Fréttablaðið - 02.02.2020, Side 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Eitt skærasta nýstirni evr-ópsku klúbbasenunnar, Upsammy frá Hollandi, kemur fram í Hörpu á Vetrarhátíð laugardaginn
8. febrúar. Þá verður haldið rave
undir ljósunum í Hörpu undir heit-
inu Vetrarblót, með fyrsta f lokks
hljóðkerfi, dansgólfi og sérsmíð-
uðum bar. Auk Upsammy kemur
íslenska plötusnúðagengið Plútó
fram.
Spilaði á LungA
Einhverjir Íslendingar kannast
eflaust við Upsammy síðan í LungA
eftirpartíinu síðasta sumar. Þar spil-
aði hún á undan Bjarka. Hún hefur
vakið verulega athygli á heimsvísu
fyrir að blanda fumlaust saman
house tónlist, teknói, drum’n’bass,
electro og öðrum undirgreinum
rafrænnar danstónlistar. Sjálf segir
hún að það sé alltaf hugvíkkandi
undirtónn í því sem hún spili og
þann tón má auðveldlega greina í
hennar eigin tónlist.
Upsammy, sem heitir Thessa
Thorsing í raun og veru, er að leggja
lokahönd á fyrstu plötuna sína í
fullri lengd um þessar mundir, en
þröngskífur hennar undanfarin tvö
ár hafa slegið í gegn meðal plötu-
snúða og áhugafólks um raftónlist.
Hún hefur meðal annars gefið út hjá
Whities, sem er eitt virtasta útgáfu-
félagið í þessum kreðsum, og notið
ríkulegs stuðnings þekktari plötu-
snúða á borð við Objekt og Avalon
Emerson.
Spilar um allan heim
En það er ekki síst óvenjulegur
plötusnúðastíll Upsammy sem
hefur tryggt henni regluleg gigg
á mörgum af f lottustu klúbbum
Evrópu; Panorama Bar í Berlín,
De School í Amsterdam og Robert
Johnson í Frankfurt. Auk þess er
hún er eftirsótt á stórar og virtar
tónlistarhátíðir á borð við Prima-
vera Sound, Dekmantel, Unsound
og Way Out West.
Sjálf kynntist Upsammy dans-
tónlist og rave-senunni þegar hún
var unglingur í Amsterdam. Þá var
hún dregin af vinum sínum í vöru-
skemmur í útjaðri borgarinnar þar
sem hún varð fyrir algjörri upp-
ljómun, að eigin sögn. Í framhald-
inu stóð hún sjálf fyrir reifum hér og
þar í Hollandi áður en hún fór sjálf
að þeyta skífum og semja tónlist.
Dansað í Hörpu
„Hugmyndin er að Harpa verði ein-
hver frumlegasti, mest „trippy“ og
skemmtilegasti næturklúbbur Evr-
ópu í eitt kvöld,“ segir Atli Bolla-
son, einn aðstandenda kvöldsins.
„Við sem fórum á Sónar Reykjavík
vitum að það getur verið ótrúlega
skemmtilegt að dansa og djamma
í svona fallegu húsi eins og Hörpu.
Það er fullkomið að gera það á Vetr-
arhátíð, þegar myrkrið og kuldinn
eru að buga alla. Þá er gott að geta
tekið út rave-skammtinn sinn.“
En verður hægt að djamma fram
á nótt í Hörpu?
„Harpa verður opin til klukkan
tvö og þá heldur partíið áfram á
Gauknum þar sem Plútó mun spila.
Vetrarblót er því átta klukkustunda
partí, allt í allt,“ segir Atli.
Spila á ljósin
Ljósin í húsinu verða að mestu
slökkt en þrír „sjónsnúðar“ úr
NAVA-hópnum svonefnda, einn
íslenskur, einn tékkneskur og einn
pólskur, munu spila á ljósahjúpinn
og keyra þannig upp stemninguna í
tónlistinni fyrir alla á dansgólfinu.
Til hliðar við dansgólfið, undir
stiganum, verður sett upp sér-
stakt svæði til að slaka á og spjalla
saman.
„Þótt við eigum geggjaða plötu-
snúða og það sé fínt framboð af
danstónlist á börum bæjarins þá
hefur vantað stærri viðburði og
erlend nöfn til að halda okkur við
efnið. Ég er allavega sjálfur orðinn
vel þyrstur í gott klúbbakvöld og
hlakka mest til að taka nokkur
spor sjálfur,“ segir Atli.
steingerdur@frettabladid.is
Raftónlistarveisla
á Vetrarblóti í Hörpu
Hollenski plötusnúðurinn Upsammy spilar á Vetrarblóti í Hörpu
næsta laudardag. Hún hefur áður spilað hér á landi á listahá-
tíðinni LungA. Atli Bollason einn aðstandenda hátíðarinnar, segist
spenntur að upplifa alvöru klúbbakvöld.
Hollenski plötusnúðurinn Upsammy heitir réttu nafni Thessa, en hún hefur spilað á landinu áður. MYND/VOYAGE SELECT
HUGMYNDIN ER AÐ
HARPA VERÐI EIN-
HVER FRUMLEGASTI, MEST
„TRIPPY“ OG SKEMMTILEGASTI
NÆTURKLÚBBUR EVRÓPU Í EITT
KVÖLD.
Atli Bollason, einn aðstandenda
Vetrarblóts
3 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Þráðlaus fjarstýring
með 2 minnisstillingum
Aðeins 283.140 kr.
VERÐDÆMI: 2 x 90 x 200 cm stillanlegt C&J Silver rúm
með Nature’s Rest Luxury heilsudýnum: Fullt verð: 337.800 kr.
C&J SILVER stillanlegt rúm
C&J Silver er með sterkum stálbotni og kraftmiklum en hjóðlátum mótor.
20%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
af Rest Luxury dýnu og
15% af C&J Silver
botni
Rúminu fylgir þráðlaus fjarstýring með tvöföldu minni og ljósi.
Margir nota annað minnið fyrir svefn stillingu. Seinna minnið er svo
t.d. notað fyrir lestur eða sjónvarpsáhorf. Botn rúmsins dregst að
vegg þannig að þú ert í eðlilegri fjarlægð frá náttborði og lampa.
Sérstakur takki kemur rúminu í upphaflega stöðu.
PURE COMFORT
teygjulak
Mjúkt og gott teygjulak
fyrir allar dýnustærðir.
Langir bómullarþræðir
tryggja góða endingu. 95%
bómull, 5% lycra. Má þvo á 60°c og setja í þurrkara.
Stærð í cm Fullt verð Útsöluverð
90/100 x 200/220 x 35 3.490 kr. 1.396 kr.
120/140 x 200/220 x 35 3.990 kr 1.596 kr.
180 x 200/220 x 35 5.490 kr. 2.196 kr.
60%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
Janúar
útsala
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 11–18.30
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorg)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði
LOKAVIKAN
Ekki missa af þessu!
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
GRAND
kremlit handklæði og þvottapokar
Fullt verð Útsöluverð
HANDKLÆÐI 40x70 cm 475 285
ÞVOTTAPOKI 30x30 cm 175 70
60%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA