Fréttablaðið - 10.02.2020, Síða 10
1 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
HETJA HELGARINNAR
Alexander Isak
Fæddist 21. ágúst 1999 og er alinn upp í
Stokkhólmi í Svíþjóð, sonur innflytjenda
frá Erítreu. Þegar hann var sex ára var hann
byrjaður að æfa með yngri flokkum AIK,
eins af stærstu klúbbum Skandinavíu, og
tíu árum síðar lék hann fyrsta leik sinn fyrir
uppeldisfélagið. Isak sem varð tvítugur á
síðasta ári er búinn að leika tólf landsleiki
fyrir Svíþjóð.
Isak er búinn að
skora átta mörk í
síðustu sex leikjum með
Real Sociedad í öllum
keppnum.
Salan á Isak til
Dortmund var fyrir
metfé í sænsku deild-
inni. Með því tók Isak
fram úr Zlatan Ibra-
himovic.
LISTSKAUTAR „Fyrsta tilfinningin
sem ég fann eftir á var bara léttir.
Þetta er búið að vera markmiðið
síðustu tvö ár, að komast inn á þetta
mót og það hafðist í þetta skiptið.
Fyrst og fremst var tilfinningin
góð en það var líka smá sjokk þegar
þetta var komið á hreint,“ segir hin
sextán ára gamla Aldís Kara Bergs-
dóttir, aðspurð hvernig tilfinningin
hafi verið þegar hún varð fyrsti ein-
staklingurinn sem tryggði sér þátt-
tökurétt á HM unglinga í skautum
um helgina.
Það gerði Aldís Kara á Norður-
landamótinu sem fór fram í Stav-
anger í Noregi um helgina. Þar varð
Aldís Kara fyrsti Íslendingurinn
til að vinna sér inn tæknistig hjá
Alþjóðaskautasambandinu sem
veitir þátttökurétt á HM unglinga
í skautum sem fer fram í Tallinn,
Eistlandi, í byrjun mars. Til þessa
hefur aðeins íslenskt lið öðlast þátt-
tökurétt á HM þegar íslenska sveitin
komst tvö ár í röð, 2002 og 2003.
Aldís Kara hefur verið að skauta
vel í vetur, bæði á Halloween Cup
og Reykjavíkurleikunum fyrr í
vetur sem fóru fram hér á landi. Í
Noregi fékk Aldís 43,34 stig í fyrri
hlutanum og samanlagt 115,39 stig
á mótinu í Noregi. Það er bæting
upp á 11,87 stig frá Norðurlanda-
móti síðasta árs og bætti Akureyr-
ingurinn á ný stigamet Íslendings
í unglingaf lokki á Norðurlanda-
mótinu. Þessi stig skiluðu Aldísi 8.
sæti á mótinu sem er besti árangur
Íslendings á NM og fimmta sæti í
tæknistigum. Þar þótti Aldís skara
fram úr í frjálsa prógramminu.
„Ég vissi það fyrir mót að þetta
væri síðasta mótið áður en skrán-
ingunni myndi ljúka fyrir HM svo
að þetta var síðasta tækifærið. Fyrir
vikið var allt kapp lagt á þetta mót í
aðdragandanum og núna fer fókus-
inn á HM.“
Aðspurð segir Aldís heilt yfir vera
ánægð með frammistöðu sína í Nor-
egi en segir að það sé hægt að fín-
pússa nokkra hluti.
„Ég held að ég muni bara halda
mig við það sem ég kann, dansinn
sem ég hef verið að vinna með. Geri
hann eins vel og ég get, geri hann
án mínusa. Ég fékk nokkra mínusa
í Noregi þegar ég náði ekki að klára
stökkið mitt í fyrra prógramminu.
Það var pínu stress í gangi þá. Svo
fékk ég mínus þegar lendingin var
ekki nógu góð í seinna prógramm-
inu en annars var allt gott,“ segir
Akureyringurinn enn fremur.
Aldís fær þrjár vikur til undir-
búnings fyrir HM sem fer fram 2-8.
mars næstkomandi í Tallinn. Það
gæti hins vegar sett strik í reikn-
inginn í undirbúningnum hjá Aldísi
að riðill kvennalandsliðs Íslands í
2. deild á HM í íshokkíi fer fram á
Akureyri undir lok mánaðarins.
Aldís segist ekki vera viss hvort
HM í íshokkíi muni truf la hana
þegar hún er spurð út í það.
„Ég er búin að ræða við þjálfarann
minn, hún er búin að skipuleggja
næstu vikur en ég veit ekki hvernig
þetta verður þegar það fer að stytt-
ast í mótið þegar HM er að byrja,“
segir Aldís. – kpt
Aldís Kara braut blað í íslenskri listskautasögu um helgina
Aldís fer fyrir hönd Íslands á HM í
Tallinn. SKAUTASAMBANDIÐ/HAFSTEINN
Ég vissi það fyrir
mót að þetta væri
síðasta mótið áður en
skráningunni myndi ljúka
fyrir HM svo að þetta væri
síðasta tækifærið.
