Fréttablaðið - 28.12.2002, Side 23

Fréttablaðið - 28.12.2002, Side 23
Næsta Slipknot-breiðskífa, semverður sú fjórða í röðinni (ef 8 laga platan „Mate. Feed. Kill. Repeat“ er talin með), verður einnig sú síðasta. Söngvari sveit- arinnar, Corey Taylor, hefur greint frá því að sveitin hafi ákveðið að leggja árar í bát eftir að tónleikaförinni, sem fylgir í kjölfar útgáfunnar, lýkur. Platan verður unnin af upptökustjóran- um Rick Rubin. Taylor hefur ver- ið að einbeita sér að sinni eigin hljómsveit, Stone Sour, og viður- kennir fúslega að mikil spenna ríki milli liðsmanna í Slipknot. Þeir hafi hins vegar ákveðið að renna í eina plötu til viðbótar og enda með heljarinnar hvelli. Gæti verið að söngvarinn sé orðinn leiður á því að bera grímu í hvert skipti sem hann fer á svið? Bono, Bob Geldof og Nicky Wireúr Manic Street Preachers eru meðal þeirra sem vottuðu Joe Strummer virð- ingu sína í fjöl- miðlum um jólin. Bono kallaði The Clash eina merki- legustu rokk- hljómsveit allra tíma og sagði að sveitin hefði samið leiðarvísinn fyrir U2. Utangarðsmaðurinn Mike Pollock minntist hetju sinnar í hjartnæmum tölvupósti sem hann sendi út á Þorláksmessu. Þar nefndi hann The Clash sem stóra áhrifavalda á Utangarðsmenn og minntist þess þegar hann keypti fyrstu Clash-plötuna í London árið 1980. Gítarleikarinn Pete Townshendsegist vera byrjaður að vinna að nýrri Who-plötu. Það verður þá fyrsta platan sem The Who sendir frá sér í rúm 20 ár, eða síðan árið 1982 þegar breiðskífan „It’s Hard“ kom út. Townshend segir það hafa ver- ið á dagskránni lengi að gera aðra plötu og að áramótaheit sitt fyrir næsta ár verði að klára gripinn. Hann segir einnig að aðdáendur sveitarinnar megi búast við því að The Who verði á dagskrá tónleika- hátíða í Evrópu í sumar. Pierce Brosnan segir að honumfinnist að leikarinn Colin Salmon ætti að taka við hlutverki James Bond af sér. Brosnan ætlar að leika í einni mynd til viðbótar og seg- ist hafa fundið sig vel í hlutverkinu. Salmon hefur nú þegar birst í þrem- ur Bond-myndum sem njósnarinn Charles Robinson. Ef verður að ósk Brosnans verður Salmon fyrsti blökkumaðurinn til þess að leika Bond. 23LAUGARDAGUR 28. desember 2002 SÍMI 553 2075 Sýnd kl. 2.20, 3.30 5.45, 7, 9, 10.30 og 12.30 GULLPLÁNETAN kl. 2,4 og 6 ísl. tal Sýnd kl. 4. 8 og 11.30 VIT 482 b.i. 12 ára Sýnd kl. 7, 9 og 11 VIT 499 Sýnd kl. 2, 3 og 5 m/ísl. tali VIT 498 HARRY POTTER m/ísl. tali 2, 5 og 8 VIT468 GHOSTSHIP 11 og 12.50 VIT487 KNOCKAROUND GUYS kl. 2 EN SANG FOR MARTIN kl. 2 JAMES BOND kl. 2, 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 2.30, 4.30, 6.30, 8.30 og 10.30 JAMES BOND 8 og 11

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.