Fréttablaðið - 10.02.2020, Síða 42
Vogabyggð byggir á gömlum grunni við ósa Elliðaár, en þar var áður atvinnustarf-
semi sem nú hefur vikið fyrir
íbúðabyggð. Hjóla- og göngustígar
liggja meðfram sjávarsíðunni og
upp í Elliðaárdal og niður í Foss-
vogsdal. Laugardalurinn er stein-
snar frá og umhverfið býður upp á
frábæra möguleika til útivistar. Þá
er öll þjónusta innan seilingar.
„ÞG Verk hóf framkvæmdir í
Vogabyggð árið 2018 og við erum
langt komnir með fyrsta áfanga
af þremur. Fyrstu íbúðirnar, sem
eru við Skektuvog, verða tilbúnar
til afhendingar í apríl og eru þegar
komnar í sölu. Með vorinu koma
svo fleiri íbúðir í þessum áfanga á
markaðinn. Þetta hefur verið mjög
spennandi verkefni og ánægjulegt
að fá að taka þátt í að byggja upp
nýtt hverfi sem er svona vel stað-
sett. Það er sjaldan tækifæri til að
byggja nýtt hverfi inni í borginni
sjálfri en ekki í borgarjaðrinum
eins og oftast er gert,“ segir Þor-
valdur Gissurarson, forstjóri ÞG
Verk, en fyrirtækið býr yfir meira
en 20 ára reynslu á bygginga-
markaði.
Fjölbreytilegar íbúðir fyrir
allar fjölskyldugerðir
ÞG Verk hefur lagt áherslu á fjöl-
breytilegar íbúðir í Vogabyggð,
sem eru afar vel hannaðar og um
leið hagkvæmar og ekkert er gefið
eftir hvað varðar gæði.
„Íbúðirnar eru hannaðar með
fjölbreytileika og mismunandi
þarfir í huga. Þannig leggjum við
áherslu á góða nýtingu og erum
með t.d. með íbúðir sem eru 80
fm en samt þriggja herbergja, og
100 fm íbúðir sem eru 4 herbergja,
jafnframt bjóðum við upp á íbúðir
með stærri rými. Við erum einnig
með einstaklingsíbúðir og allt
Nýjar íbúðir frá ÞG Verk í Vogabyggð
Vogabyggð er nýtt og glæsilegt hverfi við sjávarsíðuna, sem er við miðju höfuðborgarinnar.
„ÞG Verk hefur tekið þátt í uppbyggingu Vogabyggðar frá upphafi og í apríl verða fyrstu íbúðirnar
tilbúnar,“ segir Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG Verk.
Þorvaldur segir að auk verkefna
við Vogabyggð sé ÞG Verk með stór
íbúðaverkefni í Urriðaholti í Garða-
bæ. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
ÞG Verk hóf fram-
kvæmdir í Voga-
byggð árið 2018 og er
fyrsti áfangi af þremur
langt kominn. Fyrstu
íbúðirnar við Skektuvog
verða tilbúnar til
af hendingar í apríl og
eru þegar komnar í sölu.
Þannig mun nýja Vogahverfið koma til með að líta út. Glæsilegar íbúðir sem eru vel skipulagðar fyrir fjölskyldur koma í fyrstu þeirra í sölu í apríl. Íbúðirnar eru fallega innréttaðar.
Íbúðirnar verða
skemmtilega
hannaðar og
fullkláraðar.
upp í 5 herbergja íbúðir sem henta
stærri fjölskyldum,“ segir Þorvald-
ur, en með þessu móti geta allir
fundið íbúð við hæfi og fjárhag.
„KRark sá um hönnun á íbúðun-
um við Skektuvog og PKdM Arki-
tektar hönnuðu íbúðirnar í næsta
áfanga, við Arkarvog. Við hjá ÞG
Verk vildum fá mismunandi arki-
tekta með mismunandi áherslur
til að fá fjölbreytni við hönnun
hverfisins,“ segir Þorvaldur.
„Íbúðirnar við Skektuvog eru
frábærar fyrir fyrstu kaupendur,
ungt fólk með eitt eða tvö börn,
stórar fjölskyldur og eldra fólk sem
vill minnka við sig en hefur ekki
áhuga á að búa í úthverfi heldur
vill vera miðsvæðis,“ segir Þor-
valdur.
ÞG Verk leggur áherslu á vönduð
vinnubrögð, góða þjónustu og skil
íbúða á umsömdum tíma.
Allar íbúðirnar í Vogabyggð eru
afhentar fullbúnar með gólfefn-
um, innréttingum frá þýska fram-
leiðandanum Nobilia og heimilis-
tækjum af þekktri og vandaðri
tegund. Að auki fylgir ísskápur og
uppþvottavél, sem er umfram það
sem gerist og gengur.
„Við hjá ÞG Verk leggjum okkur
fram um að skila góðu og vönduðu
verki og hugum vel að mikil-
vægum atriðum sem hafa verið
mikið í umræðunni, eins og t.d.
góðri innivist. Allur frágangur er
eins og hann gerist bestur,“ segir
Þorvaldur.
Hann hvetur kaupendur ein-
dregið til að kynna sér vel það
byggingarfyrirtæki sem þeir hafi
hug á að eiga viðskipti við. „Það
er mikilvægt að íbúðakaupendur
skoði hvaða reynslu og þekkingu
byggingarfyrirtækið býr yfir
og ekki síst orðspor þess, enda
íbúðakaup ein stærsta fjárfesting
sem einstaklingar fara út í á lífs-
leiðinni,“ segir hann.
Uppbygging annars áfanga er
þegar hafin og segir Þorvaldur að
stefnt sá að því að íbúðir í þeim
áfanga, sem er við Arkarvog, verði
tilbúnar á næsta ári og í kjöl-
farið verði hafist handa við þriðja
áfanga við Kuggavog. Ef svo fer
sem horfir mun ÞG Verk afhenda
tæplega 400 íbúðir í Vogabyggð á
næstu misserum.
Stór verkefni í Urriðaholti
Þorvaldur segir að auk verkefna
við Vogabyggð sé ÞG Verk með
stór íbúðaverkefni í Urriðaholti í
Garðabæ. „Það er einstaklega vel
heppnað úthverfi sem er nokkuð
frábrugðið öðrum úthverfum.
Óvenjumikið er hugsað út í innra
skipulag og vistvænar lausnir og
þar er góð tenging við náttúruna.
ÞG Verk hefur byggt um 200 íbúðir
í Urriðaholtinu og fleiri eru í
undirbúningi,“ segir hann.
ÞG Verk hefur einnig sinnt
öðrum verkefnum undan-
farin misseri, svo sem byggingu
atvinnuhúsnæðis. „Við erum
að byggja nýjar höfuðstöðvar
Landsbankans við Austurhöfn í
miðbænum, sömuleiðis nýtt hótel
við Austurvöll, á gamla Lands-
símareitnum. Þá er stutt síðan
við lögðum lokahönd á fyrsta
áfanga af glæsilegu stórhýsi við
Urðarhvarf 8 en þangað hefur m.a
Orkuhúsið flutt starfsemi sína. Þar
fyrir utan erum við að ljúka við
uppbyggingu atvinnuhúsnæðis
við Dalveg og eins að klára og
afhenda íbúðir við Hafnartorgið,“
segir Þorvaldur að lokum.
Hægt er að skoða íbúðirnar í Voga-
byggð á tgverk.is
14 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 M Á N U DAG U RBYGGINGARIÐNAÐURINN