Fréttablaðið - 28.02.2020, Blaðsíða 30
Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, forstöðumaður markaðs- og samskiptadeildar Samskipa, segir Samskip meðvituð um að hér séu allir á sama báti við að byggja upp gott samfélag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Óvíst er að allir átti sig á hversu mikla áherslu Sam-skip leggja á samfélags-
ábyrgð í störfum sínum, en þar
undir falla náttúrlega bæði aðgerðir
í þágu sjálfbærni og til mótvægis
við skaðleg umhverfisáhrif og ekki
síður mannauðs- og jafnréttis-
stefna fyrirtækisins,“ segir Þórunn
Inga Ingjaldsdóttir, forstöðumaður
markaðs- og samskiptadeildar
Samskipa. „Meðvitund um sam-
félagsábyrgð hefur alla tíð verið
leiðarstef í starfsemi félagsins.“
Þórunn bendir á að Samskip
beiti sér fyrir virkum aðgerðum
á sviði umhverfismála, taki þátt
í nýsköpun og þróun til að draga
úr umhverfisáhrifum og séu með
fyrstu fyrirtækjum til þess að setja
sér markvissa umhverfisstefnu. „Í
hnotskurn er hún að Samskip stefni
að því að vera ávallt í fararbroddi
á sviði umhverfismála. Svo fylgir
því líka fjölþættur ávinningur að
draga úr orkunotkun, jafnt fyrir
fyrirtækið og samfélagið í heild.
Það leiðir til aukinnar hagræð-
ingar í starfseminni og minnkar
umhverfisfótspor fyrirtækisins um
leið og dregið er úr innflutningi á
eldsneyti og sóun á orkuauðlindum
heimsins. Orkusparandi aðgerðir
tikka í öll boxin.“
Góður starfsandi
Mannauðsstefnan kristallist svo í
kjörorði félagsins um að það sé gott
að vinna hjá Samskipum. „Góður
starfsandi skiptir höfuðmáli, enda
eykur jákvætt viðhorf starfsfólks
starfsánægju og gleði á vinnu-
staðnum og við leggjum áherslu á
jákvæð og uppbyggjandi sam-
skipti og jafnræði á meðal starfs-
manna, óháð kyni, uppruna eða
trúarbrögðum.“ Samskip hafa líka
skrifað undir sáttmála gegn einelti,
áreitni og ofbeldi.
Þetta eru meira en orð á blaði og
markmiðunum fylgt eftir. Félagið
hefur innleitt hjá sér jafnlauna-
kerfi og jafnréttisstefnu sem nær
til allra starfsmanna á Íslandi.
Samfélagsábyrgð er leiðarstefið
Samskip eru leiðandi í aðgerðum sem draga úr orkunotkun og minnka umhverfisfótspor.
Í mannauðsmálum hefur fyrirtækið líka að leiðarljósi gildi jafnréttis og jákvæðra samskipta.
Kjörorð Samskipa eru að það sé gott að vinna hjá fyrirtækinu. Þar er starfs-
andinn líka góður og jafn réttur einstaklinga í fyrirrúmi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Margvíslegar aðgerðir
n Gámar Samskipa eru nú um 960 kílóum, eða 20%, léttari en þeir
voru fyrir 20 árum sem dregur úr orkunotkun.
n Árið 2015 tóku Samskip við rekstri skipanna Kvitnos og Kvitbjørn
sem brenna fljótandi jarðgasi (LNG). Skipin losa ekki köfnunar-
efnisoxíð, lágmarka brennisteinsdíoxíð og losa 70 prósent minni
koltvísýring á hvert flutt tonn.
n Samskip leiða „Seashuttle“ verkefnið þar sem í þróun er næsta kyn-
slóð sjálfbærra skipaflutninga á styttri sjóleiðum, sjálfvirk gáma-
skip sem gefa ekki frá sér mengaðan útblástur.
n Hjá systurfyrirtæki Samskipa í Rotterdam, FrigoCare, er að finna
stærsta sólarorkuver borgarinnar, 3.100 sólarsellur sem þekja 7.500
fermetra. Raforkuframleiðslan nemur raforkuþörf um 250 smærri
heimila.
n Samskip nota vöruflutningabifreiðar sem eru ríkulega búnar
tækjum og tólum sem miða að því að auka öryggi og tryggja minni
útblástur og eins visthæfan flutning og völ er á.
n Þvottastöð Samskipa í Reykjavík fyrir stór ökutæki er eins vistvæn
og kostur er og notast við frárennslisvatn úr hitakerfum höfuð-
stöðvanna.
n Í fyrra voru Samskip tilnefnd til verðlauna Safety4Sea og Europort
í flokki hreinna flutninga fyrir markvissan stuðning við nýjungar
í sjálfbærum flutningum með rannsóknum, þróun, innleiðingu
tækninýjunga og þjálfun.
