Fréttablaðið - 28.02.2020, Page 30

Fréttablaðið - 28.02.2020, Page 30
Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, forstöðumaður markaðs- og samskiptadeildar Samskipa, segir Samskip meðvituð um að hér séu allir á sama báti við að byggja upp gott samfélag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Óvíst er að allir átti sig á hversu mikla áherslu Sam-skip leggja á samfélags- ábyrgð í störfum sínum, en þar undir falla náttúrlega bæði aðgerðir í þágu sjálfbærni og til mótvægis við skaðleg umhverfisáhrif og ekki síður mannauðs- og jafnréttis- stefna fyrirtækisins,“ segir Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, forstöðumaður markaðs- og samskiptadeildar Samskipa. „Meðvitund um sam- félagsábyrgð hefur alla tíð verið leiðarstef í starfsemi félagsins.“ Þórunn bendir á að Samskip beiti sér fyrir virkum aðgerðum á sviði umhverfismála, taki þátt í nýsköpun og þróun til að draga úr umhverfisáhrifum og séu með fyrstu fyrirtækjum til þess að setja sér markvissa umhverfisstefnu. „Í hnotskurn er hún að Samskip stefni að því að vera ávallt í fararbroddi á sviði umhverfismála. Svo fylgir því líka fjölþættur ávinningur að draga úr orkunotkun, jafnt fyrir fyrirtækið og samfélagið í heild. Það leiðir til aukinnar hagræð- ingar í starfseminni og minnkar umhverfisfótspor fyrirtækisins um leið og dregið er úr innflutningi á eldsneyti og sóun á orkuauðlindum heimsins. Orkusparandi aðgerðir tikka í öll boxin.“ Góður starfsandi Mannauðsstefnan kristallist svo í kjörorði félagsins um að það sé gott að vinna hjá Samskipum. „Góður starfsandi skiptir höfuðmáli, enda eykur jákvætt viðhorf starfsfólks starfsánægju og gleði á vinnu- staðnum og við leggjum áherslu á jákvæð og uppbyggjandi sam- skipti og jafnræði á meðal starfs- manna, óháð kyni, uppruna eða trúarbrögðum.“ Samskip hafa líka skrifað undir sáttmála gegn einelti, áreitni og ofbeldi. Þetta eru meira en orð á blaði og markmiðunum fylgt eftir. Félagið hefur innleitt hjá sér jafnlauna- kerfi og jafnréttisstefnu sem nær til allra starfsmanna á Íslandi. Samfélagsábyrgð er leiðarstefið Samskip eru leiðandi í aðgerðum sem draga úr orkunotkun og minnka umhverfisfótspor. Í mannauðsmálum hefur fyrirtækið líka að leiðarljósi gildi jafnréttis og jákvæðra samskipta. Kjörorð Samskipa eru að það sé gott að vinna hjá fyrirtækinu. Þar er starfs- andinn líka góður og jafn réttur einstaklinga í fyrirrúmi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Margvíslegar aðgerðir n Gámar Samskipa eru nú um 960 kílóum, eða 20%, léttari en þeir voru fyrir 20 árum sem dregur úr orkunotkun. n Árið 2015 tóku Samskip við rekstri skipanna Kvitnos og Kvitbjørn sem brenna fljótandi jarðgasi (LNG). Skipin losa ekki köfnunar- efnisoxíð, lágmarka brennisteinsdíoxíð og losa 70 prósent minni koltvísýring á hvert flutt tonn. n Samskip leiða „Seashuttle“ verkefnið þar sem í þróun er næsta kyn- slóð sjálfbærra skipaflutninga á styttri sjóleiðum, sjálfvirk gáma- skip sem gefa ekki frá sér mengaðan útblástur. n Hjá systurfyrirtæki Samskipa í Rotterdam, FrigoCare, er að finna stærsta sólarorkuver borgarinnar, 3.100 sólarsellur sem þekja 7.500 fermetra. Raforkuframleiðslan nemur raforkuþörf um 250 smærri heimila. n Samskip nota vöruflutningabifreiðar sem eru ríkulega búnar tækjum og tólum sem miða að því að auka öryggi og tryggja minni útblástur og eins visthæfan flutning og völ er á. n Þvottastöð Samskipa í Reykjavík fyrir stór ökutæki er eins vistvæn og kostur er og notast við frárennslisvatn úr hitakerfum höfuð- stöðvanna. n Í fyrra voru Samskip tilnefnd til verðlauna Safety4Sea og Europort í flokki hreinna flutninga fyrir markvissan stuðning