Fréttablaðið - 10.02.2020, Síða 47
KYNNINGARBLAÐ 19 M Á N U DAG U R 1 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 BYGGINGARIÐNAÐURINN
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ er
dæmi um vel heppnaða byggingu.
Vistvæn bygging grund-vallast á hugmyndafræði sjálf bærrar þróunar þar
sem leitast er við að mæta þörfum
samtíðarinnar án þess að skerða
möguleika komandi kynslóða til
að mæta sínum þörfum.
Vistvæn bygging er byggð á
aðferðum sem eru umhverfisvæn-
ar, nýta auðlindir á hagkvæman
hátt og draga úr neikvæðum
umhverfisáhrifum byggingarinn-
ar í gegnum allan vistferil hennar.
Við hönnun vistvænna bygginga
er meðal annars lögð áhersla á
orkumál, efnisval, staðarval og
heilnæmara umhverfi.
Vistvæn bygging ...
n er endingargóð og sveigjanleg.
n er hönnuð með líftíma bygg-
ingar í huga varðandi umhverf-
isáhrif og heildarkostnað.
n nýtir rými á hagkvæman hátt-
tryggir heilnæmt inniloft,
lýsingu og hljóðvist og veldur
minni úrgangi á byggingartíma
og í rekstri.
n er byggð úr vistvænum bygg-
ingarefnum.
n nýtir vel orku, vatn og aðrar auð-
lindir og stuðlar að vistvænum
samgöngum og aðgengi fyrir
alla og stuðlar að vistvænum og
hagkvæmum rekstri.
Frétt af vef Framkvæmdasýslu
ríkisins
Vistvæn bygging
Flatiron-byggingin setur svip sinn á
New York borg. NORDICPHOTOS/GETTY
Flatiron-byggingin er eitt elsta kennileiti New York-borgar, byggð árið 1902. Byggingin er
á 22 hæðum og tæplega 90 metra
há. Byggingin var ekki fyrsti skýja-
kljúfurinn og hún var aldrei hæsta
bygging New York-borgar en þrátt
fyrir það vakti hún strax mikla
athygli aðkomufólks og þá sérstak-
lega fyrir sérstakt útlit en bygg-
ingin var hönnuð af arkitektinum
Daniel Burnham. Byggingin hefur
meðal annars vakið athygli fyrir
lögun sína en séð ofan frá er hún í
laginu eins og þríhyrningur. Í dag
er byggingin mikið notuð í kvik-
myndum en í Spider Man mynd-
unum hýsir byggingin höfuð-
stöðvar dagblaðsins þar sem Peter
Parker vinnur sem ljósmyndari.
Straujárnshúsið
Teikning af Cecil-hótelinu í Los
Angeles, BNA. NORDICPHOTOS/GETTY
Ein af alræmdustu, ef svo má að orði komast, byggingum veraldar er án vafa Cecil-hót-
elið í Los Angeles. Margir telja að
reimt sé í hótelinu, sem var opnað
árið 1927, en fjöldi voveiflegra
atburða hefur átt sér stað innan
veggja hótelsins. Meðal þess sem
er nefnt er fjöldi sjálfsvíga meðal
gesta hótelsins, slys, of beldi og
morð. Þá segir sagan að Svarta
Dalían hafi sést á bar hótelsins
nokkrum dögum áður en hún var
myrt á óútskýrðan og hrottalegan
hátt árið 1947.
Raðmorðinginn og hrottinn
Richard Ramirez er svo einn þeirra
sem dvöldu á hótelinu til lengri
tíma árið 1985 og austurríski
raðmorðinginn Jack Unterweger
dvaldi þar árið 1991. Árið 2013
kom svo upp dularfullt mál þar
sem kanadískur stúdent að nafni
Elisa Lam fannst látin í vatnstanki
á þaki hótelsins en upptökur úr
öryggismyndavélum sýndu hana
hegða sér undarlega við lyftur
hótelsins. Lík Lam fannst eftir að
gestir hótelsins höfðu kvartað yfir
litlu vatnsflæði og einkennilegu
bragði af vatninu. Yfirvöld segja
dánarorsök hafa verið drukknun
en til eru ýmsar kenningar þeirra
sem efast um þá skýringu.
Hryllilegt hótel
Glerverksmiðja Hellu
Söluskrifstofa Smiðjuvegi 2,
200 Kópavogi
Sími 488 9000
samverk.is
Við sérsmíðum eftir máli, sjáum um
allar mælingar, útvegum festingar og
setjum upp, allt verkið á einni hendi.
Vönduð vinnubrögð.
Eigum líka sturtuskilrúm í algengum
stærðum á lager ásamt festingum
og þéttiefni.
Sandblásum gler og spegla.
Velkomin í sýningarsal okkar
að Smiðjuvegi 2 í Kópavogi
þar sem söluráðg jafar
taka vel á móti þér.
Íslensk framleiðsla í 50 ár
STURTUGLER
SEM PASSAR
FULLKOMLEGA