Fréttablaðið - 28.02.2020, Page 20
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Fyrirtæki sem sýna samfélags-ábyrgð taka ábyrgð á þeim áhrifum sem rekstur þeirra
hefur á umhverfið, samfélagið
og starfsfólk þess. Þannig stuðla
fyrirtækin að betri heimi fyrir alla,
en um leið getur það haft margvís-
legan ávinning í för með sér fyrir
fyrirtæki að sýna samfélagsábyrgð.
Nú til dags er fólk sem er að
leita að atvinnu líka að skoða
siðferði fyrirtækja og það að sýna
samfélagsábyrgð getur dregið
gott starfsfólk að fyrirtækjum og
haldið þeim þar. Nielsen-könnun
frá 2014 sem náði til yfir 30 þúsund
þátttakenda í 60 löndum um allan
heim komst að þeirri niðurstöðu
að tveir af hverjum þremur vilja
frekar vinna fyrir fyrirtæki sem
sýnir samfélagsábyrgð. Aðrar
kannanir hafa komist að þeirri
niðurstöðu að fólk vinnur lengur
hjá fyrirtækjum ef það finnur að
það sé að vinna að einhverju mark-
miði. Þetta sama starfsfólk er líka
miklu líklegra til að mæla með og
auglýsa fyrirtækin sem þau starfa
fyrir.
Samfélagsábyrgð ýtir líka undir
vinsældir meðal neytenda og og
eykur hollustu viðskiptavina.
Samkvæmt áðurnefndri Nielsen-
könnun er yfir helmingur fólks til-
búið til að borga aðeins meira fyrir
vöru eða þjónustu frá fyrirtæki
sem hefur jákvæð áhrif á samfélag-
ið og umhverfið. Fólk er líka mun
líklegra til að stunda viðskipti við
fyrirtæki sem láta gott af sér leiða.
Þannig að samfélagsábyrgð hjálpar
líka í markaðssetningu.
Fyrirtæki sem sýna sam-
félagsábyrgð geta líka laðað að
sér fjárfesta og það að hafa sýnt
samfélagsábyrgð getur skapað
fyrirtæki velvild sem getur komið
að miklu gagni ef ímynd þess bíður
hnekki.
Samfélagsábyrgð
minni fyrirtækja
Það eru ekki bara stórfyrirtæki
sem ættu að huga að samfélags-
ábyrgð, minni fyrirtæki geta líka
sýnt hana, þó það sé ekki á jafn
stórtækan hátt. Þannig geta minni
fyrirtæki aukið tengsl sín við sam-
félagið, sem getur verið þeim mjög
mikilvægt.
Yfirleitt sýna minni fyrirtæki
samfélagsábyrgð í nærumhverfi
sínu. Það er vinsælt að styðja
á einhvern hátt við menntun,
umhverfismál, efnahagsþróun,
ungmennastarf, góðgerðastarf-
semi eftir hamfarir, menningu eða
listir, svo nokkur dæmi séu nefnd.
Það er svo undir fyrirtækjum
komið að ákveða á hvaða hátt þau
vilja leggja sitt af mörkum.
Þegar búið er að velja málefni
getur verið góð hugmynd að til-
einka dag málefninu og jafnvel að
láta starfsfólk sinna einhvers konar
sjálfboðavinnu í tengslum við það,
svo fólk geti kynnt sér málefnið
vandlega og séð hvernig það getur
hjálpað. Það eru svo ótal leiðir til
að safna fé og leggja alls kyns mál-
efnum lið og láta fyrirtækið þannig
stuðla að betra samfélagi.
Samfélagsábyrgð hefur marga kosti
Þegar fyrirtæki sýna samfélagsábyrgð geta þau bætt stöðu sína á ýmsan hátt um leið og þau
bæta samfélagið. Þau laða að sér og halda í gott fólk og auka vinsældir sínar meðal neytenda.
Fyrirtæki af
öllum stærðum
og gerðum geta
sýnt samfélags-
ábyrgð á ýmsan
hátt, meðal
annars með
umhverfis-
vernd. Það
bætir heiminn
og gagnast
fyrirtækjunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Fyrirtæki sem sýna
samfélagsábyrgð
geta líka laðað að sér
fjárfesta og það að hafa
sýnt samfélagsábyrgð
getur skapað fyrirtæki
velvild.
4 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RSAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA
Sigrún Ósk
SIgurðardóttir
er aðstoðar-
forstjóri ÁTVR.
Myndin fyrir
neðan sýnir
samanburð á
kolefnisspori
mismunandi
umbúða miðað
við einn lítra.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIG-
TRYGGUR ARI
Samfélagsleg ábyrgð er í kjarna fyrirtækisins, segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðar-
forstjóri ÁTVR.
