Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2019, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.12. 2019
LÍFSSTÍLL
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
Elskaðu. Lifðu. Njóttu.
Ég get sagt með góðri samvisku að Femarelle VIRKAR.
Hitakófin hættu, vakna ekki lengur á nóttinni og fótapirringur
er minni eftir að ég fór að taka inn Femarelle.
Halldóra Ósk Sveinsdóttir
40+
FEMARELLE REJUVENATE
• Minnkar skapsveiflur
• Stuðlar að reglulegum svefni
• Eykur orku
• Eykur teygjanleika húðar
• Viðheldur eðlilegu hári
50+
FEMARELLE RECHARGE
• Slær hratt á einkenni
(hitakóf og nætursviti minnka)
• Stuðlar að reglulegum svefni
• Eykur orku
• Eykur kynhvöt
• Hefur engin áhrif á vef
í brjóstum eða legi
60+
FEMARELLE UNSTOPPABLE
• Inniheldur kalsíum og D3-vítamín
• Eykur liðleika
• Stuðlar að reglulegum svefni
• Eykur orku sem stuðlar að
andlegu jafnvægi
þá að setjast niður og skrifa en fyrst
og fremst ákvað ég hver yrðu mín
gildi; fyrir hvað ég stæði og hvar ég
væri staddur. Hver minn tilgangur
væri. Það varð alveg kristaltært að
það er mikilvægara að vera góð
manneskja en góður í handbolta,“
segir hann.
„Fyrsta skrefið var að viðurkenna
vanlíðan mína og þá var hægt að fara
að vinna úr henni. Þetta var farið að
skemma fyrir mér sem handbolta-
manni en utan vallar líka. Ég var
kominn í neikvæðan spíral og þegar
fíflunum fjölgar í kringum þig er best
að líta í eigin barm,“ segir Björgvin.
„Þetta er bataferli sem ég er að
fara í gegnum sem hættir aldrei. Þótt
ég sé nú á betri stað en nokkurn tím-
ann áður þá má alltaf bæta sig.“
Skilaboðunum rignir inn
Bókin kom út í október og vakti strax
mikla athygli. Hún fór efst á lista yfir
mest seldu ævisögur landsins og hef-
ur haldist þar síðan.
„Það sem gleður mig mest er að
vita að boðskapurinn kemst til skila.
Ég hef fengið ótrúlega mikið af skila-
boðum og hafa þau gefið mér gríð-
arlega orku í að vinna áfram með
þetta allt saman. Ég held að minn til-
gangur sé að vera fyrirmynd og
hjálpa öðrum að líða vel,“ segir
Björgvin og segir að skilaboðin séu
um þrjú hundruð; frá foreldrum, ung-
mennum og börnum.
„Ég bjóst í raun aldrei við þessum
viðbrögðum. Ég hef alltaf verið um-
kringdur handboltaáhugafólki en
þarna kom allt annar vinkill inn í líf
mitt og samskipti. Ég hef fengið ótrú-
lega innihaldsrík og djúp skilaboð og
þá áttaði ég mig á þörfinni fyrir svona
bók og að opna á umræðuna. Að tala
um hlutina. Það er mikilvægt að gera
börnum grein fyrir að lífið er ekki
fullkomið; það er ekki eins og það lít-
ur út á Instagram.“
Björgvin segist hafa áttað sig á því
að mörgum börnum og ungmennum
líður afskaplega illa. „Það er erfitt að
taka á vandamálum hjá þessum börn-
um, hvort sem þau eru heilsufarsleg
eða tengd námi, ef andlega líðanin er
ekki góð. Krakkana okkar vantar
miklu fleiri verkfæri til að fást við líf-
ið,“ segir Björgvin og segir greinilegt
að mörg ungmenni þjáist af miklum
kvíða.
„Við foreldrar þurfum að átta okk-
ur á því að vandamálin eru ekki bara í
skólunum, heldur byrja þau heima. Í
mínu tilviki vantaði mömmu bara
tíma; hún hafði ekki tíma til að sinna
mér. Við þurfum að gefa okkur meiri
tíma, þótt það sé hægara sagt en
gert. Börnin þurfa fyrst og fremst ást
og umhyggju og að verja meiri tíma
með foreldrum, í góðri samveru,“
segir Björgvin.
„Það er mitt markmið í lífinu að
vera eins góður pabbi og ég get og ég
get það aðeins ef ég er í góðu standi,“
segir hann og viðurkennir að kvíðinn
hafi töluvert tengst börnunum.
„Við þurftum að hafa mikið fyrir
börnunum; það tók níu glasa-
meðferðir. Þegar börnin komu í
heiminn var ég ekki bara staðráðinn í
að verða besti markvörðurinn heldur
besti pabbi í heimi, en sú hugsun of-
gerði mér. Nú finnst mér nóg að ég
verði betri pabbi með tímanum.“
Vertu svolítið filterslaus
Eftir ellefu ár í atvinnumennsku er-
lendis ætlar Björgvin að koma alkom-
inn heim næsta sumar. Hann segist
vonandi eiga tíu góð ár eftir í bolt-
anum en einnig hyggst hann taka til
hendinni við að hjálpa fólki í vanda.
„Ég ætla ekki bara að vera gaurinn
sem tjáir sig á netinu heldur langar
mig að stuðla að breytingum og gera
eitthvað.“
Björgvin segist hafa svarað öllum
skilaboðum sem hann hefur fengið.
