Fréttablaðið - 10.02.2020, Síða 56
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5055.
Mikilvægt að hver og einn finni
nám sem er áhugavert og spenn-
andi.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta-
og menningarmálaráðherra
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hanna Björg
Sveinbjörnsdóttir
Aðalgötu 5, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
miðvikudaginn 5. febrúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju,
föstudaginn 14. febrúar, kl. 13.
Sveinbjörn Halldórsson Ásdís Ingadóttir
Kristín Björg Halldórsdóttir Bjarni Helgason
Sólveig Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Benta Margrét Briem
sem lést á Hrafnistu í Laugarási
17. janúar, verður jarðsungin frá
Neskirkju fimmtudaginn 13. febrúar
klukkan 13. Blóm og kransar eru
vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Rauða krossinn og líknarfélög.
Ólafur Jón Briem Sóley Enid Jóhannsdóttir
Garðar Briem Elín Magnúsdóttir
Gunnlaugur Briem Hanna B. Marteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Guðfinna Snorradóttir
lést á heimili sínu í Torrevieja 17. janúar.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Ásta María Benónýsdóttir Styrmir Ingi Bjarnason
Ólafur Björn Benónýsson
Arnór Freyr og Birna Mjöll
Kára Dís, Krista Bríet og Hrannar Ben
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Salbjörg H. Norðdahl
fyrrverandi húsfreyja
Hólmi,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir
30. janúar, verður jarðsungin mánudaginn
10. febrúar frá Árbæjarkirkju kl. 14.00.
Karl H. Norðdahl Ásdís B. Ottesen
Þorvaldur S. Norðdahl
Erla Norðdahl
Eggert Norðdahl
Valur Þór Norðdahl Marta Kristín Halldórsdóttir
Heiða Björk Norðdahl Jón Jóhannesson
barnabörn og barnabarnabörn.
Sambýliskona mín og systir,
Bergþóra Magnúsdóttir
Hringbraut 42, Hafnarfirði,
andaðist á hjúkrunarheimilinu
Sólvangi 3. febrúar.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 13. febrúar kl. 13.
Gunnar G. Guðmundsson
Hallveig Magnúsdóttir
Fimmtán ár eru síðan Karl Bretaprins
og Camilla Parker-Bowles opinberuðu
trúlofun sína, 10. febrúar 2005. Þau
gengu í það heilaga síðar sama ár.
Þau áttu í fremur skammlífu ástar-
sambandi snemma á áttunda áratugn-
um en héldu síðan hvort í sína áttina.
Karl gekk að eiga hina ungu Díönu og
Camilla giftist Andrew Parker-Bowles.
Þau áttu tvö börn.
Sögusagnir komust á kreik um að
enn væri kært með þeim Karli og
Camillu meðan bæði voru enn í hjóna-
bandi og frægt er viðtalið við Díönu
prinsessu sem kvartaði undan mann-
mergð í hjónasænginni og vísaði þar til
meints sambands eiginmanns síns við
Camillu.
Karl og Díana prinsessa voru nýskilin
þegar hún lést í bílslysi árið 1996.
Þremur árum síðar sáust Camilla og
Karl fyrst opinberlega saman. Það
ár, 1999, lýsti Karl lýsti því yfir að
samband hans við Camillu væri óum-
semjanlegt. Camilla var þá skilin við
mann sinn.
Þau tilkynntu svo trúlofun sína 10.
febrúar 2005 og mættu það kvöld
saman til boðs í Windsorkastala og við
það tækifæri sýndi Camilla fjölmiðlum
trúlofunarhring sinn. Þau giftu sig í
apríl sama ár. – aá
Þ E T TA G E R Ð I S T: 10 . F E B R ÚA R 2 0 0 5
Karl Bretaprins og Camilla opinberuðu trúlofun sína
Karl og Camilla í boði í Windsorkastala.
Hjónin Jófríður Bene-diktsdóttir, kjóla- og klæðskerameistari, og Haf liði Aðalsteinsson sk ipa smíða meist a r i voru valin heiðursiðn-
aðarmenn ársins 2020 fyrir einstakt
framlag til íslenskrar þjóð- og iðnmenn-
ingar á árlegri Nýsveinahátíð Iðnaðar-
mannafélagsins í Reykjavík á laugar-
daginn.
Halldór Þ. Haraldsson, formaður Iðn-
aðarmannafélagsins í Reykjavík, segir
þau sérlega vandvirkt fagfólk sem hafi
verið iðnverki til sóma: „Að auki hafa
þau bæði, hvort á sinn hátt, haldið uppi
og miðlað áfram iðnþekkingu sem
skipar mikilvægan sess í menningar-
sögu okkar Íslendinga,“ segir Halldór.
„Jófríður hefur um árabil haldið uppi
heiðri íslenska þjóðbúningsins og kennt
námskeið í þjóðbúningagerð og Hafliði
er bátasmiður langt aftur í ættir og hefur
miðlað þeirri þekkingu og sögu áfram,“
segir Halldór og tekur dæmi um endur-
gerð merks súðbyrðings sem er eins og
bátur sem langafi Hafliða smíðaði árið
1890. Hefur hann verið tilnefndur til
heimsminjaskrár UNESCO.
Nýsveinahátíðin var haldin í fjór-
tánda sinn á laugardaginn en tilgangur
hennar er að veita ungum iðnaðar-
mönnum viðurkenningu fyrir framúr-
skarandi fagmennsku og efla virðingu
fyrir iðnnámi.
Á hátíðinni af henti forseti Íslands,
Guðni Th. Jóhannesson, verðlaun til 23
iðnnema úr 14 iðngreinum og sjö skól-
um víðs vegar um landið, sem heiðraðir
voru fyrir afburðaárangur á sveinsprófi.
„Iðnmenntun er verðmæt og eftirsótt
menntun enda er er hún ein af grunn-
stoðum af kastamikils atvinnulífs og
frábær valkostur fyrir ungt fólk í dag,“
segir Halldór. Hann segist stoltur af því
að úr hópi þeirra 23 sem fengu viður-
kenningu í ár eru ellefu konur og hefur
hlutfall þeirra aldrei verið hærra.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra, segist fagna því
að nemendum fjölgi sem innritast á
ákveðnar verk- og starfsnámsbrautir.
„Íslenskt samfélag þarf á iðnnemum
að halda og því erum við að fagna í dag.
Það er mikilvægt að hver og einn finni
nám sem er áhugavert og spennandi. Ég
óska heiðursiðnaðarmönnum innilega
til hamingju með nafnbótina. Þau eru
svo sannarlega vel að því komin,“ sagði
ráðherra í tilefni af hátíðinni.
adalheidur@frettabladid.is
Heiðursiðnaðarmenn
ársins 2020 eru hjón
Hjónin Jófríður Benediktsdóttir og Hafliði Aðalsteinsson eru heiðursiðnaðarmenn
ársins 2020. Þau voru heiðruð á Nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík.
Tuttugu og þrír iðnnemar fengu viðurkenningu fyrir afburðaárangur á sveinsprófi.
Hjörtur Guðnason, varaformaður Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík, Halldór Þ. Haraldsson, formaður, Jófríður Benedikts-
dóttir og Hafliði Aðalsteinsson (heiðursiðnaðarmenn) og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. MYND/MOTIV, JÓN SVAVARSSON
1 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT