Fréttablaðið - 10.02.2020, Síða 14

Fréttablaðið - 10.02.2020, Síða 14
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Þetta er hagkvæm lausn sem býður upp á mikinn sveigjan-leika, byggingarhraða, hagkvæmni í verði, betri nýtingu hráefnis og fleiri umhverfisþætti, segir Ómar um módúl-lausnirnar sem slegið hafa í gegn. Starfsemi um land allt „Hrafnshóll ehf. hefur undanfarin ár byggt íbúðarhúsnæði á lands- byggðinni í samvinnu við sveitar- félög. Verkefni félagsins eru víðs vegar um landið og þegar eru tæp- lega 40 íbúðir byggðar eða í bygg- ingu í fimm sveitarfélögum; Vík í Mýrdal, Reykhólum, Blönduósi, Búðardal og í Súðavík. Hrafnshóll er með verkefni í undirbúningi á f leiri stöðum.“ Fagmennskan er alltaf í fyrir- rúmi. „Við höfum sérhæft okkur í byggingu á einingahúsum, og höfum skapað okkur sérstöðu hvað varðar byggingaraðferðir sem má beita hvar sem er á land- inu. Við byggjum hratt og örugg- lega og getum afhent fullbúið íbúðarhúsnæði á innan við fjórum mánuðum.“ Hrafnshóll er í samstarfi við hið farsæla fyrirtæki Wexus. „Wexus er nýr samstarfsaðili Hrafnshóls og framleiðir módúl-lausnir fyrir margvíslegar aðstæður. Wexus er norskt fyrirtæki og hefur á skömm- um tíma náð góðum árangri í heimalandinu, þar sem þeir vinna mikið með opinberum aðilum sem og einkaaðilum. Í nýrri verksmiðju þeirra er hægt að framleiða meira en 1.500 módúla árlega.“ Margir möguleikar á boðstólum með módúlum „Módúll er húseining, sem er fullbyggð með gólfi, veggjum og þaki, og búið er að innrétta að nánast öllu leyti. Módúllinn er full-einangraður, með gluggum og hurðum, búið er að mála, setja upp innréttingar og jafnvel myndir á veggina! Módúlar geta staðið einir sér, eða að þeim er raðað saman til að mynda stærri heild,“ útskýrir Ómar. „Módúl-lausnir eru svar við ákalli um meiri byggingarhraða, meiri gæði, meiri stöðlun og betri nýtingu mannauðs og hráefna. Módúlar eru framleiddir úr timbri, að öllu leyti innandyra, við bestu aðstæður og koma að mestu til- búnir á byggingarstað.“ Ómar segir möguleikana ómælda. „Hvort heldur sem um er að ræða tímabundna stækkun eða varanlegt húsnæði, þá er hægt að laga Wexus módúl-lausnir að margvíslegum þörfum. Sem dæmi má nefna: almennt íbúðarhús- næði, grunn- og leikskóla, hótel, byggingar í ferðaþjónustunni, sjúkrastofnanir, öryggisíbúðir, starfsmannaaðstöðu og mötu- neyti. Módul-lausnir frá Wexus geta verið til sölu eða leigu. Í mörgum tilfellum getur verið hagstæðara að leigja módúla, til dæmis þar sem þörf er á húsnæði í ákveðinn tíma. Þetta getur til dæmis verið stækkun á skólahúsnæði til að mæta tímabundinni uppsveiflu í fjölda nemenda, vinnubúðir í tengslum við ákveðin verkefni eða hótelbygging sem þarf að vera til- búin fyrir ferðamannatímann. Oft er ekki til fjármagn til fjárfestinga en svigrúm getur verið til að leigja þá aðstöðu sem þörf er á.