sem tóku tal saman
um árið. Annar hafði verið á ferðalagi erlendis og kvaðst hafa lent í basli þeg-
ar panta þurfti mat á veitingastað. Enginn skildi ensku á staðnum og okkar
maður botnaði hvorki upp né niður í matseðlinum. Hann langaði í nautasteik
og brá á þá leið að baula til að gera sig skiljanlegan. Og fékk steikina. Þá
mælti félaginn: „Það var eins gott að þú baðst ekki um bjúgu!“
Typpið kemur
sterkt inn
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Hann var sem kunnugt er ástríðu-fullur áhugamaður umtyppi og myndaði þau í
bak og fyrir.
Fjóla Guðrún Viðarsdóttir
Ég er með mjög stuttan lista og
vantar lítið. Kannski gallabuxur og
eyrnalokka.
SPURNING
DAGSINS
Hvað vilt
þú fá í
jólagjöf?
Helgi Ármannsson
Góð föt. Mig vantar skó.
Steinunn Anna Óskarsdóttir
Góða heilsu og að hafa börnin mín
hjá mér.
Sigurbjörn Guðmundsson
Góða hugsun og fína kveðju. Ég á
allt og þarf engan pakka.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Árni Sæberg
Söngkonurnar Gógó og Lísa, eða Guðrún Óla Jónsdóttir og Elísabet
Ólafsdóttir, syngja gömlu góðu jólalögin við meðleik píanóleikarans
Hlyns Þórs Agnarssonar. Tónleikarnir verða í Lindakirkju þriðjudaginn
17. desember klukkan 20. Miðar fást við innganginn og kosta 2.500 en
frítt er fyrir börn yngri en 12 ára.
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma