Fréttablaðið - 28.02.2020, Side 31

Fréttablaðið - 28.02.2020, Side 31
marel.is Hjá okkur er samfélagsleg ábyrgð í fyrirrúmi. Við skuldbindum okkur til þess bjóða öruggt og gott vinnuumhverfi, með jöfnum tækifærum fyrir allt starfsfólk. Við leggjum áherslu á samstarf við nærsamfélögin, einkum á sviði nýsköpunar og menntunar. Sif Sturludóttir er forstöðumaður hjá Vodafone. Hér með tvo af vistvænum rafbílum Vodafone í bakgrunni. Við erum staðráðin í því að vernda umhverfið en við skrifuðum undir loftslags- yfirlýsingu FESTU og Reykjavík- urborgar um markmið í loftslags- málum og höfum einsett okkur að efla vistvænar samgöngur, draga úr myndun úrgangs og stuðla að betri orkunýtingu,“ segir Sif Sturludóttir, forstöðumaður hjá Vodafone. „Við skiptum út stórum hluta bílaflotans um mitt ár 2019. Það kom aldrei neitt annað til greina en að meirihluti bílanna yrði umhverfisvænn og stór hluti þeirra er eingöngu knúinn raf- magni. Raf bílar eru þægilegir og auðveldir í rekstri, þeir menga lítið við notkun og hafa sannað sig við íslenskar aðstæður undanfarin ár. Raf bílar eru sífellt að verða vinsælli, enda hagkvæmur og vist- vænn valkostur. Þeir eru ein besta leiðin til að ferðast milli staða með lágmarksmengun,“ segir Sif. Vodafone tók einnig í notkun tengiltvinnbíla (e. plug-in hybrid) en þá er hægt að hlaða á milli ferða. „Tengiltvinnbílarnir hafa allt að 60 kílómetra drægni á rafhlöðunni einni saman og nota því bensínvélina mun minna. Þeir henta okkur vel að því leyti að þegar það þarf að fara lengri leiðir eða utanbæjar þá er hægt að skipta yfir á eldsneytið,“ upplýsir Sif. Sérstök hleðslustæði eru fyrir bíla Vodafone og þar er hægt að leggja þeim að jafnt degi sem nóttu til að hlaða þá. „Rafmagnið sem við notum á Íslandi er nánast allt fram- leitt með vistvænum hætti. Við vinnum meira rafmagn á hvern íbúa en nokkur önnur þjóð, raf- magnið er hreint og umtalsvert ódýrara en jarðefnaeldsneyti. Það er því hentugt að reka raf bíla á Íslandi ásamt því að f lestar bíl- ferðir okkar eru frekar stuttar,“ segir Sif. Vodafone leggur líka ríka áherslu á heilbrigði og vellíðan starfsmanna á vinnustaðnum. „Við styðjum starfsfólk okkar til að stunda vistvænar sam- göngur, til dæmis með því að veita samgöngustyrk sem starfsfólk er duglegt að nýta sér en almenn- ingssamgöngur eru mjög aðgengi- legar frá Suðurlandsbrautinni. Við bjóðum starfsfólki okkar einnig upp á að hlaða einkabílana sína í hleðslustöðvum í bílastæða- húsinu við höfuðstöðvar okkar og höfum tekið eftir töluverðri aukningu í raf bílum meðal starfs- manna okkar. Við erum einn- ig að taka í notkun upphitaða hjólageymslu með hleðslu fyrir rafknúin reiðhjól. Þá erum við líka með hleðslustöðvar fyrir framan höfuðstöðvarnar fyrir viðskipta- vini okkar,“ upplýsir Sif sem hefur sjálf ekið eingöngu á rafknúnum bíl undanfarin þrjú ár. „Þetta er fjárfesting í upphafi en til lengri tíma sparar það stórfé, bæði mér sem einstaklingi og einnig þjóðinni allri, svo ekki sé minnst á þau jákvæðu loftslags- áhrif sem það hefur.“ Staðráðin í að vernda umhverfið Vodafone hefur sett sér skýr markmið í umhverfis- og loftslagsmálum. Þau eru til þess fallin að draga úr mengun og hafa jákvæð áhrif á vistspor fyrirtækisins og starfsfólkið. Þetta er fjárfesting í upphafi en til lengri tíma sparar hún stórfé, bæði mér og þjóðinni allri, svo ekki sé minnst á jákvæð loftslagsáhrifin. Vodafone býður bæði starfsfólki og gestum að hlaða rafbíla sína. KYNNINGARBLAÐ 15 F Ö S T U DAG U R 2 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.