Aldís Kara Bergsteinsdóttir, list-
skautakona
FÓTBOLTI Líkt og liðsfélagi hans hjá
Real Sociedad, Martin Ödergaard,
er Alexander Isak að sýna þessa
dagana af hverju hann var um tíma
einn eftirsóttasti unglingurinn í
Evrópu. Isak skoraði sigurmarkið á
lokamínútum leiksins gegn Athle-
tic Bilbao um helgina eftir að hafa
lagt upp fyrra markið. Það kórón-
aði góða viku hjá Isak sem skoraði
tvö og lagði upp annað gegn Real
Madrid í spænska bikarnum fyrr í
vikunni. Með sigrinum heldur Real
Sociedad í næstu lið og draumur
smáliðsins frá San Sebastián um
sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta
ári lifir góðu lífi.
Svíinn byrjaði óvænt á bekknum
gegn nágrönnunum í Baskaslagn-
um en var skipt inn á völlinn á 55.
mínútu og var f ljótur að láta til sín
taka. Tíu mínútum síðar fann hann
liðsfélaga sinn, Portu, inn á vítateig
Bilbao þegar heimamenn komust
yfir. Rétt fyrir leikslok var Isak sjálf-
ur á ferðinni og skoraði sigurmarkið
eftir að gestirnir höfðu jafnað þegar
hann fylgdi eftir eigin skoti.
Vakti ungur athygli
Isak sem er af erítreskum uppruna
er fæddur og uppalinn í Stokkhólmi
þar sem hann gekk til liðs við AIK
sex ára gamall. Þegar Isak var fimm-
tán ára var hann farinn að banka
á dyrnar hjá aðalliðinu þar sem
Haukur Heiðar Hauksson varð liðs-
félagi hans. Isak fékk eldskírn sína
gegn Tenhult í bikarnum sextán
ára og tók það hann aðeins ellefu
mínútur að brjóta ísinn fyrir AIK.
Isak var tekinn inn í aðalliðshóp
sænska félagsins sextán ára og lék
á fyrsta ári sínu 29 leiki í öllum
keppnum, þar af þrjá í Evrópudeild-
inni. Í þessum 29 leikjum skoraði
ungi framherjinn þrettán mörk,
þar af tíu í 24 leikjum í sænsku
deildinni. Var hann verðlaunaður
sem nýliði ársins í sænsku deildinni.
Þetta vakti athygli stærstu liða
Evrópu og gekk Real Madrid hart á
eftir hinum sautján ára Isak ári eftir
að Ödergaard skrifaði undir á Spáni
en Isak ákvað að semja við Dort-
mund. Þýska félagið greiddi metfé
fyrir leikmann úr sænsku deildinni,
níu milljónir evra. Tók Isak þar fram
úr Zlatan Ibrahimovic þegar hann
var keyptur til Ajax frá Malmö árið
2001. Frá því að Isak skaust fram á
sjónarsviðið með AIK hefur hann
oft verið kallaður „næsti Zlatan“
og arftaki sænsku goðsagnarinnar
hjá sænska landsliðinu. Það eru því
miklar væntingar gerðar til hans í
heimalandinu.
Hjá Dortmund fékk Isak aldrei
tækifæri til að láta ljós sitt skína
enda hætti Thomas Tuchel, sem
fékk Isak til liðsins, með liðið hálfu
ári seinna. Heilt yfir kom Isak við
sögu í þrettán leikjum á tveimur
árum, oftast sem varamaður. Fyrir
vikið óskaði hann eftir því að yfir-
gefa félagið á láni og stökk á tæki-
færið þegar Willem II bauð honum
að koma á láni. Lífið gekk betur í
Hollandi þar sem Svíinn skoraði
þrettán mörk í sextán leikjum.
Ljóst var að tækifærin yrðu af
skornum skammti hjá Dortmund og
tók Isak tilboði Real Sociedad sem
keypti hann frá Þýskalandi á 8,5
milljónir evra. Isak átti erfitt upp-
dráttar fyrstu mánuðina og skoraði
aðeins tvö mörk í fyrstu tólf leikj-
unum en með jöfnunarmarki gegn
Börsungum brast stíf lan. Í næsta
leik skoraði Isak tvö og boltinn fór
að rúlla. Í ellefu leikjum eftir að hafa
skorað gegn Barcelona hefur Isak
skorað ellefu mörk.
Spennandi verður að fylgjast
með framgöngu Isak með bæði
Real Sociedad og sænska lands-
liðinu næstu árin. Þrátt fyrir ungan
aldur er hann kominn með 88 leiki
í meistaraflokki og hefur skorað í
þeim 42 mörk ásamt því að skora
fjögur mörk í tólf landsleikjum.
Ef hann heldur áfram að raða inn
mörkum með liði Real Sociedad er
ekki ólíkleg að stærstu lið Evrópu
fari að sýna Svíanum áhuga á ný
en nú ætti hann að vera tilbúnari í
hlutverk framherja stórliðs.
kristinnpall@frettabladid.is
Skapar sér
nafn á Spáni
Alexander Isak, drengurinn sem var yfirleitt kall-
aður næsti Zlatan Ibrahimovic, er að skapa sér
eigið nafn með Real Sociedad í spænsku deildinni.