Fréttablaðið - 10.02.2020, Page 46
Vefverslunin Skanva.is, sem selur glugga og hurðir, var opnuð vorið 2018. Þar er
kostnaði við alla yfirbyggingu og
lager haldið í algjöru lágmarki og
fyrir vikið getur verslunin boðið
gæðavörur á mun betra verði en
gengur og gerist. Þar býðst við-
skiptavinum að slá inn mál og fá
verð á gluggum og hurðum sam-
stundis.
„Við erum ekki með neinn
lager, heldur bara heimasíðu og
sýningarsal á Fiskislóð 31e,“ segir
Brynjar Valþórsson, verslunar-
stjóri Skanva á Íslandi. „Ferlið
virkar einfaldlega þannig að
viðskiptavinir slá inn mál á því
sem þeir vilja kaupa á síðunni
okkar og verðið á vörunni birtist
samstundis. Gluggar og hurðir er
svo allt sérsmíðað eftir málum og
þörfum viðskiptavina.
Þetta var í raun ein fyrsta
netverslunin þar sem hægt var
að f letta upp málum og fá verð
samstundis,“ segir Brynjar. „Fólk
er mjög hrifið af því og það hefur
verið brjálað gera hjá okkur frá
byrjun. Salan hefur farið langt
fram úr væntingum.
Skanva á Íslandi er hluti af
dönsku fyrirtæki sem hóf rekstur
fyrir um sjö árum og býður upp
á viðskipti í Danmörku, Nor-
egi og á Íslandi. Þetta er dönsk
hönnun, en framleiðslan fer fram
í Hvíta-Rússlandi,“ segir Brynjar.
„Vörurnar eru gerðar úr norðlægri
furu sem er meðhöndluð á sér-
stakan hátt og er þekkt fyrir styrk
og endingu. Uppistaðan er límtré,
þannig að það er mun ólíklegra að
viðurinn verpist.“
Gott fyrir einstaklinga
og fyrirtæki
„Kúnnarnir okkar eru bæði
verktakar og einstaklingar sem
hafa áhuga á að versla hér,“ segir
Brynjar. „Það virðist sem einstakl-
ingsmarkaður hafi virkilega tekið
við sér, núna getur fólk bara gert
þetta sjálft og þarf ekki að bíða
eftir tilboði, sem getur stundum
tekið langan tíma.
Kúnnar sækja vörurnar í vöru-
hús Samskipa eða geta fengið
tilboð í heimsendingu í gegnum
vefinn um leið og þeir versla,“
segir Brynjar. „Það er því enginn
falinn kostnaður sem fellur til
eftir að fólk hefur verslað á heima-
síðunni. Þetta er allt hraðara og
þægilegra og það er mikil framför.
Fólk er mjög hrifið af heimasíð-
unni og af því að geta afgreitt sig
sjálft og þetta hentar vel fyrir fólk
sem býr utan höfuðborgarsvæðis-
ins,“ segir Brynjar. „Það er þægi-
legt að geta f lett upp málum og
fengið tilboð í framkvæmdirnar
sínar undir eins. Ef fólk er að spá
í fasteignum getur líka verið gott
að geta f lett upp hvað það kostar
að kaupa nýja hurð eða skipta um
glugga og fá verðhugmyndir.“
Margir valkostir í boði
„Það er mjög þægilegt að versla á
heimasíðunni okkar,“ segir Brynj-
ar. „Við erum með þrjár fram-
leiðslulínur, það er tré, álklætt
tré og plast sem kemur frá þýska
framleiðandanum VEKA AG. Það
eru margir valkostir í boði og þar
sem allt er sérsmíðað er hægt að
ráða ýmsum smáatriðum, hvort
sem það eru húnar, gerð af gleri,
litir, áferð eða hvernig opnanir og
læsingar eiga að vera.
Svo erum við nýbyrjuð að selja
rennihurðir og erum með þær
á mjög sanngjörnu verði. Það
hefur verið mikil eftirspurn eftir
þeim og þær eru vinsælar,“ segir
Brynjar. „Við erum alltaf á tánum
og að reyna að þróa okkur, bæta
okkur og sýna nægan sveigjan-
leika til að aðlagast markaðnum.
Það tekur yfirleitt um átta vikur
að fá vörur, en það fer eftir því
hvað er mikið að gera í verksmiðj-
unni. Það er því kominn tími til
að fara að huga að því að panta ef
fólk ætlar að skipta um glugga í
apríl eða maí,“ útskýrir Brynjar.
35% lægra verð á netinu
„Ef fólk nýtir netverslunina og
sér sjálft um pöntunina er verðið
35% lægra en ef fólk kemur hingað
til okkar í sýningarsalinn til að
ganga frá pöntun,“ segir Brynjar.
„En við aðstoðum fólk að sjálf-
sögðu við að versla á netinu, það
er einfaldlega hægt að hringja í
okkur til að fá aðstoð.
Við bjóðum svo líka oft upp á
einhverja auka afslætti og núna á
morgun, 11. febrúar, byrja Þorra-
dagar og þá verður boðið upp
á magnafslátt af öllum vörum,“
segir Brynjar að lokum.
Allar nánari upplýsingar er að
finna á vefsíðu fyrirtækisins,
skanva.is. Það er líka hægt að
koma í sýningarsalinn á Fiskislóð
31e til að skoða vörur og fá upp-
lýsingar.
Sérsmíðuð gæði og sanngjarnt verð
Skanva.is er netverslun sem selur glugga og hurðir sem eru sérsmíðaðar eftir málum viðskipta-
vina. Með því að hafa engan lager og lágmarks yfirbyggingu getur Skanva boðið sanngjarnt verð.
Brynjar Valþórs-
son, verslunar-
stjóri Skanva á
Íslandi, segir að
þar sem Skanva
sé ekki með
neinn lager,
heldur bara
heimasíðu og
sýningarsal,
geti fyrirtækið
boðið mun
betra verð
en gengur og
gerist. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ERNIR
Vörurnar frá Skanva eru hannaðar í Danmörku og fram-
leiddar úr norðlægri furu í Hvíta-Rússlandi.
Það hentar
vel fyrir bæði
einstaklinga
og verktaka
að versla hjá
Skanva.
Þar sem allt er sérsmíðað er hægt að ráða ýmsum smá-
atriðum, hvort sem það eru húnar, gerð af gleri, litir,
áferð, eða hvernig opnanir og læsingar eiga að vera.
Hægt er að kíkja á úrvalið í glæsilegum sýningarsal
Skanva á Fiskislóð 31e í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ferlið virkar
einfaldlega þannig
að viðskiptavinir slá inn
mál á því sem þeir vilja
kaupa á síðunni okkar
og verðið á vörunni
birtist samstundis.
Gluggar og hurðir er svo
allt sérsmíðað eftir
málum og þörfum við-
skiptavina.
18 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 M Á N U DAG U RBYGGINGARIÐNAÐURINN