Fréttablaðið - 28.02.2020, Page 23
Hjá Isavia er lögð mjög mikil áhersla á að taka ábyrgð, byggja upp sjálfbæran rekstur og að tryggja ánægju starfsmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Stefna Isavia í samfélags-ábyrgð, sem sett var árið 2016, segir að félagið skuli
stuðla að jafnvægi milli efnahags,
umhverfis og samfélags með sjálf-
bærni að leiðarljósi. Hrönn Ing-
ólfsdóttir, forstöðumaður stefnu-
mótunar og samfélagsábyrgðar
hjá Isavia, hefur átt mikinn þátt í
mótun og framkvæmd stefnunnar
í samfélagsábyrgð. „Við viljum
byggja upp rekstur sem er sjálf bær
til lengri tíma litið í samstarfi
og sátt við viðskiptavini og aðra
hagaðila. Við leggjum áherslu á að
vinna að góðu starfsumhverfi og
ánægju starfsfólks félagsins,“ segir
Hrönn.
Flugvellir hafa mikið
efnahagslegt mikilvægi
„Isavia gegnir mikilvægu hlutverki
í efnahagslegu og samfélagslegu
samhengi. Flugvellir félagsins, sér
í lagi Keflavíkurflugvöllur, skapa
verðmæti fyrir íslenskt hagkerfi,“
segir Hrönn. „Beinar flugtengingar
skipta gríðarlega miklu máli. Eftir
því sem þeim fjölgar verður hag-
kvæmara fyrir íslensk fyrirtæki og
einstaklinga að stunda viðskipti,
f lytja út vörur, leita sér þekkingar
og menntunar erlendis og nálgast
menningu og listir, svo eitthvað
sé nefnt. Rannsókn ráðgjafar-
fyrirtækisins InterVistas fyrir
alþjóðasamtök flugvalla í Evrópu,
ACI Europe, sem birt var árið 2015,
sýnir að 10% aukning í f lugteng-
ingum þýði í raun 0,5% aukningu á
vergri landsframleiðslu þjóðar.“
Gagnsæi tryggt með
nákvæmri skýrslugjöf
Isavia er nú að vinna að fjórðu
árs- og samfélagsskýrslu sinni.
„Þar sem við erum eina fyrir-
tækið í f lugvallarekstri hér á landi
lítum við til samstarfsaðila okkar
erlendis þegar kemur að því að fóta
okkur á braut samfélagsábyrgðar,“
segir Hrönn. „Flugiðnaðurinn í
heild er að vinna mjög vel að þessu
málefni á heimsvísu. Þannig að
fyrir utan að vera með í inn-
lendum hvataverkefnum, þá erum
við að taka upp bestu starfsvenjur
þaðan.
Aðrir f lugvellir eru að gefa út
samfélagsskýrslur í samræmi við
viðmið GRI – Global Reporting
Initiative, enda eru sérákvæði þar
undir sem taka sérstaklega á þeim
áskorunum og tækifærum sem
flugvellir standa frammi fyrir,“
segir Hrönn. „Það lá því beinast við
fyrir okkur að velja þá skýrslugjöf.
Það var svo sérstaklega gaman
að fá verðlaun Festu, Stjórnvísis
og Viðskiptaráðs fyrir samfélags-
skýrslu ársins í fyrra.“
Samvinna um markmiðin
Hrönn segir að Isavia hafi hrundið
af stað fjöldamörgum verkefnum á
síðustu fjórum árum sem tengjast
samfélagsábyrgð. „Í ár er félagið að
setja sér markmið, bæði til lengri
og skemmri tíma, í tengslum við
níu af sautján Heimsmarkmiðum
Sameinuðu þjóðanna,“ segir
hún. „Þar á meðal er unnið með
sveitarfélögunum fjórum á Suður-
nesjum að verkefni undir heitinu
Samvinna um Heimsmarkmiðin.