“ Skortur á hagkvæmum lausnum á markaðnum Tímabært sé að bjóða upp á hag- kvæmari lausnir en margar þeirra sem hingað til hafa staðið til boða. „Íslenskur byggingariðnaður hefur að mörgu leyti setið eftir þegar kemur að hagkvæmum lausnum í byggingariðnaði. Fyrsta hugsun mjög margra er að slá upp mótum og hræra steypu, eins og menn hafa alltaf gert. Steypa er ekki umhverfisvænt efni, þó ekkert komi í staðinn við ákveðnar Hér má sjá hótelbyggingu í undirbúningi á Íslandi en möguleikar módúl-bygginga eru ótæmandi. Þessi leik- skóli í Noregi er byggður með módúl- lausnum. Hægt er að mæta sveiflum í fjölda leikskólabarna með því að fjölga einingum og fækka þeim aftur þegar börnum fækkar. Hægt er að byggja allt milli himins og jarðar; skóla, starfs- mannaaðstöðu og mötu- neyti, viðbætur við heilbrigðisstofnanir, gistirými og jafnvel stór hótel. aðstæður. Enn fremur er ekki hægt að jafna saman byggingarhraða með módúl-lausnum og eldri aðferðum,“ segir Ómar. „Við höfum líka slæma reynslu af illa hönnuðum steinhúsum og miklum myglu- og rakavanda- málum. Visthæfi timburhúsa er yfirleitt mun betra og rakavand- mál minni – þau anda betur. Í nágrannalöndum okkar er mikill meirihluti nýrra húsa gerður úr timbri og víða er óheimilt að nota hefðbundið gifs og spónaplötur í veggjaklæðningar, eins og þykir eðlilegur hlutur á Íslandi.“ Oft þurfi að gera betur hvað ein- angrun snertir. „Þá eru kröfur um einangrunargildi húsa á Norður- löndunum miklu hærri en hjá okkur – og þrefalt rúðugler. Þegar við byggjum úti á landi skiptir einangrun húsa og orkunýting mjög miklu máli – köld svæði og hár hitunarkostnaður er víðar en margur heldur.“ Hægt að byggja allt árið „Módúl-hús geta verið í fram- leiðslu meðan unnið er í jarðvinnu og sökklagerð – það stuðlar að styttri byggingartíma og meiri framleiðni. Við notum nútíma sökklakerfi frá Sundolitt® sem hefur mun meira einangrunargildi en íslensk byggingarreglugerð segir til um,“ útskýrir Ómar. „Meiri gæði fást með smíði eininga og módúla innandyra við bestu aðstæður. Hættan á að raki komist í byggingarhluta er í lág- marki í samanburði við að byggja utandyra við íslenskar aðstæður.“ Þannig hafi hið óútreiknan- lega íslenska veðurfar ekki áhrif á framleiðslu. „Við íslenskar aðstæður er mjög mikilvægt að framleiðsla módúla fer fram óháð veðuraðstæðum. Vegna þess hversu uppsetningartími er stuttur er hægt að nota hægviðris- kafla að vetrum til að reisa hús, jafnvel þó að snjór sé og frost. Þetta gerir það að verkum að mögulegt er að byggja allt árið um kring,“ segir hann. „Gluggar og hurðir eru komnar í módúlana, þannig að lokafrágang- ur að utan tekur skamman tíma, frá því húsið hefur verið reist.“ Meiri gæði, hraðara ferli og betri nýting hráefnis Kostirnir eru margir og ótvíræðir. „Þar sem framleiðsla módúla fer fram innandyra, alltaf á sama stað og er alltaf framkvæmd af sama sérhæfða starfsfólkinu, aukast framleiðni og gæði framleiðslunn- ar á sama tíma og auðveldara er að gera áætlanir um efnisþörf fyrir hvert verkefni – og ná hagkvæmni í innkaupum. Úrgangur frá bygg- ingarsvæðum getur auðveldlega fyllt marga gáma. Með því að módúlar koma tilbúnir á bygg- ingarstað, má minnka sóun bygg- ingarefna verulega og auðvelda flokkun úrgangs, bæði í verksmiðj- unni og á byggingarstað.