Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2019, Blaðsíða 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.12. 2019
Ég sá skemmtilega mynd á Facebook ívikunni. Þar var framkvæmdastjóriFélags atvinnurekenda hinn kátasti
við blómavasa sem skartaði fallegum túl-
ípönum. Gleði hans var þó blandin trega
þegar hann fór yfir það hve háa tolla túl-
ípanar bera, jafnvel þótt þeir séu vart eða
ekki fáanlegir á Íslandi.
Þetta eru svokallaðir verndartollar, til að
vernda innlenda framleiðslu gegn þeirri inn-
fluttu. Þeim hefur vissulega fækkað en eru
þó enn til og virka stundum frekar ósann-
gjarnir. Sérstaklega þegar klárlega liggur
fyrir að innlend framleiðsla annar ekki eft-
irspurn og er jafnvel lítil sem engin.
Mér fannst áhugavert að sjá, í umræðum
með þessari mynd, að fram komu hug-
myndir um að banna hreinlega innflutning á
túlípönum. Þeir væru náttúrlega óþarfi utan
náttúrulegs uppskerutíma og eina sem þeir
gerðu væri að auka flugumferð og þar með
mengun í heiminum.
Fólkið sem nefndi þetta er almennt vel
þenkjandi, skemmtilegt og klárt. Og stund-
um hljóma svona sjónarmið allt að því skyn-
samlega. Af hverju erum við að flytja inn
hluti sem eru í raun óþarfi? Af hverju bönn-
um við ekki hluti sem við þurfum ekki og
veita mögulega bara skammvinna gleði? Er
það kannski ekki bara skynsamlegt?
Eftir allar þessar spurningar komum við
þó alltaf að þessari grundvallarspurningu:
Hver á að segja til um það hvað við þurfum
og hvað er óþarfi? Hver á að greina á milli
munaðar og nauðsynja? Og hvar eigum við
að byrja?
Ræktun túlípana skilur mögulega eftir sig
kolefnisfótspor. En í ljósi þess að í þeim
felst ræktun þá myndi maður ætla að það
væri töluvert minna en margt annað. Væru
ekki aðrir hlutir sem við getum framleitt
sjálf sem við ættum að banna?
Hvað með til dæmis bjór? Af hverju flytj-
um við inn bjór þegar við höfum hér Gull,
Víking, Kalda og marga fleiri? Á Íslandi
eru, samkvæmt Wikipedíu, rekin rúmlega
20 brugghús sem framleiða rúmlega 60 teg-
undir af bjór. Að vísu að miklu leyti úr inn-
fluttum hráefnum, en alltént nota þau ís-
lenskt vatn til framleiðslunnar. Væri
nokkuð því til fyrirstöðu að banna bara inn-
flutning á bjór sem kolefnissporar út um
allt?
Dæmin eru náttúrlega miklu fleiri. Hvað
höfum við að gera með svo margt af því
sem við höfum sannfært okkur um að sé allt
að því nauðsynjar? Þurfa alltaf að vera til
bláber og avókadó? Breskur cheddar-ostur
og spænsk skinka? Rauðvín og búbblur? Er
ekki bara í lagi að banna eitthvað af þessu?
Það væri afturhvarf til tíma sem eru
vægast sagt ekki
spennandi. Þegar
stjórnvöld töldu
sig geta ráðið því
hvað borgararnir
fengju og ákveðið
hvað væri best
fyrir okkur. Þeg-
ar það þótti eðli-
legur hluti dag-
legs lífs að standa í biðröð til að fá leyfi til
að flytja inn spýtur til húsbygginga. Mögu-
lega fulldramatískt dæmi en svona var
þetta í eina tíð.
Ég er ekki þeirrar skoðunar að mark-
aðurinn sé alltaf svarið en í þessu dæmi
held ég hann eigi að fá að ráða. Ef okkur
finnst túlípanar í desember óþarfir og okk-
ur hugnast ekki að blóm séu flutt langan
veg með flugi þá einfaldlega sleppum við
því að kaupa þau. Þar með er ekki lengur
grundvöllur fyrir slíkum innflutningi og
málið er úr sögunni, því menn flytja inn
blóm í von um hagnað en ekki af hugsjón.
