Fréttablaðið - 28.12.2002, Page 2
2 28. desember 2002 LAUGARDAGUR
Guðjón A. Kristjánsson sendi tíu þúsund jólakort til
íbúa Norðvesturkjördæmis. Hann borgaði undir
þau sjálfur.
Ég hef ekki talið þau. Þau eru eitthvað á
annað hundraðið. Mér finnst nú ekkert á
mig hallað þó ég fái færri en ég sendi.
Þetta var hugsað sem vinarkveðja til íbúa í
Norðvesturkjördæmi.
SPURNING DAGSINS
Hvað fékkstu mörg jólakort?
Kristján Pálsson:
Áhugi á
framboði
ekki minni
STJÓRNMÁL „Áhugi minn á framboði
hefur ekki minnkað undanfarna
daga, Ég hef notað jólin til að tala
við fólk og finn
mikinn meðbyr,“
segir Kristján
Pálsson alþingis-
maður, sem um
jólin hefur hugað
að sérframboði.
Kristján, sem sit-
ur á Alþingi fyrir
Sjálfstæðisflokk-
inn á Reykjanesi,
var á dögunum
settur út af lista í
nýju Suðurkjör-
dæmi. Hann hefur
undanfarnar vikur ráðgast við
stuðningsmenn sína um framhaldið
en margir hallast að því að hann eigi
að fara í sérframboð. Sjálfur segist
hann ætla að taka sína ákvörðun að
vandlega íhuguðu máli.
„Endanleg ákvörðun mun liggja
fyrir eftir áramót. Ég er fyrst og
fremst að skoða möguleika á DD
framboði,“ segir Kristján.
Aðspurður um það hvað verði til
ráða ef Sjálfstæðisflokkurinn heim-
ili honum ekki að fara í sérframboð
undir merkjum flokksins, segir
Kristján að þá verði hann að hugsa
málið út frá þeirri stöðu. ■
LÍKAMSÁRÁS Á ÍSAFIRÐI Kona um
tvítugt réðst á aðra konu á svipuð-
um aldri fyrir utan skemmtistað á
Ísafirði í fyrrinótt. Lögreglan fékk
tilkynningu um málið um klukkan
fjögur en engin kæra hefur verið
lögð fram. Fórnarlambið, sem hlaut
einhverja áverka en þó ekki alvar-
lega og slapp við beinbrot, var að
íhuga að kæra málið en í gær hafði
lögreglan ekki heyrt frekar af mál-
inu. Lögreglan segir að fyrir utan
þetta atvik hafi jólahátíðin verið
róleg á Ísafirði.
KRISTJÁN
PÁLSSON
Niðurstöðu um
framboð að vænta
eftir áramót.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Vestmannaeyjar:
Vantaði jóla-
pakka
SAMGÖNGUR Á einhverjum heimil-
um í Vestmannaeyjum vantaði
jólapakka undir jólatréð. Skýring-
in var sú að ekki tókst að flytja
alla jólapakkana frá landi og til
Eyja í tæka tíð. Á aðfangadags-
morgun var flogið með talsvart af
pökkum en um hádegisbilið var
orðið ófært. Í Eyjafréttum kemur
fram að fyrirhugað hafi verið að
vél lenti í Eyjum með vörur og
pakka, en það tókst ekki vegna
veðurs. ■
Forstjóri Ísfélagsins í Vestmannaeyjum:
Deila milli tveggja sjómannafélaga
ATVINNUMÁL „Sjómannafélagið Jöt-
unn hefur gert kröfu til þess að fá
félagsgjöld af mannskapnum. Út-
gerðin hefur enga afstöðu til þess
máls og við höfum ekki skikkað
mannskapinn til að flytja til Vest-
mannaeyja,“ segir Ægir Páll Frið-
bertsson, forstjóri Vinnslustöðv-
arinnar í Vestmannaeyjum, sem
gerir út frystitogarann Snorra
Sturluson VE. Skipið var nýlega
selt frá Granda í Reykjavík til Ís-
félagsins í Eyjum. Með í kaupun-
um fylgdi áhöfn skipsins en obb-
inn af mannskapnum er í Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur eða all-
ir nema yfirmenn skipsins. Sjó-
mannafélagið Jötunn í Vest-
mannaeyjum hefur nú gert þá
kröfu að áhöfn Snorra greiði sín
félagsgjöld til sín. Elías Björns-
son formaður sagði við Frétta-
blaðið að ekki væri óeðlilegt að
áhöfn Snorra greiði félagsgjöld
sín í Eyjum og yrði gert að flytja
lögheimili sín þangað. Samið hafi
verið um ákveðinn aðlögunartíma
við kaupin á skipinu en síðan ætti
að ráða Vestmannaeyinga í störf-
in. Birgir Björgvinsson, gjaldkeri
Sjómannafélags Reykjavíkur, er á
allt öðru máli og segir að samn-
ingar við áhöfnina kveði skýlaust
á um að mennirnir megi búa í
Reykjavík og greiða félagsgjöld
sín þar sem þeir vilji. Hann líkti
kröfum á hendur sjómannanna á
Snorra við hreppaflutninga.
