Fréttablaðið - 10.02.2020, Side 50
Eitt stærsta dæmið
um slík hús sem
við höfum unnið að er
10.000 fermetra flug-
skýli á Keflavíkurflug-
velli sem við unnum á
árunum 2016-2017. Fífan
í Kópavogi er líka úr
stálgrind frá okkur.
Sigurður Guðjónsson, forstöðumaður byggingardeildar, segir tíu manns starfa á deildinni.
„Þrír vinna við sölu, en hinir sjö
vinna við hönnun og teiknivinnu
fyrir límtréshúsin og steinullarein
ingarnar sem notaðar eru á húsin,“
segir hann.
Fyrirtækið vinnur náið með
arkitektum, byggingafræðingum
og verkfræðistofum. „Það sem við
erum að hanna og teikna er það
sem snýr að okkar framleiðslu,
límtrésburðarvirki og einingum.
Fyrirtækið byggir á yfir 30 ára
hönnunarreynslu á þessu sviði.
Við skilum ítarlegum teikn
ingum af burðarvirki og steinullar
einingum til byggingarfulltrúa.
Viðskiptavinir okkar fá síðan frá
okkur teikningasett ásamt magn
skrám fyrir allt efni og fylgihluti
sem fer í húsið.
Það hefur verið mikil ánægja
með þessi gögn sem við skilum frá
okkur fyrir þessar byggingar,“ segir
Sigurður.
Fjölbreyttar byggingar frá
fjárhúsum til íþróttahúsa
Byggingardeildin hefur tekið að sér
vinnu við mjög fjölbreyttar bygg
ingar. Allt frá fjárhúsum og fjósum
fyrir landbúnaðinn, frystigeymslur
og kæliklefa fyrir sjávarútveginn,
einnig íbúðarhús, íþróttahús,
iðnaðarhús og flugskýli svo eitt
hvað sé nefnt.
„Við tókum ákvörðun árið 2000
um að bjóða líka innflutt stálgrind
arhús til að geta þjónað viðskipta
vinum okkar betur. Við vorum oft
að fá beiðnir um mjög stór hús sem
við réðum ekki við með límtrés
burðarvirki. Eitt stærsta dæmið
um slík hús sem við höfum unnið
að er 10.000 fermetra flugskýli á
Keflavíkurflugvelli sem við unnum
á árunum 20162017. Fífan í Kópa
vogi er líka úr stálgrind frá okkur
og við höfum líka byggt vöruhús og
frystiklefa úr stálgrindum,“ segir
Sigurður.
Í dag skipta umhverfismál sífellt
meira máli. Sigurður segir að í Nor
egi sé dæmi um að húsbyggjendur
fái úthlutað kolefniskvóta fyrir
húsið. „Til að ná að uppfylla þennan
kvóta þarf oft að byggja úr timbri,
sem kemur betur út en ef byggt
væri úr steypu eða stáli. Við vorum
að ganga frá samningum við þýskt
fyrirtæki í síðasta mánuði um inn
flutning á krosslímdu límtré (CLT).
Við erum að byrja að bjóða það til
dæmis í íbúðarhús og milligólf í
iðnaðarhúsin.“
Áratuga reynsla og
fyrsta flokks þjónusta
Límtré Vírnet framleiðir límtré og steinullareiningar
á Flúðum, sem hafa verið notaðar í mjög fjölbreyttar
byggingar, allt frá fjárhúsum til íþróttahúsa.
Sigurður Guðjónsson, forstöðumaður byggingardeildar Límtrés Vírnets
hefur komið að vinnu við ýmsar tegundir bygginga. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGRTRYGGUR
Límtréð hefur verið vinsælt í hesthúsum af öllum stærðum.
Undanfarið hefur verið mikið byggt af iðnaðarhúsum sem hægt er að skipta upp í nokkur bil.
Hér sést hvernig húsinu er skipt upp með bilum frá Límtré Vírneti en
þarna á eftir að loka veggjunum.
Límtré er mikið notað í íþróttahús. Fyrirtækið er einnig með stálgrindur
Fyrirtækið gerði nýlega samning við þýskt fyrirtæki um innfluting á krosslímdu límtré (CLT). Byrjað er að bjóða það í íbúðarhús og milligólf.
fyrir stærri
hús.
22 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 M Á N U DAG U RBYGGINGARIÐNAÐURINN