Það hlýtur að vera betri kostur að leyfa
frelsinu að ráða frekar en stjórnlyndum
þingmönnum eða andlitslausum embætt-
ismönnum sem telja sig vita hvað okkur er
fyrir bestu. Við getum alveg fundið út úr
því sjálf.
’Þurfa alltaf að vera tilbláber og avókadó?Breskur cheddar-ostur ogspænsk skinka? Rauðvín og
búbblur? Er ekki bara í lagi
að banna eitthvað af þessu?
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Óþarfa frelsi
Árstalan þín er þrír,
lífstalan átta. Elsku
Ellý mín, ég las þessa
setningu einhvers
staðar: Þú verður að
þora meiru, þá verður ævisagan
betri. Þetta á alls ekki við um þig.
Þú ert lífstalan átta og ert stöð-
ugt á ferð og flugi; ef ekki í höfð-
inu á þér, þá bara á venjulegri
ferð. Þú grípur hugmyndirnar og
tækifærin og
hrindir þeim í
framkvæmd. Þeg-
ar þú varst lítil
stelpa varstu svo-
lítil strákastelpa,
þú átt betra með
að vinna með körl-
um og hugsar jafn-
vel töluvert líkar þeim.
Það hafa verið settar allnokkrar,
æðiháar hindranir fyrir framan þig
í lífinu en þú finnur alltaf réttu
leiðina yfir þær. Ef þú værir bók
værirðu leiðarvísir.
Síðustu misseri hafa boðið þér
upp á endurkomu á svo mörgum
vígstöðvum og líka hefur þú ákveð-
ið að stækka fyrirtækið Ellý með
ýmsum nýjungum sem senda
strauma inn í hjarta fólks og láta
því líða betur.
Ef þú hefðir ekki, Ellý mín, farið
í gegnum þessar torfærur hefðir
þú ekki framkallast sem þessi
skemmtilega, hugrakka manneskja
sem lætur ekkert stoppa sig.
Þú ert á magnaðri tölu sem gef-
ur þér svo góða aðlögunarhæfni,
alveg sama hvað þú ætlar að fram-
kvæma, búa til eða vinna við.
Ástin er rauðglóandi í kringum
þig og þið vinnið vel saman.
Vorið gefur þér ný spil á hönd
og þú þarft að vera sniðug. Þú ert
að fara í tólf mánaða tímabil og
þér á eftir að líða á því tímabili
eins og þú sért að byggja kastala
en hafir bara einn hamar og
nokkra nagla.
Stundum mun
þér finnast eins og
þetta sé ekki hægt
en þú átt nákvæm-
lega eftir að geta
byggt þennan kast-
ala með einum
hamri. Þetta verður
svakaleg vinna sem mótar tólf
mánuði og 2021 gefur þér nýtt hús,
hvort sem þú býrð í því eður ei. Þú
ert að fara inn í mest spennandi
tímabil lífs þíns. Það verður alls
ekki auðvelt en af auðveldu verður
ekkert. Það gerist eitthvað öðru-
vísi og merkilegt sem tengir þig
við útlönd, jafnvel Ameríku. Þetta
verður algjörlega óvænt og stór-
kostlega spennandi.
Það er í kringum þig einhvers
konar kúgun og þú þarft að brjóta
hana á bak aftur. Það gerirðu með
því einu að taka ákvörðun um að
gera það. Þá fyllistu ofurmætt-
inum sem í þér býr.
Stjörnumerki Ellýjar er nautið.
Morgunblaðið/Golli
ELLÝ ÁRMANNS
ATHAFNAKONA
13.5. 1970
Þú finnur alltaf
réttu leiðina
’ Þú ert að farainn í mest spenn-andi tímabil lífs þíns.Það verður alls ekki
auðvelt en af auð-
veldu verður ekkert.
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.