Fréttablaðið - 28.12.2002, Page 10
28. desember 2002 LAUGARDAGUR
Opið til sex í kvöld
ekkert
brudl-
Opnum klukkan tíu
Opið á morgun, sunnudag
frá í Smáratorgi,
Spönginni, , Kringlu,
Mosó, Borgarnesi, Selfossi,
Egilsstöðum og á Akureyri
12.00 til 18.00
Holtagörðum
Sænskar, úrbeinaðar og beinlausar
kjúklingabringur kr.kg1199
49kr.
500 ml
99kr.
2 lítrar
2FYRIR EINN
Íþróttamenn ársins í Bandaríkjunum:
Williams og Armstrong best
AFREKSFÓLK Tenniskonan Serena
Williams og hjólreiðagarpurinn
Lance Armstrong hafa verið valin
íþróttamenn ársins í Bandaríkjun-
um af AP-fréttastofunni.
Williams vann 56 af 61 tennis-
leikjum sínum á árinu. Hún sigraði
á þremur af fjórum stærstu mót-
um ársins: Wimbledon-mótinu,
Opna bandaríska meistaramótinu
og því opna franska. Hún gat hins
vegar ekki tekið þátt í Opna ástr-
alska mótinu vegna meiðsla og
missti þar með af möguleikanum
að ná alslemmunni.
Armstrong vann Tour de
France-hjólreiðakeppnina fjórða
árið í röð. Hann sigraðist á krabba-
meini fyrir nokkrum árum síðan
og mætti gífurlega sterkur til leiks
eftir veikindin. Vinni Armstrong
keppnina á næsta ári myndi hann
jafna metið sem Spánverjinn
Miguel Indurain setti þegar hann
vann Tour de France fimm ár í röð
á árunum 1991-95.
Kylfingurinn Tiger Woods, sem
var valinn íþróttamaður ársins
1999 og 2000, lenti í þriðja sæti í
valinu annað árið í röð. ■
WILLIAMS
Serena Williams fagnar sigri á Lindsay Da-
venport í undanúrslitum Opna bandaríska
meistaramótsins í tennis þann 6. septem-
ber. Williams sigraði á þremur mótum á
árinu, þar á meðal því Opna bandaríska. AP
/M
YN
D
HANDBOLTI Íslenska karlalandsliðið
í handknattleik mætir Pressulið-
inu í Austurbergi klukkan 16.15 í
dag. Leikurinn er sá fyrsti sem
landsliðið leikur í undirbúningi
fyrir heimsmeistaramótið í Portú-
gal sem hefst í næsta mánuði.
Guðmundur Þ. Guðmundsson
landsliðsþjálfari hefur valið 26
leikmenn til æfinga fyrir heims-
meistaramótið. Sjö leikmenn
koma frá liðum í Þýskalandi og
tveir frá Spáni. Tíu leikmenn
leika með félagsliðum hér á landi.
Nokkrir nýliðar eru í hópnum.
Roland Eradze, markvörður Vals,
sem fékk fyrir skömmu íslenskan
ríkisborgararétt, verður löglegur
með landsliðinu þegar heims-
meistaramótið hefst. Aðrir nýlið-
ar eru Logi Geirsson úr FH,
Bjarni Fritzson, ÍR, Alexander
Arnarson, HK og Jónatan Magn-
ússon, KA.
Tveir leikmenn Pressuliðsins
leika með erlendum félagsliðum,
Elvar Guðmundsson með
Ajax/Farum í Danmörku og Heim-
ir Árnason með Haslum HK í Nor-
egi. Aðrir leikmenn leika með lið-
um hér á landi. Geir Sveinsson
stýrir Pressuliðinu. ■
Mark Bosnich notaði kókaín:
Ákærður af enska
sambandinu
FÓTBOLTI Mark Bosnich, mark-
vörður Chelsea, hefur verið
ákærður af enska knattspyrnu-
sambandinu fyrir að hafa fallið
á lyfjaprófi og að hafa um leið
sett smánarblett á fótboltaí-
þróttina.
Eftir að hafa gengist undir
tvö lyfjapróf hefur sambandið
nú staðfest að hann hafi greinst
með kókaín í blóði sínu. Bosn-
ich, sem er þrítugur, hefur verið
settur í leikbann þar til dæmt
verður í málinu. Hann hefur
frest þar til 10. janúar til að
bregðast við ákærunum.
Svo gæti farið að Bosnich
verði rekinn frá Chelsea á næst-
unni fyrir agabrotið. Orðrómur
hefur verið uppi um að hann
hafi þegar verið settur í kau-
plaust leyfi hjá félaginu.
Bosnich var með lausan
samning þegar hann gekk til liðs
við Chelsea í janúar á síðasta ári
eftir fremur stutta dvöl hjá
Manchester United. Hann lék
áður með Aston Villa við góðan
orðstír.
Fregnir um að Bosnich hefði
fallið á lyfjaprófi bárust fyrst til
fjölmiðla þann 10. nóvember.
Þremur dögum síðar tilkynnti
hann að hann þjáðist af alvar-
legu þunglyndi. ■
LANDSLIÐSHÓPURINN
Markverðir:
Guðmundur Hrafnkelsson Conversano
Roland Eradze Valur
Birkir Ívar Guðmundsson Haukar
Horna- og línumenn:
Guðjón Valur Sigurðsson Essen
Gústaf Bjarnason Minden
Einar Örn Jónsson Wallau
Sigfús Sigurðsson Magdeburg
Róbert Sighvatsson Wetzlar
Róbert Gunnarsson Århus
Logi Geirsson FH
Bjarki Sigurðsson Valur
Alexander Arnarson HK
Bjarni Fritzson ÍR
Útileikmenn:
Gunnar Berg Viktorsson Paris St. Germ.
Rúnar Sigtryggsson Ciudad Real
Heiðmar Felixson Bidasoa
Snorri Steinn Guðjónsson Valur
Aron Kristjánsson Haukar
Sigurður Bjarnason Wetzlar
Patrekur Jóhannesson Essen
Ólafur Stefánsson Magdeburg
Dagur Sigurðsson Wakunaga
Markús Máni M. Maute Valur
Einar Hólmgeirsson ÍR
Jónatan Magnússon KA
LANDSLIÐIÐ
Undirbúningur landsliðsins fyrir heimsmeistaramótið hefst í dag með leik gegn Pressu-
liðinu. Heimsmeistaramótið sjálft hefst í lok næsta mánaðar.
PRESSULIÐIÐ
Markverðir:
Elvar Guðmundsson Ajax/Farum
Hlynur Morthens Grótta/KR
Hreiðar Guðmundsson ÍR
Útileikmenn:
Alexander Peterson Grótta/KR
Arnór Atlason KA
Ásgeir Örn Hallgrímsson Haukar
Baldvin Þorsteinsson KA
Björgvin Þór Rúnarsson FH
Halldór Ingólfsson Haukar
Hannes Jónsson Selfoss
Heimir Árnason Haslum HK
Magnús A. Magnússon Grótta/KR
Ólafur Sigurjónsson ÍR
Sturla Ásgeirsson ÍR
Svavar Vignisson FH
Valdimar F. Þórsson Fram
Valgarð Thoroddsen UMFA
Íslenska karlalandsliðið í handbolta:
Undirbúningur
fyrir HM að hefjast
BOSNICH
Ástralinn Mark Bosnich hefur lítið fengið
að spreyta sig hjá Chelsea síðan hann
gekk til liðs við félagið á síðasta ári.