Fréttablaðið - 10.02.2020, Page 24

Fréttablaðið - 10.02.2020, Page 24
Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Abraj Al Bait er 601 metra hátt hótel. Það er hæsta hótel heims og dýrasta byggingin. MYND/WIKIPEDIA Marina Bay Sands samanstendur af þremur 55 hæða turnum sem eru tengdir saman. MYND/WIKIPEDIA Höfuðstöðvar Apple eru kallaðar „The Spaceship“ eða „Geimskipið“. Um áttatíu prósent af flatarmálinu eru þakin grænum svæðum. MYND/ WIKIPEDIA Á Resorts World Sentosa er meðal annars stærsti sædýragarður heims. MYND/WIKIPEDIA Árlega koma þúsundir múslima í pílagrímsferð til Masjid Al Haram, stærstu mosku heims. NORDICPHOTOS/GETTY 12 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 M Á N U DAG U RBYGGINGARIÐNAÐURINN Það er misjafnlega mikill metnaður á bak við nýjar byggingar um víða veröld en þær allra stærstu og fínustu eru ótrúleg afrek í byggingarverk- fræði og hönnun og kosta drjúgan skildinginn. Abraj Al Bait – 15 milljarðar dollara Þetta hótel í borginni Mekka í Sádi-Arabíu var byggt árið 2012. Það er 601 metra hátt og er bæði hæsta hótel í heimi og dýrasta bygging veraldar. Hótelið er 1,5 milljón fermetrar og getur tekið á móti 100 þúsund manns. Turninn skartar heimsins stærstu klukku, en hún er í 530 metra hæð og er 43 metrar að þvermáli. Sagt er að hún sé sjáanleg úr 30 kílómetra fjarlægð. Á toppnum hvílir gull- inn hálfmáni sem er 23 metra hár. Marina Bay Sands – 5,5 milljarðar dollara Þetta er ferðamannastaður og spilavíti í Singapúr sem var byggt árið 2010. Byggingin samanstend- ur af þremur 55 hæða turnum sem eru tengdir saman og situr á svæði sem er 154 þúsund fermetrar. Allur arkitektúr og hönnun staðarins var samþykkt af feng shui-ráð- gjöfum. Apple Park – 5 milljarðar dollara Höfuðstöðvar Apple í Cupertino í Bandaríkjunum voru byggðar árið 2017. Vegna hringlaga hönnunar og stærðar byggingarinnar er hún kölluð „The Spaceship“ eða „Geimskipið“. Byggingin situr á 708 þúsund fermetra landareign í úthverfi Cupertino-borgar og hýsir yfir 12 þúsund starfsmenn í fjögurra hæða byggingu sem er um 260 þúsund fermetrar. Um áttatíu prósent af f latarmálinu eru þakin grænum svæðum og það er tjörn í miðju hringsins. Resorts World Sentosa – 4,93 milljarðar dollara Þessi ferðamannastaður í Singapúr var byggður árið 2009 og saman- stendur af hótelum, spilavíti og býður upp á ýmiss konar skemmt- un, eins og til dæmis skemmtigarð frá Universal Studios. Þar er líka sædýragarður sem er 81 þúsund fermetrar að stærð og sá stærsti sinnar tegundar í heiminum, en í garðinum eru hægt að sjá meira en 100 þúsund dýr sem tilheyra meira en 800 tegundum. Wynn Palace – 4,2 milljarðar dollara Þessi ferðamannastaður í borginni Cotai á sjálfsstjórnarsvæðinu Makaó var byggður árið 2016. Það eru 28 hæðir og 1.706 lúxus- herbergi með sérlega vönduðum húsgögnum, fjölbreytt fundarað- staða, yfir 9.800 fermetrar af lúxus verslunarsvæði, 11 veitingastaðir, stærsta spa í Makaó, snyrtistofa, sundlaug og um 39 þúsund fer- metra spilavíti. Þar er líka mikið framboð afþreyingar, meðal ann- ars 32 þúsund fermetra sýningar- vatn sem sýnir samstilltan dans vatns, tónlistar og ljóss og margt f leira. Masjid Al Haram – 10,6 milljarða stækkun Svo er eiginlega nauðsynlegt að nefna Masjid Al Haram moskuna í Mekka í Sádi-Arabíu. Hún var byggð árið 638 og ekki er vitað hver kostnaðurinn við byggingu hennar var, en hún var stækkuð árið 2008 fyrir 10,6 milljarða Bandaríkjadollara. Þessi moska hvílir á heilagasta stað í heimi samkvæmt Íslam og þangað koma árlega þúsundir múslima í píla- grímsferð. Moskan er sú stærsta í heimi og næststærsta bygging veraldar, á eftir Boeing-verksmiðj- unni í Everett í Bandaríkjunum. Fimm dýrustu byggingar heims Um víða veröld má finna byggingar af ótal stærðum og gerðum en í sumum ríkjum finnast byggingar sem eru óheyrilega stórar og kosta lygilegar fúlgur fjár. Við hjá Front-X sérhæfum okkur í bílskúrs- og iðnaðarhurðum Sendu okkur verðfyrirspurn af vefsíðunni okkar www.frontx.is eða sendu okkur póst á frontx@frontx.is 15% afsláttur af öllum hur ðum í febrúar. www.frontx.is MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR Hafðu samband info@husavidgerdir.is Sími 565-7070 Finndu okkur á ALHLIÐA MÚRVERK ÞAKVIÐGERÐIR GLUGGASKIPTI HGB ehf. byggingafyrirtæki S. 894 1678 hgb.ehf@gmail.com Nýsmíði - innan- og utanhúss - ásamt öllu almennu viðhaldi - vönduð vinna - 40 ára reynsla. Tímavinna eða tilboð. Byggingastjóri og húsasmíðameistari HGB ehf. Gunnar Björn Jónsson Löggiltur múrarameistari Sími: 845-4050 E-mail: gaedamur@gmail.com Alhliða múrverk - Flísalagnir - Flotun - Steining

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.