Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2019, Síða 4
Þessi unga stúlka var í barnahjónabandi.
„Þetta er hræðilegur veruleiki“
Í lok síðasta árs fór fimm mannahópur frá UN Women á Íslanditil Malaví til að kynna sér að-
stæður og safna efni um stúlkur sem
hnepptar eru barnungar í hjónabönd.
Kvikmyndatökumaðurinn og ljós-
myndarinn Allan Sigurðsson var í
hópnum, ásamt Unnsteini Manuel
Stefánssyni, Þóru Karítas Árnadótt-
ur, Stellu Samúelsdóttur, fram-
kvæmdastýru og Mörtu Goðadóttur,
herferða- og kynningarstýru.
„Við vorum að safna heimildaefni
um þvinguð barnahjónabönd í Malaví
til þess að geta notað í herferðir gegn
þeim. Við hittum stelpur sem höfðu
verið þvingaðar í barnahjónabönd og
einnig stelpur sem höfðu losnað úr
þeim. Við hittum líka höfðingja og
mæðrahópa sem hjálpa stelpum að
losna. Mitt hlutverk var að taka upp
myndbönd og svo tók ég líka ljós-
myndir,“ segir Allan.
„Það er mikil fátækt í Malaví og
þarna búa um nítján milljónir í litlu
landi. Fólkið býr í leirkofum með
stráþökum. Það var ótrúleg upplifun
að koma þangað.“
Ótrúlega brotnar stúlkur
Allan segir það hafa verið vandasamt
verk að mynda konur og stúlkur sem
lent hafa í skelfilegum atburðum.
Hann vill ekki notfæra sér neyð ann-
arra til að ná góðri mynd en á sama
tíma getur góð ljósmynd eða mynd-
band hjálpað til við að leysa vandann.
„Landið er fallegt og fólkið líka en
maður þarf að fara varlega að fólkinu.
Það er samt ákveðin hvatning að gera
allt vel þar sem því betur sem ég vinn
vinnuna mína því betur komast skila-
boðin til skila,“ segir hann en myndir
hans og myndbönd voru m.a. sýnd
þegar haldin var landssöfnun í nóv-
ember og ein ljósmynda hans prýðir
nú jólastjörnuna.
„Ég myndaði eina stúlku sem var
föst í barnahjónabandi. Hún kom
bara heim úr skólanum einn daginn
og var þvinguð sautján ára í hjóna-
band. Hún er nú eldri og á eitt barn
og langaði ekki í annað. Þetta er
hræðilegur veruleiki hjá þessum
stúlkum og ungu konum,“ segir hann.
„Annarri stúlku sem við hittum var
bjargað úr hjónabandi og býr nú hjá
foreldrum sínum og fer í skóla,“ segir
Allan.
„Á síðustu tæplega þremur árum
er búið að rifta 3.500 barna-
hjónaböndum. Það sem UN Women
er að gera er að reyna að fræða fólkið
þarna; foreldra, höfðingja og stjórn-
völd,“ segir hann.
„Maður fann það svo innilega á
þeim stúlkum sem enn voru í hjóna-
bandi hvað þeim leið ömurlega. Þegar
þær eru þvingaðar í hjónaband er í
raun verið að nauðga þeim aftur og
aftur. Þær eru ótrúlega brotnar þess-
ar stúlkur.“
Í Malaví hafa margar ung-
ar stúlkur verið þving-
aðar í hjónaband. UN
Women hefur unnið
markvisst að því að leysa
ungar konur og stúlkur
úr þeirri ánauð og hefur
tekist að rifta 3.500
barnahjónaböndum á
tæpum þremur árum.
Ljósmyndir/Allan Sigurðsson
Allan Sigurðsson fór
með UN Women til
Malaví í fyrra og mynd-
aði ungar stúlkur sem
höfðu verið þvingaðar í
hjónaband. UN Women
selur nú jólastjörnu og
mun ágóðinn nýtast í
menntun stúlkna sem
hafa verið leystar úr
þvinguðum barna-
hjónaböndum.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Allan að störfum í Malaví. Hann segir vandasamt að mynda fólk í neyð.
Undanfarin ár hefur UN
Women á Íslandi boðið fólki
að kaupa táknræna jólagjöf
sem styður við verkefni UN
Women á heimsvísu. Í ár var
ákveðið að halda áfram að
styðja við verkefni UN
Women í Malaví sem hefur
það að leiðarljósi að uppræta
þvinguð barnahjónabönd.
UN Women hefur lengi
unnið að verkefnum í Malaví
og var m.a. lykilstofnun við
að þrýsta á lagabreytingar
sem hækkuðu lögræðisaldur í
18 ár árið 2017. UN Women
vinnur náið með stjórnvöld-
um, höfðingjum og mæðra-
hópum í Malaví og fræðir al-
menning um skaðsemi
þvingaðra barnahjónabanda.
Þörfin er mikil en þar í landi
hefur önnur hver kona verið
gift fyrir 18 ára aldur og ein af
hverjum átta stúlkum verið
gift fyrir fimmtán ára aldur.
UN Women á Íslandi réðst
í gerð fræðslu- og söfnunar-
þáttarins Stúlka – ekki brúð-
ur í lok síðasta árs. Starfs-
konur UN Women á Íslandi,
Allan Sigurðsson og Þóra
Karítas Árnadóttir ferðuðust
til Malaví í þeim tilgangi að
taka viðtöl við stúlkur sem
höfðu verið þvingaðar í
hjónaband á barnsaldri. Sum-
ar höfðu verið leystar úr
hjónabandi fyrir tilstilli UN
Women og fengið tækifæri til
að hefja nám að nýju. Af-
rakstur heimsóknarinnar var
sýndur í beinni útsendingu á
RÚV 1. nóvember síðastlið-
inn.
Jólastjarnan kostar 3.500
krónur og dugar sú upphæð
stúlku sem leyst hefur verið
úr þvinguðu barnahjónabandi
fyrir námsgögnum og skóla-
búningi í eitt skólaár.
Hægt er að kaupa jóla-
stjörnuna í vefverslun UN
Women á unwomen.is eða á
skrifstofunni.
Jólastjarna
UN Women
HEIMURINN
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.12. 2019
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar