Fréttablaðið - 10.02.2020, Page 51

Fréttablaðið - 10.02.2020, Page 51
Andri Daði Aðalsteinsson, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs Límtrés Vír- nets, segir að flestir fari þá leið að einangra byggingar að utan og mjög algengt er að nota síðan álklæðningar. „Munurinn á okkur og öðrum söluaðilum á þessum markaði er að við erum bæði innflutnings- aðilinn á öllu álefninu ásamt því að geta boðið alla vinnslu á efninu. Við höfum selt álklæðningar í áratugi en nýjungin er sú að nú bjóðum við upp á allar festingar sem þarf til uppsetningar á slíkum klæðningum sem og undirkerfi úr áli. Nú getur viðskiptavinurinn komið til okkar og fengið heildar- pakkann,“ segir Andri. Álklæðningar hafa þann kost að þær henta íslensku veður- fari vel. Þær ryðga ekki og þurfa sáralítið viðhald. „Það er því ekki að ástæðulausu að fólk velur álklæðningar í dag. Við búum á Íslandi þar sem er allra veðra von og umhverfið er víða saltríkt,“ segir Andri. „Við höfum haft þann vana á að senda blikksmiði fyrirtækisins á verkstað þegar undirkerfið er komið upp. Þetta gerum við til þess að fara yfir alla áfellusmíði, koma með tillögur að útfærsluatriðum ef þess er þörf og svo framvegis. Þetta er þjónusta sem menn hafa verið gríðarlega ánægðir með.“ Álklæðningarnar sem Límtré Vírnet býður upp á eru margs konar. „Við getum boðið upp á Álklæðningar fyrir alls kyns byggingar Andri Daði Aðalsteinsson segir fyrirtækið nýlega farið að bjóða upp á allar festingar sem þarf til að setja upp álkæðningar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Álklæðning- arnar eru af ýmsu tagi. Hér má sjá báruál með sléttplötu- klæðningu. Báruálið er vinsælt en það krefst mjög lítils viðhalds. Límtré Vírnet framleiðir undirkerfi úr áli fyrir álklæðn- ingar. Hægt er fá álklæðningarnar tilsniðnar svo þær séu tilbúnar til uppsetningar. Hér má sjá fallegt hús með sléttplötuklæðningu. Límtré Vírnet býður nú heildar- lausnir þegar kemur að ál- klæðningum fyrir allar gerðir bygg- inga, ásamt öllum fylgihlutum. það sem kallast kasettuklæðning og sléttplötuklæðning en það klassísk asta er alltaf báran. Við leggjum mikið upp úr því að þjónusta viðskiptavini okkar sem best og finna lausnir sem eru hag- kvæmar,“ segir Andri. „Þegar kemur að áfellusmíði þá fáum við allt okkar efni á rúllum og því smíðum við áfell- urnar í þeirri lengd sem viðskipta- vinurinn óskar eftir, allt upp í fjóra metra. Sé þess óskað tökum við einnig öll snið á áfellur í kringum glugga sem gerir uppsetningu mun fljótlegri og frágangur verður einnig mun fallegri. Öll fram- leiðsla á álklæðningum fer fram í blikksmiðju okkar í Borgarnesi og erum við með daglegar ferðir á milli Borgarness og Reykjavíkur. Undirkerfi fyrir álklæðningarnar og allar festingar eru svo á lager fyrirtækisins að Lynghálsi 2 þar sem við erum með bíl sem keyrir svo allt á verkstað sé þess óskað.“ XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXKYNNINGARBLAÐ 23 M Á N U DAG U R 1 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 BYGGINGARIÐNAÐURINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.