Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.02.2020, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 10.02.2020, Qupperneq 56
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055. Mikilvægt að hver og einn finni nám sem er áhugavert og spenn- andi.  Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hanna Björg Sveinbjörnsdóttir Aðalgötu 5, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, miðvikudaginn 5. febrúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 14. febrúar, kl. 13. Sveinbjörn Halldórsson Ásdís Ingadóttir Kristín Björg Halldórsdóttir Bjarni Helgason Sólveig Stefánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, Benta Margrét Briem sem lést á Hrafnistu í Laugarási 17. janúar, verður jarðsungin frá Neskirkju fimmtudaginn 13. febrúar klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Rauða krossinn og líknarfélög. Ólafur Jón Briem Sóley Enid Jóhannsdóttir Garðar Briem Elín Magnúsdóttir Gunnlaugur Briem Hanna B. Marteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, Guðfinna Snorradóttir lést á heimili sínu í Torrevieja 17. janúar. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Ásta María Benónýsdóttir Styrmir Ingi Bjarnason Ólafur Björn Benónýsson Arnór Freyr og Birna Mjöll Kára Dís, Krista Bríet og Hrannar Ben Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Salbjörg H. Norðdahl fyrrverandi húsfreyja Hólmi, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir 30. janúar, verður jarðsungin mánudaginn 10. febrúar frá Árbæjarkirkju kl. 14.00. Karl H. Norðdahl Ásdís B. Ottesen Þorvaldur S. Norðdahl Erla Norðdahl Eggert Norðdahl Valur Þór Norðdahl Marta Kristín Halldórsdóttir Heiða Björk Norðdahl Jón Jóhannesson barnabörn og barnabarnabörn. Sambýliskona mín og systir, Bergþóra Magnúsdóttir Hringbraut 42, Hafnarfirði, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sólvangi 3. febrúar. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 13. febrúar kl. 13. Gunnar G. Guðmundsson Hallveig Magnúsdóttir Fimmtán ár eru síðan Karl Bretaprins og Camilla Parker-Bowles opinberuðu trúlofun sína, 10. febrúar 2005. Þau gengu í það heilaga síðar sama ár. Þau áttu í fremur skammlífu ástar- sambandi snemma á áttunda áratugn- um en héldu síðan hvort í sína áttina. Karl gekk að eiga hina ungu Díönu og Camilla giftist Andrew Parker-Bowles. Þau áttu tvö börn. Sögusagnir komust á kreik um að enn væri kært með þeim Karli og Camillu meðan bæði voru enn í hjóna- bandi og frægt er viðtalið við Díönu prinsessu sem kvartaði undan mann- mergð í hjónasænginni og vísaði þar til meints sambands eiginmanns síns við Camillu. Karl og Díana prinsessa voru nýskilin þegar hún lést í bílslysi árið 1996. Þremur árum síðar sáust Camilla og Karl fyrst opinberlega saman. Það ár, 1999, lýsti Karl lýsti því yfir að samband hans við Camillu væri óum- semjanlegt. Camilla var þá skilin við mann sinn.  Þau tilkynntu svo trúlofun sína 10. febrúar 2005 og mættu það kvöld saman til boðs í Windsorkastala og við það tækifæri sýndi Camilla fjölmiðlum trúlofunarhring sinn. Þau giftu sig í apríl sama ár. – aá Þ E T TA G E R Ð I S T: 10 . F E B R ÚA R 2 0 0 5 Karl Bretaprins og Camilla opinberuðu trúlofun sína Karl og Camilla í boði í Windsorkastala. Hjónin Jófríður Bene-diktsdóttir, kjóla- og klæðskerameistari, og Haf liði Aðalsteinsson sk ipa smíða meist a r i voru valin heiðursiðn- aðarmenn ársins 2020 fyrir einstakt framlag til íslenskrar þjóð- og iðnmenn- ingar á árlegri Nýsveinahátíð Iðnaðar- mannafélagsins í Reykjavík á laugar- daginn. Halldór Þ. Haraldsson, formaður Iðn- aðarmannafélagsins í Reykjavík, segir þau sérlega vandvirkt fagfólk sem hafi verið iðnverki til sóma: „Að auki hafa þau bæði, hvort á sinn hátt, haldið uppi og miðlað áfram iðnþekkingu sem skipar mikilvægan sess í menningar- sögu okkar Íslendinga,“ segir Halldór. „Jófríður hefur um árabil haldið uppi heiðri íslenska þjóðbúningsins og kennt námskeið í þjóðbúningagerð og Hafliði er bátasmiður langt aftur í ættir og hefur miðlað þeirri þekkingu og sögu áfram,“ segir Halldór og tekur dæmi um endur- gerð merks súðbyrðings sem er eins og bátur sem langafi Hafliða smíðaði árið 1890. Hefur hann verið tilnefndur til heimsminjaskrár UNESCO. Nýsveinahátíðin var haldin í fjór- tánda sinn á laugardaginn en tilgangur hennar er að veita ungum iðnaðar- mönnum viðurkenningu fyrir framúr- skarandi fagmennsku og efla virðingu fyrir iðnnámi. Á hátíðinni af henti forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, verðlaun til 23 iðnnema úr 14 iðngreinum og sjö skól- um víðs vegar um landið, sem heiðraðir voru fyrir afburðaárangur á sveinsprófi. „Iðnmenntun er verðmæt og eftirsótt menntun enda er er hún ein af grunn- stoðum af kastamikils atvinnulífs og frábær valkostur fyrir ungt fólk í dag,“ segir Halldór. Hann segist stoltur af því að úr hópi þeirra 23 sem fengu viður- kenningu í ár eru ellefu konur og hefur hlutfall þeirra aldrei verið hærra. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menn- ingarmálaráðherra, segist fagna því að nemendum fjölgi sem innritast á ákveðnar verk- og starfsnámsbrautir. „Íslenskt samfélag þarf á iðnnemum að halda og því erum við að fagna í dag. Það er mikilvægt að hver og einn finni nám sem er áhugavert og spennandi. Ég óska heiðursiðnaðarmönnum innilega til hamingju með nafnbótina. Þau eru svo sannarlega vel að því komin,“ sagði ráðherra í tilefni af hátíðinni. adalheidur@frettabladid.is Heiðursiðnaðarmenn ársins 2020 eru hjón Hjónin Jófríður Benediktsdóttir og Hafliði Aðalsteinsson eru heiðursiðnaðarmenn ársins 2020. Þau voru heiðruð á Nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík. Tuttugu og þrír iðnnemar fengu viðurkenningu fyrir afburðaárangur á sveinsprófi. Hjörtur Guðnason, varaformaður Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík, Halldór Þ. Haraldsson, formaður, Jófríður Benedikts- dóttir og Hafliði Aðalsteinsson (heiðursiðnaðarmenn) og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. MYND/MOTIV, JÓN SVAVARSSON 1 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.