„Við leggjum mikla áherslu á
skilríkjaeftirlit og umhverfismál
en fleiri þættir fá að sjálfsögðu
líka athygli. Við færum grænt
bókhald og eigum langa sögu í
að setja okkur markmið og mæla
árangur. Ársskýrslur frá árinu
2012 uppfylla skilyrði GRI (Global
Reporting Initiative) og eru þannig
í raun sjálf bærniskýrsla sem gefur
góða mynd af rekstrinum.“
Samfélagsleg ábyrgð er ekki nýtt
hugtak í rekstri ÁTVR, en fyrst var
talað um samfélagslega ábyrgð í
stefnu ÁTVR árið 2001.
„Skilríkjaeftirlit er einn mikil-
vægasti þátturinn, en því er ætlað
að tryggja að allir viðskiptavinir
hafi náð 20 ára aldri. Umhverfis-
mál eru einnig vissulega fyrirferð-
armikill þáttur og mjög ánægju-
legt að markmið um 93 prósent
endurvinnsluhlutfall náðist á
síðasta ári. Á þessu ári er mark-
miðið sett á 94 prósent. Þá skrifaði
ÁTVR undir loftslagsyfirlýsingu
Festu og Reykjavíkurborgar og
hefur sett sér markmið til ársins
2030 um að draga úr losun um
40 prósent og minnka myndun
úrgangs,“ upplýsir Sigrún Ósk.
Öll bein losun frá starfsemi
ÁTVR er kolefnisjöfnuð hjá Kolviði
og Votlendissjóði.
„Við trúum því að ekki sé hægt
Við viljum vera góð fyrirmynd
Stefna ÁTVR er skýr; að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði
samfélagsábyrgðar. Markmiðið er alltaf að gera betur og horft er til Heimsmarkmiða SÞ.
að horfa á samfélagslega ábyrgð
sem einangrað verkefni, heldur
er þetta samofið öllum þáttum í
rekstrinum. ÁTVR leggur sig fram
um að hugsa vel um mannauð
fyrirtækisins, vinnustaðurinn
einbeitir sér að heilsueflandi
aðgerðum fyrir starfsfólk, bæði
með fræðslu og reglulegri heilsu-
farsskoðun, og það er ein birting-
armynd samfélagslegrar ábyrgðar.
Einnig hefur jafnlaunakerfi verið
KASSI
3 l
VENJULEGT GLER
0,75 l / 540 g
LÉTTGLER
0,75 l / 420 g
PLAST
0,75 l
POKI
1,5 l
FERNA
1 l
70675 525 245 96 85
innleitt og vottað,“ segir Sigrún.
„Við höfum hvatt viðskipta-
vini til að sleppa plastpokanum
og boðið upp á fjölbreytt úrval af
fjölnota pokum á mjög hagstæðu
verði. Viðskiptavinir hafa tekið
þessu vel og það er von okkar að
innan tíðar verði allir einnota
burðarpokar úr sögunni.“
Þegar litið er til aðfangakeðju
áfengis hefur ÁTVR á undan-
förnum árum verið í samstarfi
við áfengiseinkasölur á Norður-
löndum.
„Sameiginlega hafa fyrirtækin
látið gera lífsferilsgreiningu og
rannsókn á umhverfisáhrifum
umbúða. Samkvæmt rannsókn-
inni eru umhverfisáhrifin mest
af umbúðum vörunnar og vegur
glerið þar mest. Framleiðsla á gler-
flöskum þarfnast mun meiri orku
en framleiðsla annarra umbúða.
Margir framleiðendur hafa kosið
að nota svokallað léttgler fyrir vín.
Léttgler er skilgreint sem 420 g eða
léttari, miðað við 750 ml flösku.
Algeng þyngd á hefðbundnu gleri
er 540 g.,“ útskýrir Sigrún Ósk.
ÁTVR hefur nú birt á heimasíðu
sinni, vinbudin.is, þyngd umbúða
á flestum léttvínstegundum og
áætlað kolefnisspor.
„Við vitum ekki um aðra sem
hafa birt sambærilegar upplýs-
ingar fyrir viðskiptavini. Upp-
lýsingunum er ætlað að gefa við-
skiptavinum val og upplýsingar
um umhverfisáhrif þeirrar vöru
sem þeir velja að kaupa,“ upplýsir
Sigrún Ósk og í framtíðinni munu
koma fleiri vöruflokkar með
þessum gagnlegu upplýsingum
í baráttunni við loftslagsbreyt-
ingar.
„Markmiðið er alltaf að gera
betur og horfa til f leiri þátta á sviði
samfélagsábyrgðar, meðal annars
með því að kortleggja umhverf-
isáhrif af starfseminni í heild
um leið og horft er til áherslna í
Heimsmarkmiðum Sameinuðu
þjóðanna“ segir Sigrún Ósk að
lokum.