Fréttablaðið - 10.02.2020, Síða 12

Fréttablaðið - 10.02.2020, Síða 12
Anna og Friðrik hafa þekkst frá því þau voru börn. Á seinni árum hefur vin- skapurinn orðið að heilu fyrirtæki þar sem dansinn er tekinn með trompi. Danssamfélagið þeirra nefnist Dans og Kúltúr en þau Anna og Friðrik eru sérfræðingar í að láta sýningar og danskennslu renna saman í eina sæng. Á fimmtudagskvöldið verður partíið tekið upp á annað plan þegar við bætast kögur, fjaðrir, slaufur og nýburstaðir skór með Charleston- dansi og 1920 í farteskinu. Með þeim stíga á svið María Callista og Lalli töframaður ásamt hugsan- legum óvæntum gestum. Charleston-dansinn heitir eftir samnefndri hafnarborg í Suður- Karólínu. Takturinn varð vinsæll árið 1923 með danstónlist, sérstak- lega The Charleston eftir James P. Johnson sem átti uppruna sinn í vinsælli sýningu á Broadway. „Við ætlum að horfa 100 ár aftur til fortíðar og rifja upp það skemmtilega tímabil sem ríkti þá í klæðnaði og dansi,“ segja þau Anna og Friðrik. „Við höfum lengi viljað efla danssamfélagið á Íslandi og höfum verið með alls kyns uppákomur síðustu tvö ár,“ segir Friðrik. „Í fyrstu voru dans- skólarnir með okkur á þessum kvöldum og gátu þá sýnt hvað þeir væru að bjóða upp á. Það er svo ótrúlega margt í boði. Þessi kvöld sameinuðu danssýningar og kennslu. Núna erum við að þróa okkur meira út í „show“ þar sem gestir eru þátttakendur. Við erum einnig með skemmtiatriði svo fólk er að fá heilmikið út úr kvöldinu. Núna verðum við með þema frá Charleston-tímabilinu sem er svo ótrúlega skemmtilegt og hægt að klæða sig upp,“ segir Friðrik. Vinir frá barnæsku Þegar þau eru spurð hvernig sam- starfið hafi byrjað, svarar Friðrik: „Við höfum verið vinir lengi og það er fyrst og fremst dansinn sem tengir okkur saman,“ og Anna bætir við að Friðrik hafi keppt í dansi með bróður hennar þegar þeir voru krakkar. „Þegar við urðum eldri enduðum við á því að dansa saman á Gay pride-sýningu árið 2003. Upp frá því höfum við verið bestu vinir og höfum dansað saman í hinum ýmsu uppá- komum,“ útskýrir hún en Friðrik hefur dansað í sýningum Páls Óskars, Haffa Haff, Svölu, Yesmine og fleirum. „Vinskapurinn slitnaði ekkert þó að við höfum verið hvort í sinni heimsálfunni í nokkur ár. Ég bjó í Dúbaí og hún í Kaliforníu,“ segir Friðrik og Anna bætir við að þau hafi f lutt heim á sama degi án þess að vita hvort af öðru. Dansinn var auðvitað partur af þeim í nýjum heimkynnum þótt önnur störf hafi einnig verið unnin. Friðrik starfaði sem list- rænn stjórnandi hjá tískufyrirtæki í Dúbaí auk þess að kenna zumba og fleiri dansa. Hann kom fram á alls kyns viðburðum þar í landi. Anna rak hlaðvarpsfyrirtæki í Los Angeles meðfram því að kenna dans, meðal annars zumba í LA Fitness. Hún tók viðtöl við stjörn- urnar í Hollywood auk þess að koma fram í leik og dansi. Þau eru bæði dansarar og starfa í World Class auk þess sem þau reka Dans og Kúltúr og bjóða upp á sýningar ef um þær er beðið, til dæmis hjá fyrirtækjum, hópum eða í gæsa- eða steggjapartíum. Nú síðast voru þau að sýna á Safnanótt í Reykjavík. Friðrik er menntaður í menningarstjórnun og starfar sem verkefnastjóri Listahátíðar í Reykjavík. „Við leggjum áherslu á að fá fólkið með okkur í dansinn og það taki þátt í sýningunum með okkur. Þá myndast mikið stuð og stemming,“ segja þau. „Fólk þarf að finna þessa dansgleði innra með sér. Það er svo æðisleg orka sem losnar um í þessari dansgleði.“ Ferðalög, dans og menning Dans og Kúltúr hefur einnig þróast út í ferðamennsku og sameinast þar áhugi þeirra beggja á dansi og ferðalögum. Þau hafa farið til Spánar með hópa, Marokkó og eru á leið til Dúbaí í næsta mánuði. „Við vorum reyndar að undirbúa sjónvarpsþátt þegar við fórum að velta fyrir okkur hvernig við gætum sameinað áhugamál okkar sem eru dans, menning og ferðalög. Við fórum í stutta ferð til Spánar og fengum þá þessa hugmynd, að bjóða fólki í dansferðalag. Tveimur mán- uðum seinna fórum við í fyrstu ferðina sem seldist f ljótt upp. Við fórum tvisvar til Cambrils sem er stutt frá Barcelona og hóparnir samanstóðu af fólki á öllum aldri. Næsta ferð var til Marokkó sem var algjört ævintýri. Nú bíðum við spennt eftir að komast til Dúbaí,“ segir Friðrik sem er vel kunnugur borginni eftir að hafa búið þar. „Að koma til Dúbaí er eins og að stíga inn í annan heim,“ segir hann. „Þessa ferð erum við að vinna í samstarfi við Jallabina Workout sem er staðsett í Stokk- hólmi. Ég vann mikið með þeim þegar ég bjó sjálfur í Svíþjóð. Í ferðinni verður boðið upp á dans og nýjan menningarheim. Íslenski hópurinn mun síðan sameinast hópum frá öðrum Norðurlöndum í Dúbaí. Borgin býður upp á stór- brotna menningu, hún er ótrúlega hrein og áhrifa gætir víða frá í heiminum. Þarna er gríðarleg ef ling í nýsköpun og ungt fólk frá Evrópu f lykkist til Dúbaí því þar leynast mörg tækifæri. Launin eru góð og það eru engir tekjuskattar þannig að fólk hefur það gott. Lúxusinn er alls staðar sjáan- legur.“ Dansinn er gleðisprengja Friðrik og Anna segja að sjón- varpsþættir um dans hafi mikil áhrif á áhuga fólks á að læra hann. Allir get dansað á Stöð 2 og Sporið á RÚV hafa verið mjög vinsælir þættir. „Þátturinn Strictly Come Dancing hefur verið eitt vin- sælasta efnið á BBC í mörg ár. Það er mikil dansmenning í Bretlandi og til dæmis er algengt að eldra fólk komi saman á pöbbum til að dansa,“ segir Friðrik og bætir við að dansinn sé núvitund og í ljós hafi komið að hann hefur góð áhrif gegn minnisglöpum. „Dansinum fylgir gleðiorka sem gefur endorfín. Hann er ótrúlega góður til að vinna á alls kyns and- legum kvillum auk þess sem hann er frábær fyrir líkamann líka. Til dæmis hrynja kílóin af manni í zumba og það má alveg hafa það gaman í ræktinni um leið og maður formar líkamann,“ segja þau. „Við elskum að deila dansgleðinni til landsmanna og hlökkum mikið til fimmtudagskvöldsins.“ Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Charleston- danspían Anna Claessen er sko alveg tilbúin í sýninguna. Friðrik Agni gæti alveg verið farinn aftur á bak í tíma til 1920 sem hann segir hafa verið æðislegan tíma í fatnaði. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Fólk þarf að finna þessa dansgleði innra með sér. Það er svo æðisleg orka sem losnar um í þessari dansgleði. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 M Á N U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.