“ Ferlið er bæði fljótt og öruggt. „Í framleiðslu módúl-lausna eru gólf, veggir og þak byggt á sama tíma. Hefðbundnar byggingaraðferðir gera ráð fyrir að gólfið sé gert fyrst, síðan veggirnir og þá þakið. Með því að setja húsið allt saman í verksmiðju styttist ferlið, auk þess sem hægt er að vinna mest alla innivinnu, svo sem málningar- vinnu, uppsetningu innréttinga og undirbúa raf- og pípulögn.“ Aukinn sveigjanleiki í módúl-lausnum „Módúl-byggingar gefa sveigjan- leika í framkvæmdum sem erfitt er að ná fram með hefðbundnum byggingaraðferðum. Hægt er að bæta við eða fjarlægja módúla ef henta þykir. Hægt er að færa módúl-byggingar úr stað, breyta, endurnýja og nýta annars staðar.“ Þá eru allar helstu ákvarðanir er varða útlit og efni teknar í samráði við kaupanda. „Módúlar eru hann- aðir í samvinnu við kaupendur. Ekki er um staðlaðar lausnir að ræða, að öðru leyti en að þær koma sem allra mest tilbúnar frá fram- leiðanda. Útlit, utanhússklæðn- ingar, innanhússhönnun, efnisval, innréttingar og annað er hannað í samvinnu við kaupanda.“ Erfitt sé að greina útlitslegan mun á milli módúla og annarra bygginga. „Sjaldnast er auðvelt að sjá hvort bygging er gerð úr módúl- um. Í samvinnu við arkitekt og með klæðningum er hægt að gera bygginguna þannig úr garði að hún líti út eins og ein heild. Þetta á einnig við þegar módúl-byggingar eru settar upp sem stækkun við byggingu sem fyrir er.“ Lægri byggingarkostnaður Þessar lausnir hafa í för með sér minni kostnað. „Meiri bygg- ingarhraði módúl-lausna – þar sem gæðin eru jafnframt tryggð – minnkar fjármagnskostnað á byggingartímanum. Hægt er að reisa reisa módúla og einingahús allt árið um kring sem einfaldar áætlanagerð og eykur jafnframt framleiðni.“ Ómar nefnir dæmi um slík tilfelli hérlendis. „Tvö nýleg íslensk dæmi um viðbyggingar við leikskóla – í báðum tilfellum var ætlunin að stækka um 200 fermetra. Í öðru tilfellinu var hætt við stækkun – bolmagn til fjárfestinga skorti. Þarna hefði mátt hugsa sér að leigja módúla til skemmri eða lengri tíma. Í hinu til- fellinu var lagt af stað með steypta varanlega lausn, þar sem fermetra- verð í byggingunni nálgast eina milljón króna. Mikið fjármagn þarf í verkefnið og byggingar- tíminn er langur. Að kaupa eða leigja módúla hefði líklega kostað helmingi minna og tekið helmingi styttri tíma.“ Hægt er að byggja allt milli himins og jarðar. „Starfsmanna- aðstaða og mötuneyti, viðbætur við heilbrigðisstofnanir, gistirými og jafnvel stór hótel. Þetta er allt hluti af því sem má byggja með Wexus-módúlum á fljótlegan og hagkvæman hátt.“ Módúl-lausnir eru í takt við tíð- arandann sem kallar meðal annars á ábyrgari framleiðsluhætti. „Á tímum þar sem auknar kröfur eru um hraða framkvæmda, meiri framleiðni og betri nýtingu fjár- magns – á sama tíma þurfum við að gæta að umhverfinu og velja lausnir sem skilja eftir sig minna fótspor, þar sem hægt er að endur- nýta og endurvinna á hagkvæmari hátt en við höfum gert áður. Með því að velja Wexus módúl-lausnir í húsnæðismálum geta bæjarfélög og fyrirtæki stigið ákveðin skref í þessa átt,“ segir Ómar. Nánari upplýsingar um Hrafnshól og Wexus módúl-lausnir er að finna á: hrafnsholl.is og wexus.no 2 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 M Á N U DAG U RBYGGINGARIÐNAÐURINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.