Aðilar verkefnisins munu setja
sér sameiginleg markmið fyrir
svæðið í tengslum við markmiðin
svo tryggt sé að allir vinni á sam-
ræmdan hátt.“
Jafnrétti kynjanna
Jafnrétti kynjanna er eitt af þeim
Heimsmarkmiðum sem Isavia
vinnur markvisst að. „Félagið lauk
vottun á jafnlaunastaðli árið 2018
og náði því markmiði að útrýma
óútskýrðum launamun kynjanna,“
segir Hrönn. „Þá hefur Isavia, í
samstarfi við lögreglustjórann á
Suðurnesjum, gefið út myndband
um einkenni mansals. Myndband-
ið er notað til að þjálfa starfsfólk
sem er í beinum samskiptum við
farþega í að taka eftir merkjum um
mögulegt mansal, en ungar konur
og börn eru meirihluti þeirra
sem verða fyrir mansali. Fræðslu-
deild Isavia vann myndbandið, en
því hefur verið dreift til annarra
fyrirtækja sem eru með starfsemi
á f lugvellinum svo allir geti notið
góðs af.“
Aðgerðir í loftslagsmálum
„Eldsneytisnotkun Isavia er
kolefnisjöfnuð í samvinnu við
Kolvið og Votlendissjóð, en hún
vegur þyngst í kolefnisspori
félagsins,“ segir Hrönn. „Stærsta
hluta notkunarinnar má rekja til
þjónustu og viðhalds á f lugbraut-
um og athafnasvæðum flugvalla,
en sú þjónusta er að miklu leyti
háð veðri.“
Mikil áhersla er lögð á að
draga úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda. Liður í því er þátttaka
Keflavíkurflugvallar í Airport
Carbon Accreditation (ACA) sem
er kolefnisvottunarkerfi á vegum
alþjóðasamtaka flugvalla, Airport
Council International (ACI), en
kerfið er sérstaklega hannað fyrir
f lugvelli.
„Vegferðin hófst fyrir fjórum
árum þegar kolefnisspor Kefla-
víkurflugvallar var kortlagt og
markmið sett um minnkun kol-
efnislosunar,“ segir Hrönn. „Eftir
þriggja ára mælingar þar sem við
gátum sýnt fram á minnkun á
milli ára náðum við öðru skrefi
vottunarinnar af fjórum og nú
erum við að vinna markvisst með
rekstraraðilum á flugvellinum að
minnkun kolefnislosunar fyrir
Keflavíkurflugvöll í heild sinni til
að ná næsta skrefi.“
Stuðningur yfirstjórnar
er mjög mikilvægur
„Það skiptir höfuðmáli að for-
stjórar og stjórn fyrirtækja styðji
vel við bakið á innleiðingu stefnu
í samfélagsábyrgð,“ útskýrir
Hrönn. „Án þess mikilvæga
stuðnings er einsýnt að fyrir-
tækjamenning þar sem samfélags-
ábyrgð er sett á oddinn nær ekki
fram að ganga.“
Ávinningur samfélagsábyrgðar
er það mikill að hún þarf að vera
samofin framtíðarsýn og þeim
gildum sem hvert fyrirtæki stend-
ur fyrir. „Yfirstjórn Isavia hefur
sýnt það í verki með því að setja
stefnumótun og samfélagsábyrgð
undir einn hatt í nýlegri breytingu
á skipuriti félagsins. Samfélags-
ábyrgð verður þannig órjúfanlegur
hluti af almennri stefnumörkun
fyrirtækisins,“ segir Hrönn.
Samfélagsábyrgð verður
langtímaverkefni
Hrönn segir að Isavia leggi áherslu
á þennan málaflokk til framtíðar.
„Þetta er langtímaverkefni en við
brettum upp ermar og horfum
fram á veginn. Það er mikilvægt
að viðskiptavinir og samfélagið
sjái að við séum raunverulega að
huga að þessu mikilvæga mál-
efni,“ segir Hrönn. „Það má heldur
ekki gleyma mikilvægi þess að
við viljum vera eftirsóknarverður
vinnustaður og samfélagsáherslur
eru liður í því. Starfsfólk vill starfa
hjá fyrirtæki sem stuðlar að ávinn-
ingi fyrir samfélagið í heild og við
hjá Isavia viljum að allir finni að
þeir séu hluti af góðu ferðalagi.“
Samvinna er lykill að árangri
Isavia vill sýna samfélagsábyrgð og byggja upp sjálfbæran rekstur. Þar er lögð mikil áhersla á
gagnsæi, að minnka kolefnisfótsporið og vinna að verkefnum sem styðja við heimsmarkmið SÞ.
Isavia hefur sett sér markmið til lengri og skemmri tíma í tengslum við níu af sautján Heimsmarkmiðum
Sameinuðu þjóðanna. Hér sést framkvæmdastjórnin með þau níu markmið sem fyrirtækið vinnur að.
Þetta er langtíma-
verkefni en við
brettum upp ermar og
horfum fram á veginn.
Það er mikilvægt að
viðskiptavinir og sam-
félagið sjái að við séum
raunverulega að huga að
þessu mikilvæga mál-
efni.
KYNNINGARBLAÐ 7 F Ö S T U DAG U R 2 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA