Fréttablaðið - 10.02.2020, Page 20
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
8 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 M Á N U DAG U RBYGGINGARIÐNAÐURINN
Kínamúrinn var byggður á Ming-tímanum sem spannar tímabilið frá 14. til 16. aldar.
Hann er 6.350 kílómetra langur
virkisveggur sem var reistur til að
vernda Kína gegn innrásum mong-
ólskra og tyrkneskra ættflokka en
þegar mest var stóð rúmlega ein
milljón hermanna vörð á múrnum.
Petra í Jórdaníu er ægifögur forn
borg sem var byggð úr klettum og
steini í kringum 1200. Hún naut
mikillar virðingar fyrir háþróaða
menningu, stórkostlegar byggingar
og einstakt vatnsveitukerfi en var
öllum gleymd á 16. öld eða þar til
árið 1812 að hún fannst á ný.
Styttan af Jesú Kristi er eitt
þekktasta kennileiti Brasilíu, alls
38 metra há og talin vera stærsta
höggmynd í art deco-stíl í heim-
inum. Styttan var vígð árið 1931 og
gnæfir yfir borginni Ríó de Janeiro
á tindi fjallsins Corcovado.
Machu Picchu, borg Inkanna
í Perú, er talin hafa verið reist
fyrir Pachacuti, keisara Inkanna, í
kringum 1450. Borgin var yfirgefin
hundrað árum seinna eftir land-
vinninga Spánverja.
Colosseum er stærsta hringleika-
húsið sem byggt var í Rómaveldi.
Það gat tekið 70 þúsund manns í
sæti og var notað fyrir blóðuga bar-
daga skylmingaþræla og aðrar svip-
aðar skemmtanir. Framkvæmdir
hófust árið 70 eftir Krist og var
leikhúsið opnað tíu árum síðar.
Chichen Itza er gömul Maya-
borg í Yucatán í Mexíkó og ein sú
stærsta frá tímum Mayaindjána.
Talið er að borgin sé meira en 1500
ára gömul og má sjá marga stíla
arkitektúrs í borginni sem og píra-
mída.
Taj Mahal er grafhýsi í borginni
Agra á Norður-Indlandi, eitt af
þekktustu verkum íslamskrar
byggingarlistar og eitt frægasta
mannvirki heims. Það var reist
fyrir keisarann Shah Jahan til
minningar um þriðju eiginkonu
hans sem lést af barnsförum. Talið
er að yfir 20 þúsund verkamenn
og 1.000 fílar hafi komið að efnis-
flutningum og byggingu Taj Mahal
sem var reist úr hvítum marmara
og verðmætum steinum á árunum
1632 til 1643.
Sjö byggingarundur veraldar
Styttan af Jesú Kristi í Brasilíu er 38 metra há og gnæfir yfir borginni Ríó de Janeiro á fjallinu Corcovado.
Píramídinn í Maya-borginni Chichen Itza er stórvirki.
Hin forna borg Petra í Jórdaníu var greipt og handgrafin í stein og kletta.
Taj Mahal á Indlandi þykir ein fegursta bygging heims.
Hringleikahúsið Colosseum í Róm tók 70.000 manns.Kínamúrinn er feiknarlega stórt hernaðarmannvirki.
Inkaborgina Machu Picchu í Perú er undur að skoða.
Sjö undur veraldar eru safn óviðjafn-
anlegrar sköpunar mannsins í bygg-
ingum, arkitektúr og listum. Þau laða
árlega að sér milljónir manna sem
standa agndofa frammi fyrir ótrú-
legum afrekum byggingarlistamanna.
s. 618 8418 • vinnupallarehf@gmail.com
FRÁB
ÆR Þ
JÓNU
STA -
GÓÐ
VERÐ
SALA
OG L
EIGA
Plettac vinnupallar
- Protekt fallvarnarbúnaður
Láttu öryggi og lausnir ráða ferðinni