Fréttablaðið - 28.12.2002, Page 6
6 28. desember 2002 LAUGARDAGUR
VIÐSKIPTI
VEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 30
1.
2.
3.
Í Kína hafa menn gert dúkku
eftir einni af þekktustu söguper-
sónum Astrid Lindgren. Hvaða
sögupersóna er þetta?
Tímaritið Times hefur valið þrjár
konur sem menn ársins. Hvað
eiga konurnar sameiginlegt?
Bjarki Gunnlaugsson knatt-
spyrnumaður er að öllum lík-
indum að skipta um lið. Hvaða
lið kemur til greina?
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 81.99 -0.91%
Sterlingspund 131.28 -1.13%
Dönsk króna 11.45 -0.35%
Evra 85 -0.35%
Gengisvístala krónu 125,03 -0,52%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 1.076
Velta 12.443 m
ICEX-15 1.334 0,31%
Mestu viðskipti
Kaupþing banki hf. 1.238.841.422
Eimskipafélag Íslands hf. 143.686.205
Össur hf. 87.238.696
Mesta hækkun
Tangi hf. 24,00%
Líftæknisjóðurinn MP BIO hf. 11,11%
Nýherji hf. 6,58%
Mesta lækkun
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. -2,26%
Sölumiðstöð Hraðfrystih. hf. -2,06%
Síldarvinnslan hf. -1,96%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8358,1 -0,9%
Nasdaq*: 1358,3 -0,7%
FTSE: 3829,4 -2,9%
DAX: 3320,9 0,5%
Nikkei: 8714,1 0,2%
S&P*: 880,5 -1,0%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
EINKAVÆÐING Enn er stefnt að því
að ljúka sölu Landsbankans fyrir
áramót. Samkvæmt heimildum
hafa ekki verið formlegir fundir
milli Samsonar og einkavæðing-
arnefndar frá því fyrir jól. Aðilar
hafa ræðst við og kastað á milli
sín hugmyndum sem lúta að verð-
lagningu bankans. KPMG endur-
skoðun mat verðmæti ákveðinna
eigna bankans minna en bankinn
sjálfur.
Einkavæðingarnefnd mun
samkvæmt heimildum vera treg
til að lækka verð bankans. Aðrar
leiðir eru hugsanlegar til þess að
ljúka samningum. Mögulegt er að
undanskilja eignir og lán bankans
sem deilt er um matið á. Seljand-
inn myndi þá leysa þær eignir til
sín eða gangast í ábyrgð fyrir
þær. Önnur leið gæti verið sú að
færa gjaldaga og breyta greiðslu-
fyrirkomulagi við söluna. Hugs-
anlegt er einnig að blanda af
þessu tvennu verði niðurstaðan.
Samson er búinn að skila Fjár-
málaeftirliti öllum gögnum sem
óskað var eftir varðandi mat á
hvort þeir teljist hæfir kjölfestu-
fjárfestar í banka. Lokahnykkur-
inn á samningaferlinu snýst því
um tæknilega útfærslu á verði
bankans. ■
Sala Landsbankans:
Leitað að tækni-
legri útfærslu
FUNDAÐ Í LOKALOTU
Fulltrúar Samsonar og einkavæðingarnefndar hittust fyrir jól. Ekki hafa verið formlegir
fundir, en menn hafa ræðst við til að undirbúa lokahnykkinn.
Himinhátt raforku-
verð í Noregi:
Gamla
fólkið situr
í kuldanum
NOREGUR Gamalt fólk í Noregi sit-
ur frekar í nístingskulda heima
hjá sér en að greiða himinháa
orkureikninga. Ástandið er orðið
það slæmt að starfsfólk heimilis-
aðstoðar neitar að sinna störfum
sínum heima hjá gamla fólkinu.
Í norsku vinnulöggjöfinni eru
ákvæði um að vinnuaðstæður
teljist ekki boðlegar ef hitinn er
undir tíu gráðum. Starfsfólk
heimilisaðstoðarinnar í Noregi
hefur hvað eftir annað komið inn
á heimili aldraðs fólk, þar sem
hitinn nær ekki þessu lágmarki.
Þar með ber því engin skylda til
þess að sinna störfum sínum.
Frá þessu er meðal annars
sagt í norska dagblaðinu Aften-
posten.
Margt gamalt fólk í Noregi
sleppir því að kynda í flestum
herbergjum heima hjá sér, en
lætur sér kannski nægja að hita
upp í einu herbergi eða tveimur.
Raforkuverð hefur hækkað
mjög í Noregi undanfarið vegna
þess að neysla er í hámarki nú í
vetrarkuldunum. Verðið fer eft-
ir því hve neyslan er mikil. Til
þess að hamla á móti álagstopp-
um er verðið hækkað, en lækkað
á móti þegar neyslan er í lág-
marki. ■
RANNSÓKNIR „Hjá vélstjórum og
vélfræðingum virðist lungna-
krabbamein tíðara en hjá öðrum ís-
lenskum körlum. Enn fremur sjald-
gæft krabbamein í
brjósthimnu, sem
tengist hvað mest
asbestmengun. Þá
virðist hættan mest
áberandi hjá eldri
hluta vélstjórahóps-
ins,“ segir Vilhjálm-
ur Rafnsson, pró-
fessor í heilbrigðis-
fræði.
Vilhjálmur hefur kannað ný-
gengi krabbameina hjá vélstjórum
og vélfræðingum og kynnir frum-
niðurstöður sínar á aðalfundi Vél-
stjórafélags Íslands í dag. Könnun-
in byggir á vélstjóratali. Hún nær
til rúmlega 6.600 manns sem lokið
hafa vélstjóraprófi af einhverju
tagi og var hópurinn borinn saman
við krabbameinsskrá.
„Maður fer náttúrulega af stað
af því að maður veit að vélstjórar
búa við ákveðnar vinnuaðstæður.
Þeir vinna í lokuðu rými sem þýðir
að ef eitthvað sleppur út í and-
rúmsloftið geta þeir orðið fyrir
þeirri mengun. Þeir umgangast
líka alls kyns efni, smurolíur og
fleira sem notað er til að reka vél-
ina og þar er hætta líka,“ segir Vil-
hjálmur og bætir við að enn sé tölu-
vert um asbest í vélarrúmum ís-
lenskra skipa, bæði eldri skipum
og eins nýrri skipum sem smíðuð
eru í löndum sem hafa rýmri regl-
ur en við.
„Samhliða þessari könnun send-
um við út spurningalista til allra
vélstjóra, spurðum um vinnuað-
stöðu og reykingavenjur. Það er
ekki hægt að skýra tíðara krabba-
mein hjá vélstjórum með því að
þeir reyki meira en aðrir karlar.
Það er frekar öfugt, að þeir reyki
minna. Skýringanna hlýtur að vera
að leita í vinnuaðstöðu, þar koma
fyrir krabbameinsvaldar sem
þekktir eru úr öðrum rannsóknum.
Það er hins vegar í faraldsfræði
aldrei hægt að koma með sönnun,“
segir Vilhjálmur Rafnsson.
Hann kynnir niðurstöður rann-
sóknar sinnar frekar á aðalfundi
Vélastjórafélagsins í dag en ítarleg
kynning verður birt í erlendu vís-
indatímariti á næstunni, eins og al-
siða er með rannsóknir af þessum
toga.
the@frettabladid.is
Hættara
við krabba-
meini
VÉLSTJÓRAR Í MEIRI HÆTTU
Vinnuaðstaða vélastjóra skýrir ef til vill tíðara krabbamein í öndunarfærum hjá vélstjórum
en öðrum íslenskum karlmönnum.
„Það er ekki
hægt að skýra
tíðara krabba-
mein hjá vél-
stjórum með
því að þeir
reyki meira en
aðrir karlar.“
Vélstjórum hættara við krabbameini í
lungum og brjósthimnu en öðrum. Reykingar
síst algengari meðal vélstjóra. Skýringanna því
væntanlega að leita í vinnuaðstöðu.
Óttast um sprengju:
Reyndist
vera rusl
LÖGREGLUMÁL Starfsmenn skyndi-
bitastaðarins McDonald’s í Faxa-
feni í Reykjavík kölluðu á aðstoð
lögreglu í hádeginu í gær og til-
kynntu um grunsamlegan poka
fyrir utan staðinn. Var óttast að
sprengja gæti verið í pokanum.
Við rannsókn reyndist innihald
pokans meinlaust með öllu, það
var rusl.
Að sögn lögreglu er útkallið
trúlega afleiðing hryðjuverka-
árásarinnar 11. september 2001.
Sprengjuhótanir hafa verið gerð-
ar á skyndibitakeðjuna McDon-
ald’s víða um heim frá þeim ör-
lagaríka degi. ■
SEOUL, AP Stjórnvöld í Norður-
Kóreu virðast sannfærð um að
Bandaríkin hyggist ráðast á land-
ið og steypa kommúnistastjórn-
inni af stóli. Stjórn Norður-Kóreu
ætlar að hefja á ný rekstur kjarn-
orkustöðvar, þar sem hægt verður
að búa til nokkrar kjarnorku-
sprengjur.
Í gær lýsti Norður-Kórea því
yfir að vopnaeftirlitsmenn Sam-
einuðu þjóðanna verði reknir úr
landi. Vopnaeftirlitið hefur fylgst
með kjarnorkuverum í landinu,
sem hafa ekki verið starfrækt frá
því 1994.
Fréttastofa stjórnarinnar í
Norður-Kóreu sakar Bandaríkin
um að nota kjarnorkumálin sem
fyrirslátt til þess að gera innrás í
landið. Fyrst vilji þau að Norður-
Kórea afvopnist, síðan ætli þau að
„gera óvænta árás til þess að koll-
varpa stjórnkerfi landsins.“
Meðal annars var vitnað til
orða Donalds Rumsfelds, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna,
sem sagði nýverið að Bandaríkin
hefðu nægan hernaðarmátt til
þess að heyja samtímis stríð gegn
Írak og Norður-Kóreu. ■
Norður-Kórea vísar vopnaeftirliti úr landi:
Býr sig undir árás
frá Bandaríkjunum
JÁRNBRAUTARLAGNING
HELDUR ÁFRAM
Þrátt fyrir aukna spennu milli Norður- og
Suður-Kóreu undanfarið er haldið áfram
að leggja járnbraut milli landanna. Tveir
norður-kóreskir hermenn gæta byggingar-
svæðisins.
AP
/M
YN
D
SAMRUNI SAMÞYKKTUR Sam-
runi Hlutabréfasjóðs Íslands við
Kaldbak fjárfestingafélag hf.
var samþykktur samhljóða, á
hluthafafundi sjóðsins. Hluthaf-
ar Hlutabréfasjóðs Íslands hf. fá
að nafnverði 0,475 krónur í
Kaldbaki fjárfestingarfélagi fyr-
ir hverja krónu nafnverðs í
Hlutabréfasjóði Íslands hf.