„Ég er að finna minn flöt á því hvern-
ig ég svara fólki. Þarna eru foreldrar
sem eiga börn með alls konar grein-
ingar og þessi börn líta upp til mín.
Þá sendi ég þeim jafnvel myndband
þar sem ég peppa krakkana upp ef
mér finnst það eiga við. Í einhverjum
tilvikum eru þetta krakkar sem líður
illa og loka sig inni í herbergi. Ég
reyni að beina börnunum og for-
eldrum í réttar áttir en ég passa mig
gríðarlega að fara ekki út fyrir mitt
svið því ég er hvorki sálfræðingur né
geðlæknir. Ég get verið sá sem hlust-
ar. Fólk sér oft sjálft sig í mér,“ segir
hann og nefnir að sumir hafi sent sér
skilaboð og sagt að þeir séu að breyta
lífi sínu eftir lestur bókarinnar.
„Fólk sem les bókina mína tengir
við mjög margt og hún opnar
ákveðnar víddir. Draumurinn er að
ég sé kannski að stoppa einhverja af
svo þeir þurfi ekki að lenda á botn-
inum. Ég hefði þurft á því að halda að
grípa fyrr inn í mín mál, áður en ég
lenti á botninum í Köln,“ segir hann
og nefnir að bókin hafi í raun verið
upphafið að heilunarferli hjá sér.
Björgvin segir tilgang bókarinnar
vera að sýna fólki að það þurfi ekki að
þykjast.
„Fólk á að vera filterslaust. Þá er
ég ekki að meina að þú megir ekki
pósta fallegri mynd af þér á sam-
félagsmiðlum. En vertu svolítið filt-
erslaus og segðu fólki hvernig þér líð-
ur. Ef þú ert fimmtán ára og mamma
þín spyr hvernig þér líður; ekki fela
það. Við þurfum að vera aðeins hrein-
skilnari og opnari hvert við annað,“
segir Björgvin.
„Ef krakkar geta speglað sig í mér
og ef ég get hjálpað, þótt ekki væri
nema einum eða tveimur, þá er ég
kominn í plús.“
Aldrei jafn góður
Eftir mikið uppgjörsár segir Björg-
vin að sér líði mun betur, bæði lík-
amlega og andlega.
„Mér líður frábærlega í dag. Ég er
kominn með vopnabúr í hendurnar
sem ég get notað. Ég fæ alveg enn
kvíðaeinkenni en ég kann betur að
stoppa þau af. Ég veit núna að þetta
er kvíði,“ segir hann og bendir á að
sér hafi farið mikið fram sem hand-
boltamanni eftir að hann fór að vinna
í sínum málum.
„Á síðasta ári var ég með slökustu
markvörðum deildarinnar í Dan-
mörku en í dag er ég þriðji besti, mið-
að við hlutfallslega markvörslu. Það
er samspil á milli þess að líða vel and-
lega og vera góður í handboltanum og
ég held ég hafi aldrei verið eins góður
og núna. Og ég hef heldur aldrei verið
jafn góður liðsmaður og nú. Ég hef
meiri orku og er sannari. Ég er orð-
inn ég innan vallar sem utan. Ég þarf
ekki að setja upp grímu lengur,“ seg-
ir hann og tekur dæmi.
„Þegar ég var tvítugur sagði mað-
ur: „Það skiptir ekki máli hver ver
boltann ef við vinnum leikinn.“ En ég
meinti það ekki. Í dag meina ég það,“
segir hann.
„Eitt af því sem ég hef verið að
vinna í er að skilgreina hvað er egó og
að „drepa“ egóið mitt. Egó skemmir
fyrir manni allan daginn; maður ætl-
ar sér að verða bestur, sama á hverj-
um maður traðkar á leiðinni. Ég er að
snúa því algjörlega við; ef ég verð
bestur þá verð ég það en ég ætla að
fylgja mínum gildum,“ segir hann.
Björgvin hlakkar mikið til að koma
heim með fjölskylduna og vera ná-
lægt sínu fólki. Að sjálfsögðu vonast
hann eftir að fá að spila með landslið-
inu á ný.
„Það er komin svo mikil gleði í
handboltann minn aftur og draum-
urinn er að spila fyrir landsliðið. Það
er ekkert sem gleður mann meira en
að spila fyrir Ísland á stórmótum og
geta glatt fólkið heima.“
Björgvin ætlar sér meira en að
spila handbolta í framtíðinni.
„Ég hélt að bókin væri einhvers
konar endapunktur fyrir mig en hef
áttað mig á því að hún er upphafs-
punktur; hún er upphafið að ein-
hverju miklu, miklu stærra. Mig
langar að fara inn í skóla og fyrirtæki
og tala um hvernig ég náði að tæma
bakpokann og náði tökum á kvíð-
anum. Nú er ég að læra NLP-
markþjálfun sem er magnað fyrir-
bæri. Ég tel mig hafa mikið fram að
færa og mig langar jafnvel að skrifa
barnabók. Mitt draumastarf í fram-
tíðinni mun felast í að hjálpa öðrum.“
Að vera góður faðir og góð mann-
eskja finnst Björgvini mikilvægara
en að vera góður í handbolta. Hér
er hann ásamt konu sinni Karen
Einarsdóttur og börnunum, Emmu
sex ára og tveggja ára gömlum tví-
burunum Einari Leó og Emilíu.
’Egó skemmir fyrirmanni allan daginn;maður ætlar sér að verðabestur, sama á hverjum
maður traðkar á leiðinni.
Ég er að snúa því
algjörlega við.