Fréttablaðið - 10.02.2020, Page 59

Fréttablaðið - 10.02.2020, Page 59
VIÐ VILJUM GEFA SEM FLESTUM TÆKIFÆRI OG UMSÆKJENDUR GETA SENT MYNDIR SÍNAR INN Á AÐRAR HÁTÍÐIR HÉRLENDIS EÐA JAFNVEL SÝNT Á EIGIN VEGUM. mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU AFMÆLISKRINGLUNNI - fyrir 25-30 manns PREN TU N .IS Kvikmyndafólk getur nú sent inn myndir á Sprettfisk, stutt-m y n d a k e p p n i S t o c k f i s h k v i k-myndahátíðarinnar. Umsóknarfrestur er til 20. febrúar og umsóknir skal senda á stock- fish@stockfishfestival.is. Rósa Ásgeirsdóttir er dagskrár- og viðburðastjóri Stockfish, en hátíðin sjálf verður haldin í mars. „Með keppninni er verið að skapa tæki- færi fyrir ungt kvikmyndagerðar- fólk og fagna því besta sem er í gangi í kvikmyndagerð. Við höfum verið í samstarfi við Kukl sem veitir verð- launin, sem eru einnar milljónar króna úttekt í formi tækjaleigu á kvikmyndabúnaði.“ Spurð hverju stuttmyndakeppn- in hafi skilað segir Rósa: „Þarna er mjög gott tækifæri fyrir unga kvik- myndagerðarmenn og það kostar ekkert að sækja um. Sex myndir eru valdar og ein þeirra vinnur verð- launin, en allar sex eru í samstarfi við Íslandsstofu sendar á Taste of Iceland, viðburði í Norður-Ameríku og Kanada. Þannig er þessi keppni viss stökkpallur fyrir kvikmynda- gerðarfólk. Eftir að hafa komist inn á Stockfish opnast möguleikar fyrir f leiri hátíðir. Myndin sem vann í fyrra, XY eftir Önnur Karín Lárus- dóttur, var til dæmis sýnd á níu kvikmyndahátíðum í kjölfarið.“ Breytt skilyrði Rósa segir fjölda umsókna berast á hverju ári. „Í ár breyttum við skil- yrðum. Við höfðum sett skilyrði um að myndirnar yrðu að vera Íslandsfrumsýndar hjá okkur en höfum ákveðið að fella það skilyrði niður. Við viljum gefa sem flestum tækifæri og umsækjendur geta sent myndir sínar inn á aðrar hátíðir hérlendis eða jafnvel sýnt á eigin vegum, en samt tekið þátt í þessari keppni. Myndirnar verða að vera innan við 30 mínútur að lengd og vera gerðar árið 2019 eða seinna. Ef myndin er á íslensku þarf að texta hana á ensku því við erum með alls konar áhorfendur og dómnefndir eru jafnvel skipaðar erlendum ein- staklingum.“ Tengslanet sköpuð Stockfish kvikmyndahátíðin verð- ur síðan haldin 12.- 22. mars. „Þetta er alþjóðleg kvikmyndahátíð og við leggjum áherslu á að fá til landsins nýjar myndir sem hafa vakið mikla athygli á liðnu ári. Þetta eru myndir sem hafa verið sýndar á stórum kvikmyndahátíðum víðs vegar um heim og ef við myndum ekki fá þær á hátíðina gætu Íslendingar ekki séð þær í bíó.“ Meðal mynda sem verða sýndar á Stockfish eru Monos frá Kólumbíu og The Pained Bird frá Tékk landi sem gerð er eftir hinni frægu sögu Jerzy Kosinski frá Tékk- landi. Báðar fjalla um stríð og átök en þó á afar ólíka vegu. „Stockfish er líka bransahátíð,“ segir Rósa. „Við bjóðum kvik- my ndagerðar fólk i f rá öðr um löndum sem heldur masterklassa og alls kyns viðburðir eru haldnir til að opna umræðu, efla iðnaðinn og skapa tengslanet. Þetta eru við- burðir sem eru opnir öllum og hvetjum við sérstaklega ungt kvik- myndagerðarfólk til að nýta tæki- færið og koma og taka þátt.“ Tækifæri fyrir ungt kvikmyndagerðarfólk Stuttmyndakeppni Stockfish kvikmyndahátíðarinnar er stökkpallur fyrir vinningshafann. Rósa Ásgeirs- dóttir er dagskrár- og viðburðastjóri Stockfish. Hún segir áherslu lagða á að fá til landsins nýjar myndir. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Rósa Ásgeirsdóttir, dagskrár- og viðburðarstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Nú er vorönn Sveif lustöðv-arinnar að hefjast. Kennd eru grunn- og framhalds- námskeið í sveifludansinum Lindy hop. Tímarnir eru í Iðnó og almenn danskvöld eru eftir kennslu. Danskvöldin eru á dagskrá alla mánudaga milli klukkan 21.00 og 22.30 og ekkert kostar inn. Þessa önnina hefur skólinn fengið til sín gestakennara, hinn margrómaða rússneska stjörnu- dansara Yönu Sanamyantz. Hún mun einnig kenna á hinni árlegu alþjóðlegu sveif luhátíð Lindy on Ice, sem Sveiflustöðin stendur fyrir um næstu helgi, eða frá 13. til 16. febrúar, á Flúðum og í Reykjavík. Sveif lustöðin var stofnuð árið 2018 af Sigurði Helga Oddssyni píanóleikara sem kennir Lindy hop og skylda sveif ludansa á grunn-, mið- og framhaldsstigi. – gun Vorönn Sveiflustöðvarinnar Afi allra swing-dansa Lindy hop er afró-amerískur dans sem þróaðist í Harlem í New York-borg upp úr 1927. Hann var sambland af mörgum dönsum svo sem djassi, tappi, breakaway og Charleston. Lindy hop þróaðist sam- hliða djasstónlistinni og hann er talinn vera afi allra swing- dansa. Honum er lýst sem djassi eða götudansi. Heimild: Wikipedia Það er mikið fjör á danskvöldm þar sem sveiflan ræður ríkjum. M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15M Á N U D A G U R 1 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.