„Þetta er í anda þess samfélags sem
Íslendingar hafa sammælst um
að byggja upp, þar sem jafn réttur
einstaklinga er í fyrirrúmi,“ segir
Þórunn, en með skýrum verklags-
ramma sé leitast við að tryggja jafn-
rétti og jafna stöðu kynjanna innan
fyrirtækisins og að starfsmenn hafi
jöfn tækifæri til að nýta hæfni sína
í starfi.
Samskip í fararbroddi
Hvað umhverfismál varðar hafa
Samskip lengi verið í fararbroddi
og ætla að halda þeirri stöðu. „Við
kappkostum að fylgjast vel með
allri þróun og nýjungum og setjum
okkur skýr markmið um árangur.
Hann mælum við líka reglulega
og tryggjum þannig stöðugar
umbætur og framþróun.“
Þórunn viðurkennir um leið að
það geti verið áskorun að ná settum
markmiðum, því flutningar á sjó
séu í eðli sínu mengandi, þótt hlut-
fallstölur á flutta einingu séu marg-
falt betri en til dæmis með flugi.
„Svo geta komið sveiflur í inn- eða
útflutningi sem hafa áhrif á tölur
um útblástur á móti hverju fluttu
tonni. En markmiðin halda okkur
við efnið og við vitum að hverju er
stefnt, þ.e.a.s. að lágmarka neikvæð
umhverfisáhrif frá allri starfsemi
félagsins.“ Fjölþátta flutningskerfi
Samskipa, sem í Evrópu notist einn-
ig við lestir og pramma, auk skipa
og flutningabíla, sé í samræmi við
markmið Evrópusambandsins um
leiðir til að draga úr útblæstri frá
flutningum.
Hverfa frá plasti og pappír
Samskip mæla orkunotkun reglu-
lega, nýta vistvæna orkugjafa eins
og kostur er og leitast við að halda
mengun í lágmarki. Við val á birgj-
um, tækjum og öðrum aðföngum
er svo leitast við að velja umhverfis-
væna kosti umfram aðra. Um þrjú
ár eru síðan plastmál og -flöskur
voru gerðar útlægar hjá Samskipum
og unnið hefur verið markvisst að
því að minnka pappírsnotkun. „Frá
og með áramótum hættum við til
dæmis að taka á móti reikningum
á pappírsformi og fáum þá rafrænt
í staðinn.“
Eins er markvisst unnið að því
að draga úr matarsóun í mötu-
neyti Samskipa og tölur birtar á
hverjum degi um magn afganga til
að vekja fólk til umhugsunar. „Þetta
hefur strax skilað árangri og fólk
gætir fremur að skammtastærðum
til þess að síður þurfi að henda
afgöngum.“
Þá eiga Samskip í margvíslegu
samstarfi innanlands um aðgerðir
til stuðnings umhverfinu, svo sem
við Brim, Norðanfisk og Íslenska
gámafélagið um endurvinnslu og
útflutning á frauðplasti. Auk þess
flytja Samskip sorp frá Íslenska
gámafélaginu sem ekki er hægt
að endurvinna eða endurnýta
hér heima til brennslu í Evrópu.
„Ávinningur af því er tvíþættur því
ruslið þarf þá ekki að urða hér, með
tilheyrandi umhverfissóðaskap,
heldur nýtist það til húshitunar og
raforkuframleiðslu erlendis sem
annars hefði verið staðið að með
brennslu kola eða olíu.“
Fyrir utan beinar aðgerðir styðja
Samskip líka við margs konar
málefni. Til dæmis eru Samskip
stofnaðilar að Votlendissjóðnum,
þar sem Þórunn Inga er vara-
maður í stjórn. „Stuðningur við slík
verkefni er hluti af umhverfisstefnu
Samskipa, auk beinna aðgerða til
að draga úr kolefnisfótspori starf-
seminnar,“ segir Þórunn, en fyrir-
tækið hefur líka styrkt íþróttafélög,
líknarfélög og menningarfélög af
ýmsu tagi. „Slíkar styrkveitingar
eru í samræmi við stefnu Samskipa
um samfélagslega ábyrgð, enda
erum við öll á sama báti þegar að
því kemur að byggja gott samfélag
og hlúa að því sem vel er gert.“
Við leggjum
áherslu á jákvæð
og uppbyggjandi sam-
skipti og jafnræði á
meðal starfsmanna,
óháð kyni, uppruna eða
trúarbrögðum.
Þórunn Inga Ingjaldsdóttir
14 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RSAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA