Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2019, Blaðsíða 17
þetta væri útgönguspá og þær hefðu iðulega ekki
enst vel talningarnóttina.
En eftir því sem á nóttina leið hrúguðust dæmin
inn. Íhaldsflokkurinn vann Blyth Valley frá Verka-
mannaflokknum og hafði aldrei áður í sögu sinni unn-
ið það kjördæmi! Hann vann einnig af honum þing-
sæti í Worthing. Það sæti vann Íhaldsflokkurinn
seinast fyrir 97 árum. Wrexham hafði verið rautt frá
árinu 1935 og Leigh vann Íhaldsflokkurinn seinast
árið 1922. Það má segja að stutt hafi verið síðan
Íhaldsflokkurinn vann óformlegan vinabæ Reykja-
víkur, Grimsby. Því það gerðist síðast 1945.
Boris flokksleiðtogi reyndist ekki í neinni hættu í
sínu kjördæmi. Hann vann þar engan stórsigur en
jók þó meirihluta sinn um 25%. Ian Duncan Smith,
sem lagt hafði verið svo mikið kapp á að fella, hélt
velli, en þó mjög naumlega, en kannski varð sigurinn
sætari fyrir það.
Jo Swinson, leiðtogi Frjálslynda flokksins, hafði að-
eins gegnt þeirri stöðu í hálft ár. Hún fékk töluverðan
byr eftir kjör sitt en lék heldur illa af sér í framhald-
inu. Hún lagði til grundvallar að 48% þjóðarinnar
hefðu sagt nei við útgöngu og ekki varð betur séð en
að hún gæfi sér það að þær 15 milljónir manna sem
þar voru á bak við væru allt manneskjur sem vildu
allt til vinna að úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar
yrðu hunsuð fyrst þær sjálfar hefðu tapað. Swinson
lofaði að ógilda þjóðaratkvæðið frá 2016 með lögum.
Ekki mannþekkjari þessi leiðtogi eða hélt kannski
þessa kjósendur sig.
Þess utan hafði sá meðvindur sem hún fékk í byrj-
un stigið henni til höfuðs, svo að hún fór að tala ítrek-
að um sjálfa sig sem eitt af forsætisráðherraefn-
unum! Hún var í framboði í Skotlandi og fékk
prýðilegt fylgi í sínu kjördæmi, en tapaði fyrir fram-
bjóðanda SNP með sárafáum atkvæðum. Þar með
tapaði hún bæði þingsætinu og leiðtogarullunni.
Endalok Corbyns
Útreið Verkamannaflokksins varð mikil og strax um
nóttina mátti marka af orðum frambjóðenda flokks-
ins að leiðtoganum yrði ekki sætt lengur. Þegar Cor-
byn kom í sitt kjördæmi um nóttina, þar sem hann
fékk góða persónulega útkomu eins og vænta mátti,
flutti hann hefðbundið þakkarávarp sigurvegara og
bætti í lok þess við yfirlýsingu um að hann myndi
ekki leiða Verkamannaflokkinn í næstu þingkosn-
ingum. Corbyn sagði að í framhaldi af þessum nið-
urstöðum yrðu að fara fram hreinskilnislegar um-
ræður í flokknum um ástæður þess að svona fór og
hann ætlaði sér að halda utan um þær og eftir atvik-
um leiða þær breytingar sem yrðu ákveðnar.
Ekki er þó endilega víst að Corbyn komist upp með
að ráða þessu verklagi, enda er hann þegar með réttu
eða röngu orðinn persónugervingur hrakfaranna.
Viðbrögð
Þegar baráttan um brexit stóð sem hæst komu nær
allir handhafar sannleikans í efnahagsmálum og við-
skiptum og sögðu að gengið myndi hrynja yrði brexit
samþykkt og yrði lengi að ná sér, hlutabréf myndu
fara sömu leið. Eins myndu fjárfestingar dragast
saman ef almenningur dirfðist að segja sig frá ESB-
gumsinu. Þar fóru „háskólasamfélagið“, atvinnurek-
endur og hinar ýmsu deildir þeirra og hugveitur af
öllum stærðum og gerðum. Englandsbanki, seðla-
banki Breta, lét ekki sitt eftir liggja. Óþarfi er að
nefna hvaða taum BBC dró eins hraustlega og það
þorði. Þetta eru allt áhrifamiklir aðilar sem mjög
margir hljóta að taka verulegt mark á, nema hvað?
En þó ákváðu 52% landsmanna að taka áhættuna og
fara. Menn geta því rétt ímyndað sér hversu mikill
munurinn hefði orðið ef þessir aðilar hefðu hagað sér
með eðlilegri hætti.
Lítið hefur verið rætt af hálfu framantalinna um
það hvers vegna ekkert hafi verið að marka allan hinn
mikla hræðsluáróður þeirra, sem ætíð var hafður í
umbúðum fagmennsku og óhlutdrægni. Ætla mætti
að fagmenn vildu gera skoðun á því hvers vegna þeir
sjálfir voru svona yfirgengilega ófaglegir og ómark-
tækir í málum sem þeir þóttust þó þekkja betur en
aðrir menn.
Mælistikurnar enn
Það var því fróðlegt að skoða þekktar mælistikur og
hvernig þær brugðust við stórsigri mannsins sem
sem fór fram undir kjörorðinu: Ljúkum Brexit af.
Þegar útkomuspáin um sigur hans birtist styrktist
pundið á augabragði og m.a. gagnvart evrunni. Og
sömu sögu var að segja um kvarðann sem sýnir verð
helstu hlutabréfa á hverjum tíma og væntingar um
það.
Jú, svara sumir. Ástæða þess var að úrslitin þýddu
að Corbyn er úr sögunni og um leið óttinn um að
hann svindlaði sér inn í númer 10. Hann var kominn
með sinn ágæta flokk svo óralangt til vinstri að það
stóðst enga skynsamlega skoðun. Þetta hafi enginn
undirstrikað jafn rækilega og Blair hinn sigursæli,
einn af fyrirrennurum hans. Í framhaldinu benda
menn eins og ósjálfrátt í vestur á bandaríska demó-
krata sem hafa flotið sofandi út á ystu jaðra vinstri
kantsins. Það muni, segja þeir, auðvelda Trump sig-
urinn vestra næsta haust.
Kannski hafa þeir rétt fyrir sér.
Kannski.
AFP
15.12. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17