Ægir Páll segir að við kaupin á
skipinu hafi útgerðin yfirtekið
ráðningasamninga mannskapsins.
„Við höfum ekki sagt neinum
upp og því standa þeir samningar.
Þessi deila er okkur því óviðkom-
andi,“ segir hann.
Ægir Páll segir deiluna um bú-
setu eða félagsgjöld vera fyrir-
tækinu algjörlega óviðkomandi og
hann bíði þess eins að fá botn í
málið.
„Þetta er deila á milli tveggja
sjómannafélaga og ég bíð þess að
þeir nái niðurstöðu um það hvert
greiða skuli félagsgjöldin,“ segir
Ægir Páll. ■
GRANDI HF.
Frystitogarinn Snorri Sturluson var seldur
frá Reykjavík til Vestmannaeyja með manni
og mús. Nú er deilt um það hvert áhöfnin
skuli greiða gjöld sín.
Verða af 90
milljónum
Í Vestmannaeyjum eru 90 aðkomumenn á flotanum á meðan 20 Eyja-
menn eru atvinnulausir. Bæjarstjóri vill að þeir færi lögheimili sín.
ATVINNUMÁL „Það kom okkur á
óvart þegar við tókum það saman
í nóvember að um 90 manns á
skipum og bátum hér í Vest-
mannaeyjum eru með lögheimili
sín annars staðar. Þetta þýðir að
bæjarfélagið er að
missa af miklum
skatttekjum. Það
skiptir miklu máli
að við náum að
lækka þessa tölu,“
segir Ingi Sigurðs-
son, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum,
um þann fjölda aðkomumanna
sem sækir atvinnu sína á skip
Eyjamanna. Á sama tíma og 90
sjómenn greiða gjöld sín annað
eru 20 Eyjamenn á atvinnuleysis-
skrá. Sjómannafélagið Jötunn í
Eyjum hefur skorið upp herör
gegn þessu ástandi og félagið
krefst þess að áhöfn frystitogar-
ans Snorra Sturlusonar, sem er að
langmestu leyti aðkomumenn,
greiði sín gjöld til Jötuns í stað
Sjómannafélags Reykjavíkur.
Ingi bæjarstjóri segir að ætla
megi að Vestmannaeyjabær missi
af skatttekjum sem nemi 90 millj-
ónum króna vegna aðkomumann-
anna. Langstærstur hluti þess sé
vegna sjómanna af Snorra Sturlu-
syni þar sem ætla megi að háseta-
hluturinn sé milli sjö og átta millj-
ónir króna á ári.
Ingi segir að ekki sé gerlegt að
neyða mennina til að flytja til
Eyja en það séu einnig til önnur
ráð.
„Það er erfitt að stilla mönn-
um upp við vegg og skipa þeim að
flytja. Þetta snýst um að breyta
hugarfari sjómannanna og for-
svarsmanna útgerðanna. Best
væri að þeir flyttu hingað en ef
þeir geta það ekki þá er mögulegt
að þeir skrái lögheimili sitt hér,“
segir Ingi.
Sem dæmi um það hve miklar
upphæðir er um að ræða þá má
benda á að heildarskatttekjur
Vestmannaeyjabæjar eru rétt
innan við milljarð króna. Skatt-
tekjur af aðkomusjómönnum eru
því hátt í tíu prósent af heildar-
skatttekjum bæjarins.
Ingi bæjarstjóri segir að mark-
miðið sé að ná hluta af þessum
sjómönnum inn á íbúaskrá smám
saman en það verði að gerast í
samráði við útgerðir og skip-
stjóra.
„Við getum ekki skikkað þá að-
komusjómenn sem hér hafa starf-
að árum saman til að flytja. Þetta
verður að gerast þannig að frá því
sé gengið við ráðningu að þeir
skrái sig hér,“ segir hann.
rt@frettabladid.is.
ÚTGERÐ Í VESTMANNAEYJUM
Bæjarstjórnin vill höfða til aðkomusjómanna og fyrirtækja til að fá menn til að færa
lögheimili sín til Vestmannaeyja.
„Þetta snýst
um að breyta
hugarfari sjó-
mannanna og
forsvarsmanna
útgerðanna.“
Sprengjuárás í Tsjetsjeníu:
Tugir manns fórust
MOSKVA, AP Rúmlega þrjátíu manns
fórust og sextíu slösuðust í gær þeg-
ar tveimur bifreiðum með sprengi-
efni var ekið á stjórnsýslubyggingu
í Grosní, höfuðborg Tsjetsjeníu.
Árásin var gerð skömmu eftir
hádegi. Húsið var fullt af fólki, bæði
starfsfólki, embættismönnum og
öðrum sem áttu erindi í stjórnar-
skrifstofurnar.
Hvorki Akhmad Kadírov, æðsti
fulltrúi rússneskra stjórnvalda í
Tsjetsjeníu, né Mikhaíl Babitsj, að-
stoðarmaður hans, voru á staðnum.
Þetta var mannskæðasta árás
tsjetsjenskra uppreisnarmanna frá
gíslatökunni í Moskvu í október,
þegar rúmlega 40 Tsjetsjenar tóku
um 800 leikhúsgesti í gíslingu.
Uppreisnarmennirnir berjast
fyrir sjálfstæði Tsjetsjeníu, en rúss-
nesk stjórnvöld líta á þá sem ótínda
hryðjuverkamenn. Rússar hafa
undafarið fullyrt að eðlilegt ástand
sé að komast á í Tsjetsjeníu, hernað-
araðgerðum þar ljúki brátt. Upp-
reisnarmennirnir hafa hins vegar
linnulítið gert smærri árásir á rúss-
neska hermenn og Tsjetsjena, sem
talið er að vinni með Rússum. Þess á
milli eru svo gerðar stærri árásir á
rússneska herbíla, lögreglustöðvar
og aðrar byggingar Rússa í
Tsjetsjeníu. ■
UPPNÁM Í GROSNÍ
Eitt fórnarlamba árásarinnar í Grosní sést
þarna borið út úr stjórnsýslubyggingunni.
AP
/R
TR
, A
PT
N
Stakk konu með hnífi:
Úrskurðað-
ur í gæslu-
varðhald
OFBELDI Karlmaður hefur verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til
mánudags grunaður um að stinga
konu með hnífi í bringu í heimahúsi
í Fellahverfi í Breiðholti að kvöldi
aðfangadags. Konan var flutt á
slysadeild en hefur verið útskrifuð
af sjúkrahúsinu. Konan og maður-
inn voru bæði ölvuð. Rannsókn
stendur yfir.
Þá stakk kona í Breiðholtinu
sambýlismann sinn með hnífi í
handlegg og fótlegg. Bæði voru þau
ölvuð. Málið telst upplýst. ■
Ríkisskattstjóri:
Kvótinn ekki
gjaldamegin
SJÁVARÚTVEGSMÁL „Við fyrstu sýn
slær þetta mig þannig að kvóta sem
leigður er til notkunar á næsta ári
megi ekki færa sem útgjöld á þessu
ári,“ segir Indriði H. Þorláksson rík-
isskattstjóri.
Í Fréttablaðinu í gær sagði Jón
Arason útgerðarmaður að hann
hefði rökstuddan grun um að út-
gerðir væru að leika þann leik að
leigja til sín aflaheimildir í árslok og
færa sem útgjöld. Síðan leigðu þær
frá sér sömu heimildir árið eftir til
að ná niður sköttum. Ríkisskatt-
stjóri segir að fara eigi með kvóta-
leigu eins og vörubirgðir. Ekki megi
færa slíkt sem útgjöld fyrr en á það
ár sem heimildir væru nýttar. ■
LÖGREGLUFRÉTTIR
LÍKFUNDUR VIÐ GRANDAGARÐ
Sjómenn sem voru að leggja upp
að skemmtibáti við Grandagarð í
gær, ráku augun í mann þar sem
hann lá berfættur á grúfu inni í
farþegarými. Þó ekki hafi sést
vel inn í farþegarýmið, þótti
þeim ljóst að maðurinn væri
látinn og gerðu lögreglu viðvart.
Dánarorsök mannsins er ekki
kunn en ljóst að hann lést fyrir
nokkrum dögum.