við nýjungar í sjálfbærum flutningum með rannsóknum, þróun, innleiðingu tækninýjunga og þjálfun. „Þetta er í anda þess samfélags sem Íslendingar hafa sammælst um að byggja upp, þar sem jafn réttur einstaklinga er í fyrirrúmi,“ segir Þórunn, en með skýrum verklags- ramma sé leitast við að tryggja jafn- rétti og jafna stöðu kynjanna innan fyrirtækisins og að starfsmenn hafi jöfn tækifæri til að nýta hæfni sína í starfi. Samskip í fararbroddi Hvað umhverfismál varðar hafa Samskip lengi verið í fararbroddi og ætla að halda þeirri stöðu. „Við kappkostum að fylgjast vel með allri þróun og nýjungum og setjum okkur skýr markmið um árangur. Hann mælum við líka reglulega og tryggjum þannig stöðugar umbætur og framþróun.“ Þórunn viðurkennir um leið að það geti verið áskorun að ná settum markmiðum, því flutningar á sjó séu í eðli sínu mengandi, þótt hlut- fallstölur á flutta einingu séu marg- falt betri en til dæmis með flugi. „Svo geta komið sveiflur í inn- eða útflutningi sem hafa áhrif á tölur um útblástur á móti hverju fluttu tonni. En markmiðin halda okkur við efnið og við vitum að hverju er stefnt, þ.e.a.s. að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif frá allri starfsemi félagsins.“ Fjölþátta flutningskerfi Samskipa, sem í Evrópu notist einn- ig við lestir og pramma, auk skipa og flutningabíla, sé í samræmi við markmið Evrópusambandsins um leiðir til að draga úr útblæstri frá flutningum. Hverfa frá plasti og pappír Samskip mæla orkunotkun reglu- lega, nýta vistvæna orkugjafa eins og kostur er og leitast við að halda mengun í lágmarki. Við val á birgj- um, tækjum og öðrum aðföngum er svo leitast við að velja umhverfis- væna kosti umfram aðra. Um þrjú ár eru síðan plastmál og -flöskur voru gerðar útlægar hjá Samskipum og unnið hefur verið markvisst að því að minnka pappírsnotkun. „Frá og með áramótum hættum við til dæmis að taka á móti reikningum á pappírsformi og fáum þá rafrænt í staðinn.“ Eins er markvisst unnið að því að draga úr matarsóun í mötu- neyti Samskipa og tölur birtar á hverjum degi um magn afganga til að vekja fólk til umhugsunar. „Þetta hefur strax skilað árangri og fólk gætir fremur að skammtastærðum til þess að síður þurfi að henda afgöngum.“ Þá eiga Samskip í margvíslegu samstarfi innanlands um aðgerðir til stuðnings umhverfinu, svo sem við Brim, Norðanfisk og Íslenska gámafélagið um endurvinnslu og útflutning á frauðplasti. Auk þess flytja Samskip sorp frá Íslenska gámafélaginu sem ekki er hægt að endurvinna eða endurnýta hér heima til brennslu í Evrópu. „Ávinningur af því er tvíþættur því ruslið þarf þá ekki að urða hér, með tilheyrandi umhverfissóðaskap, heldur nýtist það til húshitunar og raforkuframleiðslu erlendis sem annars hefði verið staðið að með brennslu kola eða olíu.“ Fyrir utan beinar aðgerðir styðja Samskip líka við margs konar málefni. Til dæmis eru Samskip stofnaðilar að Votlendissjóðnum, þar sem Þórunn Inga er vara- maður í stjórn. „Stuðningur við slík verkefni er hluti af umhverfisstefnu Samskipa, auk beinna aðgerða til að draga úr kolefnisfótspori starf- seminnar,“ segir Þórunn, en fyrir- tækið hefur líka styrkt íþróttafélög, líknarfélög og menningarfélög af ýmsu tagi. „Slíkar styrkveitingar eru í samræmi við stefnu Samskipa um samfélagslega ábyrgð, enda erum við öll á sama báti þegar að því kemur að byggja gott samfélag og hlúa að því sem vel er gert.“ Við leggjum áherslu á jákvæð og uppbyggjandi sam- skipti og jafnræði á meðal starfsmanna, óháð kyni, uppruna eða trúarbrögðum. Þórunn Inga Ingjaldsdóttir 14 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RSAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.