Fréttablaðið - 28.02.2020, Qupperneq 14
2 8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
GOLF „Þetta er nýtt skipulag hjá
Áskorendamótaröðinni, að hafa
þessi mót í janúar í Suður-Afríku.
Venjulega hefur mótaröðin byrjað
um vorið. Fyrir vikið fékk maður
styttri tíma í endurhæfingu eftir
langt tímabil í fyrra. Þetta var
vissulega svolítið sérstakt,“ sagði
Guðmundur Ágúst Kristjánsson
kylfingur þegar Fréttablaðið ræddi
við hann um sérstaka mótaröðun á
Áskorendamótaröð Evrópu sem var
að hefjast í febrúar.
Guðmundur, sem er ríkjandi
Íslandsmeistari í höggleik, og Har-
aldur Franklín leika fyrir hönd GR
og eru með keppnisrétt á Áskor-
endamótaröð Evrópu á þessu tíma-
bili, næststerkustu mótaröð Evr-
ópu. Árið hófst á þremur mótum
á þriggja vikna tímabili í Suður-
Afríku þar sem Guðmundur Ágúst
náði niðurskurði í einu þeirra. Núna
tekur við tæplega þriggja mánaða
hlé áður en keppni hefst á ný í Tékk-
landi í maí eftir ellefu vikna hlé.
Yfir sumartímann eru 3-4 mót
á mánuði með tilheyrandi ferða-
lögum og er því þétt dagskrá hjá
íslensku kylfingunum á þessu ári.
„Maður reynir að enda öll tíma-
bil á góðri hvíld, fara eitthvert í frí
og hlaða batteríin en það voru bara
einhverjar 2-3 vikur í þetta skiptið
áður en æfingar tóku við á ný. Fyrir
vikið kom maður aðeins ryðgaður
í mótin í Suður-Afríku,“ sagði Guð-
mundur þegar Fréttablaðið spurði
út í stuttan undirbúningstíma.
Guðmundur öðlaðist þátttöku-
rétt á Áskorendamótaröðinni með
góðum árangri á skandinavísku
mótaröðinni, Ecco Nordic Golf
Tour, í fyrra. Hann segist ætla að
taka þátt í einhverjum mótum
á mótaröðinni næstu vikurnar,
meðal annars að verja titilinn á Nor-
dic PGA Catalunya Resort Cham-
pionship mótinu. „Ég er á leiðinni
til Spánar og tek þátt í einhverjum
mótum næstu vikurnar, reyni alla-
vega að verja titilinn á Nordic PGA
Catalunya.“
Guðmundur Ágúst er í sambandi
með Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur,
Íslandsmeistara síðustu tveggja ára
og atvinnukylfingi úr GK. Guðrún
Brá er þessa dagana að keppa í Ástr-
alíu á Evrópumótaröð kvenna. Eftir
það taka við mót í Suður-Afríku og
Sádi-Arabíu hjá Guðrúnu. Starfi
þeirra fylgir mikið af ferðalögum.
„Þetta er ekkert auðvelt og krefst
þolinmæði. Ég sá hana síðast í byrj-
un árs og ég veit ekki hvenær við
sjáumst næst,“ sagði Guðmundur,
aðspurður út í fjarlægðina. – kpt
Kom örlítið ryðgaður inn í þessi mót í Suður-Afríku
Guðmundur Ágúst slær af teig á Spáni fyrr í vetur. MYND/GETTY
Guðmundur og Harald-
ur eru þriðju og fjórðu
íslensku kylfingarnir sem
eru með þátttökurétt á
Áskorendamótaröð Evrópu.
RAFÍÞRÓTTIR Þegar tæpt ár er liðið
síðan Fylkir, FH, KR og Ármann riðu
á vaðið og stofnuðu rafíþróttadeild
innan sinna raða fyrst íslenskra
félaga segir Ólafur Hrafn Steinars-
son, formaður Rafíþróttasamtaka
Íslands, að starfið sé að gefa vel af
sér. Foreldrar krakkanna sem æfa
hjá Ólafi hjá Ármanni beri því vel
söguna. Rafíþróttsamtökin eru
komin í samstarf við KSÍ og áttu
hlutdeild í því að stofnað var sér-
stakt landslið í Pro Evolution Socc-
er. Þá stendur til að setja á laggirnar
landslið Íslands sem fer á HM í FIFA
síðar á þessu ári eftir Íslandsmótið
þar sem framtíðar landsliðsmenn
verða fundnir. Það kemur eftir að
keppt var annað árið í röð í raf-
íþróttum á Reykjavíkurleikunum
fyrr á þessu ári.
