Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2019, Side 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2019, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.12. 2019 B réfritari hefur verið heimakær síðasta áratuginn og stoppað stutt utan lands nema helst þegar gos í Eyjafjallajökli framlengdi óumbeðið dvöl hans í nokkra daga. Þá dugði ekki að derra sig og segja út vil ek eins og meiri menn hefðu gert. Nútímamaðurinn hraðaði sér niður í móttöku hótelsins og bað um framlengingu á við- veru þar. Afgreiðslumaðurinn sagði að hver kytra væri pöntuð. Bréfritari sagðist viss um að þeir gestir myndu ekki láta sjá sig og það væri beggja hagur að hann fengi að halda herberginu í óákveðinn tíma. Af- greiðslumaðurinn starði á gestinn eins og naut á ný- virki og kallaði til yfirmann sinn. Sá spurði hvernig gestsómyndin gæti fullyrt annað eins og þetta. Hef- urðu heyrt Eyjafjallajökul nefndan? Já, svaraði mót- tökustjórinn, en mér er lífsins ómögulegt að bera nafnið fram. „Ég er í hópi næstu nágranna Eyja- fjallajökuls úr Hvolhreppnum gamla og þekki hann persónulega. Ég legg eindregið til að ég fái að halda herberginu. Fari hins vegar svo að hinir bókuðu mæti þrátt fyrir Eyjafjallajökul þá mátt þú henda mér út á brókinni og sokkaleistunum með hálftíma fyrirvara.“ Móttökustjórinn horfði á gestinn og taldi augljóst að hann væri ekki með öllum mjalla. En eftir um- hugsun skynjaði hann þó að hann gæti ekki tapað á þessu tilboði. Nokkrum dögum síðar var hótelið orðið hálftómt og yðar einlægur orðinn velmetinn kúnni á ný. Leituðu til hans hótelstarfsmenn úr öllum stétt- um og báðu hann um að segja „Eyjafjallajökull við Hvolsvöll“ og reyndu svo sjálfir að hafa það eftir og hlógu sig hása. Fyrir hálfri öld hafði bréfritari drýgt auman eyðslueyri með uppistandi og eftirhermum en hafði aldrei dottið niður á svona ódýran og endingargóðan efnisbút eins og þennan. Spenna dregur að fíkla En þetta bréf er einmitt sent frá Bretlandi, en þang- að brá sá heimakæri sér, þegar honum héldu engin bönd. Þótti það liggja í loftinu að í þessum kosningum gæti allt gerst, og því freistandi að vera nærri þegar atkvæðunum yrði loks hvolft úr kössum, enda hratt- vaxandi pólitískur titringur síðustu vikurnar. Kæmist Corbyn að kötlunum í annarri tilraun sinni? Honum gekk betur síðast en spáð var. Yrði brexit endanlega úr sögunni? Er Boris bóla sem endist ekki til jóla? Og þannig rak hver spurningin aðra. Undantekningar- lítið má bóka að staðan skýrist jafnt og þétt eftir því sem dögum kosningaaðventunnar fjölgar, svo að kjördagurinn hefur að mestu breyst í formsatriði þegar hann rennur loks upp. Kannanir verða þá allar áþekkar, ef ekki næstum eins. Þetta er meginreglan, en hún átti ekki endilega við um þessar kosningar. Kannanir sveifluðust fram á síðustu mínútu og skekkjumörk þeirra virtust aldrei ná að þrengjast sem neinu nam. Stundum var Boris Johnson og flokki hans spáð myndarlegum meirihluta á þingi, en óðara var komin önnur könnun með allt annað upplit. Og sífellt fleiri í hópi spekinga töldu loks orðið líklegast að staðan yrði svipuð og var áður en Boris knúði fram kosningar einmitt í þeim tilgangi að breyta henni. Allt bjástrið hefði því orðið til einskis. Hið ógæfusama „hung parliament“ síðustu mánaða þar sem forsætisráðherrann gat sig hvergi hrært yrði endurborið á kvöldi kjördags. Það ástand höfðu þingmenn, með atbeina þing- forsetans, notað sér til að leggja sífellt nýja steina í garð útgöngunnar. Búrókratarnir í Brussel þurftu ekki að fá það á til- finninguna að breska ríkisstjórnin hefði ekki aðeins sérlega veika samningsstöðu, heldur væri sú staða í raun verri en engin. Velvildarmenn búrókratanna í röðum þingmanna voru hættir að leyna því að þeir væru í beinu sambandi og hvettu samningamenn ESB til dáða gegn stjórninni í Lundúnum. Þótt þorri flokksbræðra í Íhaldsflokknum liti á elítuhópinn úr hans ranni sem svikahrappa, þá hreyktu hrapparnir sér sjálfir af afrekum sínum enda væri „fimmta herdeildin“ að tryggja þjóðarheill og knúin til þess af hreinræktaðri ættjarðarást. Allt leyfilegt Forsætisráðherrarnir Tony Blair og John Major, gömlu andstæðingarnir, komu fram saman opin- berlega til að mæla með „taktískum kosningum“ til að tryggja að ESB-sinnar, úr hvaða flokki sem væri, kæmust að! Yrði að velja fórnarlömb taktísku trikk- anna vel til að tryggja hámarksárangur. Síðustu daga fyrir kosningar var bent á að Boris Johnson væri ekki öruggur um kjör í sínu eigin kjör- dæmi, Uxbridge. Meirihlutinn að baki honum þar væri aðeins 5.034 atkvæði og væri það minnsti meiri- hluti sem sitjandi forsætisráðherra hefði treyst á síð- an árið 1924! Tækist að koma í veg fyrir kosningu Borisar yrði honum nánast sjálfkrafa ýtt úr leiðtoga- sæti og kastað úr Downingstræti 10, hvað sem út- komu flokks hans liði. Þá var bent á að Ian Duncan Smith, fyrrverandi leiðtogi Íhaldsflokksins og ákafur „útgöngumaður“, væri í framboði í kjördæmi þar sem mikill meirihluti kaus gegn útgöngu. Hefðu andstæðingarnir samráð um að styðja þann andstæðing hans sem væri líkleg- astur til að geta fellt Duncan Smith væri nærri öruggt að það tækist. Voru furðumiklar undirtektir við allar þessar heldur ógeðfelldu ráðagerðir, sem kallaðar voru „hræðslubandalag“ á miðri síðustu öld á Íslandi. Samantekin ráð af þessu tagi virtust fá nokkurn byr. Örfáum dögum fyrir kjördag viðruðu þekktir stjórnmálaskýrendur og talsmenn flokka þá skoðun að ekki mætti útiloka að hagsmunabandalag flokka í lykilkjördæmum gæti dugað til þess að Jeremy Cor- byn kynni að takast að smokra sér inn í Tíuna, húsið sem allt snýst um, og það þótt ljóst væri að Verka- mannaflokkurinn myndi örugglega fá mun færri þingmenn en Íhaldsflokkurinn. En með stuðningi annarra flokka, svo sem Skoska þjóðarflokksins og þess Frjálslynda, gæti hann þó hugsanlega náð að mynda ríkisstjórn, og í versta falli minnihlutastjórn. Eldgos á Englandi En aðeins örfáum mínútum eftir að kjörstöðum var lokað að kvöldi fimmtudagsins 12. desember var birt útgönguspá sem þrjár stærstu sjónvarpsstöðvarnar höfðu látið vinna í sameiningu. Yfirskrift hennar var: Íhaldsflokkurinn sigrar. Flestum var brugðið, sum- um feginsamlega. En hvað þýddi yfirskriftin? Hvað var átt við með sigri? Í þessu tilviki var átt við stóran sigur. Og á móti honum kæmi hið óhjákvæmilega af- hroð. Boris Johnson var að vinna svo myndarlegan sigur, að horfa varð aftur til daga Margrétar Thatcher og sigurs hennar 1987 til að finna eitthvað sambærilegt. Boris yrði með 80 sæta þingmeirihluta gengi út- gönguspáin eftir. Corbyn mætti búast við að tapa allt að 60 þingsætum! Það þyrfti að fara aftur til ársins 1935 til að sjá annað eins upplit á Verkamannaflokkn- um. Boris yrði með rúmlega 360 en Corbyn með tæp- lega 200. Hver maður sem tjáði sig lagði áherslu á að Lágt borisið á Corbyn ’En þetta bréf er einmitt sent frá Bretlandi, en þangað brá sá heima-kæri sér, þegar honum héldu engin bönd.Þótti það liggja í loftinu að í þessum kosn- ingum gæti allt gerst, og því freistandi að vera nærri þegar atkvæðunum yrði loks hvolft úr kössum, enda hrattvaxandi póli- tískur titringur síðustu vikurnar. Reykjavíkurbréf13.12.19 Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, snýr aftur í Downing-stræti 10 á föstudag eftir fund með Elísabetu II. drottningu í Buckingham-höll í kjölfar stórsigurs síns í þingkosningunum á fimmtudag.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.