Fréttablaðið - 28.02.2020, Side 21

Fréttablaðið - 28.02.2020, Side 21
Gunnar Egill Sigurðsson segir Nettó leggja mikla áherslu á umhverfismál. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á að minnka sóun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Nettó hefur sett sér metn-aðarfulla umhverfisstefnu sem endurspeglast í allri starfsemi fyrirtækisins. Stefnan var unnin þvert á allt fyrirtækið, þar sem starfsmenn tóku þátt í að móta þær leiðir sem farið er eftir í dag. Allt frá árinu 2007 hefur verið lögð gríðarleg áhersla á að draga úr því sorpi sem til fellur frá verslunum Nettó. Á þessu ári voru þau markmið sett að minnka sorpið um 50 tonn árlega til við- bótar við þau 200 tonn sem þegar er búið að minnka um. Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmda- stjóri verslunarsviðs Samkaupa sem reka Nettó-verslanirnar, segir að til þess að þessi metnaðar- fullu markmið náist sé mikilvægt að panta inn í takt við söluspár þannig að rýrnun verði sem minnst. Minni sóun „Við höfum verið með átak í gangi frá árinu 2015 sem kallast Minni sóun og virkar sem nokkurs konar afsláttarkerfi. Ef sala á ákveðinni vöru er ekki takt við væntingar okkar þá getur starfsfólkið veitt afslætti af vörunum til að forða þeim frá rýrnun og að þær endi í ruslinu eða lífrænni endur- vinnslu,“ segir Gunnar Egill. „Við erum því með þrjá verðf lokka. Nýjasta varan er seld á fullu verði en afslátturinn eykst síðan eftir því sem varan nálgast síðasta söludag.“ Gunnar Egill segir að langmesta rýrnunin sé á ferskvöru eins og kjöti og fiski, grænmeti, ávöxtum og mjólkurvörum. „Þar liggja 50-60% af allri rýrnuninni. En við settum okkur það metnaðar- fulla markmið að eyða allri sóun í kjötdeildum – að það verði engin rýrnun þar. Þá þarf að panta í takt við söluna en starfsfólk er sífellt að bæta við sig þekkingu og reynslu í því og get ég í sann- leika sagt að þau þekkja íslenskan markað orðið mjög vel. Svo þegar við erum að prófa nýjar vörur og nálganir, þá getur það hjálpað til að gefa afslátt af eldri vöru til að ná þessu markmiði. Við erum með slagorðið Kauptu í dag – neyttu í dag. Kúnninn á þá til dæmis kost á að kaupa hakk sem rennur út daginn eftir á 50% afslætti. Við viljum það frekar en að hakkið fari í ruslið.“ Lágmarka neikvæð áhrif Nettó leggur áherslu á að lág- marka neikvæð umhverfisáhrif af starfseminni og nýta auðlindir eins og kostur er. Umhverfisstefna félagsins nær til allrar starfsem- innar. „Við viljum að starfsmenn Nettó ætlar að útrýma sóun á kjöti Vörur sem nálgast síðasta söludag eru seldar á góðum afslætti. Þetta eru þau heimsmarkið sem Nettó leggur sérstaka áherslu á. Útrýma einnota plasti úr verslunum Auk þess að draga úr sorpi er stefna Nettó að útrýma öllu einnota plasti eins og bollum, rörum, plasti utan af grilluðum kjúklingi og bakarísvörum svo dæmi séu tekin. Eins hefur fyrirtækið sett sér það markmið að fylgja heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun auk þess sem allt starfsfólk fyrirtækisins kom saman í haust og setti sér tíu umhverfis markmið. Umhverfismarkmið Nettó 2020 n Minnka sorp frá verslunum um 50 tonn til viðbótar við þau 200 tonn sem sorpið hefur þegar minnkað um. n Útrýma sóun í kjötdeildum. n Kolefnisjafna Samkaup hf. n Innleiða plastkassa í net- verslun og minnka selda burðarpoka um 50%. n Útrýma einnota plasti úr öllum verslunum (bollum, rörum o.þ.h.). n Útrýma plasti utan af grill- uðum kjúklingi. n Útrýma plasti í bakað á staðnum. n Útrýma prentuðum kvitt- unum úr verslunum. n Minnka útsenda reikninga um 50%. n Koma upp sorpflokkun á öllum starfsstöðvum. Tugmilljóna styrkir til samfélagsverkefna Nettó leggur áherslu á sam- félagslega ábyrgð í allri starf- seminni sem endurspeglar metnað fyrirtækisins til að vera traustur og virkur þátttakandi í samfélaginu að sögn Gunnars Egils. „Við erum með skýra stefnu í styrktarmálum okkar. Eitt af viðfangsefnum Nettó í sam- félagslegri ábyrgð er að veita styrki til samfélagsverkefna. Við höfum sett ágóðann af sölu plastpoka inn í samfélagsjóð sem er svo deilt niður á verkefni eftir ákveðnu kerfi, en sjóðurinn úthlutar um 50 milljónum króna á ári. Styrkirnir endur- spegla áherslur fyrirtækisins um þátttöku í samfélaginu og snúa að fjórum flokkum,“ útskýrir Gunnar. Flokkarnir eru: Heilbrigður lífsstíll, æskulýðs- og forvarnar- starf, umhverfismál og mennta-, menningar- og góðgerðarmál. Á síðustu árum hefur Nettó styrkt á annað hundrað verkefni ár hvert með tugmilljóna styrkjum. Nettó hefur verið leiðandi fyrirtæki í um- hverfismálum á smásölumarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á að lág- marka neikvæð umhverfisáhrif af starfseminni og hefur sett sér metnaðarfulla umhverfisstefnu. hugsi um umhverfið í daglegum störfum og fylgi umhverfisstefn- unni án undantekninga. Í þessu samhengi er lykilþáttur að við stuðlum að góðri fræðslu til okkar starfsmanna, hugsum um hvert okkar hlutverk er sem matvöru- verslun og hvernig við getum haft áhrif á umhverfið okkar, leggjum áherslu á mikilvægi umhverfis- stefnunnar og þá ferla sem unnið er eftir í öllum verslunum,“ segir Gunnar Egill. Á grundvelli umhverfis- stefnunnar er unnið að stöðugum umbótum til að bæta markvisst árangur. „Hér eru komandi orkuskipti í kælum mjög stór þáttur sem fær mjög litla umfjöllun. Í Evrópu er verið að innleiða löggjöf sem bannar notkun á freoni sem orkugjafa. Þetta eru orkuskipti sem ganga út á að að skipta freon- kælum út fyrir annan umhverfis- vænni kost. Það eru nokkrar leiðir mögulegar, en þetta er risastór áskorun fyrir öll þau fyrirtæki sem nota kæla og frystitæki og skiptir miklu máli fyrir umhverf- ið,“ segir Gunnar Egill. Hann segir að langt sé síðan skipt var um orkugjafa í heimilis- tækjum svo komandi orkuskipti eigi því aðeins við um iðnaðar- tæki. „Þetta er ekki að fara að gerast á næsta ári en þetta verður eitt af stóru málunum á komandi árum.“ KYNNINGARBLAÐ 5 F Ö S T U DAG U R 2 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.