Ármann er með stærstu deild
landsins þar sem rúmlega sextíu
krakkar taka virkan þátt í æfingum
að sögn Ólafs.
„Við erum að ég held stærsta deild
landsins með rúmlega 60 krakka á
aldrinum 10-16 ára í Ármanni og
það eru alltaf að berast f leiri fyrir-
spurnir. Við náum varla að svara
eftirspurninni. Það hefur aukist að
það komi eftirspurnir frá hópum
utan þessa aldurshóps, bæði eldri
og yngri sem við viljum auðvitað
svara en höfum ekki tök á að svo
stöddu,“ segir Ólafur, sem segist
hafa fengið jákvæð viðbrögð frá
foreldrum iðkendanna.
„Ok kur hafa borist margar
jákvæðar reynslusögur frá foreldr-
unum. Þau eru að þakka okkur
fyrir og segja að þetta skipti börnin
þeirra miklu máli. Það er eitthvað
sem við viljum ekki taka frá þessum
krökkum eftir að þau hafa kynnst
umhverfi þar sem þeim líður vel.
Það sýnir okkur að þetta er að hafa
jákvæð áhrif, krakkarnir sem koma
til okkar eru að verða virkari og
standa sig betur í skóla, spila minna
og stunda meiri líkamlega hreyf-
ingu. Þetta eru þeir hlutir sem við
viljum ýta undir. Við erum í raun
að setja tölvuleikjaspilun í nýjan
búning og víkka sjóndeildarhring
þeirra sem vilja spila.“
Eins og víða er eitt af vandamál-
unum peningaöf lun. Aðspurður
segist Ólafur að einhverju leyti
skilja örðugleikana þegar kemur
að því að fjármagna rafíþróttir en
óttast um framhald starfsins ef ekki
verður gert betur.
„Það var jákvætt þegar Reykja-
víkurborg sagðist ætla að koma að
stofnun rafíþróttadeilda en ég veit
ekki hversu mikið af því sem áætlað
var að leggja í rafíþróttadeildir skil-
aði sér í raun og veru. Það eru mörg
félög sem eru að berjast við að fjár-
magna deildirnar þrátt fyrir meiri
áhuga á rafíþróttadeildinni en á
öðrum deildum innan félaganna,“
segir Ólafur og heldur áfram:
„Rafíþróttir eru enn á þeim stað
að æfingagjöld þurfa að standa
undir aðstöðunni, húsnæðinu og
þjálfurunum. Með því er verið að
setja mikla pressu á herðar þeirra
sem eru að vinna í þessu en ég skil
að það er ekki auðfengið að fá styrk
frá borginni. Það eru hinir ýmsu
verkferlar sem fara þarf eftir.“
Ólafur óttast að rafíþróttadeildir
verði ekki langlífar innan íþrótta-
félaga án aðkomu ríkis eða sveitar-
félaganna.
„Ég á ekki von á því að það
breytist í ár. Í raun má segja að ég
hafi smá áhyggjur af því að þetta
geti gert út af við rafíþróttadeildir
innan tveggja ára. Ef þetta gengur
illa rekstrarlega séð þá er ekki hægt
að sakast við íþróttafélögin, að
þau geti ekki fjármagnað starfið. Í
öðrum íþróttum eru stjórnvöld að
aðstoða við að byggja upp aðstöðu,“
segir Ólafur og tekur sem dæmi að
rafíþróttadeild Ármanns æfði í
tölvuleikjasetrinu Ground Zero.
„Við fáum afnot af góðri aðstöðu
þar en við viljum koma upp okkar
eigin æfingasvæði í félagsheimili
Ármanns þar sem við getum einnig
sett upp svæði til hreyfingar.“
kristinnpall@frettabladid.is
Fáum jákvæð viðbrögð frá foreldrum
Þegar tæpt ár er liðið frá stofnun rafíþróttadeilda hjá fjórum félögum á Íslandi segir formaður Rafíþróttasamtaka Íslands að við-
brögð foreldra og barna hafi verið jákvæð. Skortur á fjármagni gæti ógnað starfi deildanna sem reiða sig eingöngu á æfingagjöld.
Keppt hefur verið í rafíþróttum á Reykjavíkurleikunum undanfarin tvö ár sem átti þátt í því að auka sýnileika íþróttagreinarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Okkur hafa borist
margar jákvæðar
reynslusögur frá foreldr-
unum. Þau eru að þakka
okkur fyrir og segja að þetta
skipti börnin þeirra miklu
máli.
Ólafur Hrafn Steinarsson, formaður
Rafíþróttasamtaka Íslands