Fréttablaðið - 28.02.2020, Síða 31
marel.is
Hjá okkur er samfélagsleg ábyrgð
í fyrirrúmi. Við skuldbindum
okkur til þess bjóða öruggt og
gott vinnuumhverfi, með jöfnum
tækifærum fyrir allt starfsfólk.
Við leggjum áherslu á samstarf
við nærsamfélögin, einkum á
sviði nýsköpunar
og menntunar.
Sif Sturludóttir er forstöðumaður hjá Vodafone. Hér með tvo af vistvænum rafbílum Vodafone í bakgrunni.
Við erum staðráðin í því að vernda umhverfið en við skrifuðum undir loftslags-
yfirlýsingu FESTU og Reykjavík-
urborgar um markmið í loftslags-
málum og höfum einsett okkur að
efla vistvænar samgöngur, draga
úr myndun úrgangs og stuðla
að betri orkunýtingu,“ segir Sif
Sturludóttir, forstöðumaður hjá
Vodafone.
„Við skiptum út stórum hluta
bílaflotans um mitt ár 2019. Það
kom aldrei neitt annað til greina
en að meirihluti bílanna yrði
umhverfisvænn og stór hluti
þeirra er eingöngu knúinn raf-
magni. Raf bílar eru þægilegir og
auðveldir í rekstri, þeir menga lítið
við notkun og hafa sannað sig við
íslenskar aðstæður undanfarin
ár. Raf bílar eru sífellt að verða
vinsælli, enda hagkvæmur og vist-
vænn valkostur. Þeir eru ein besta
leiðin til að ferðast milli staða með
lágmarksmengun,“ segir Sif.
Vodafone tók einnig í notkun
tengiltvinnbíla (e. plug-in hybrid)
en þá er hægt að hlaða á milli
ferða. „Tengiltvinnbílarnir hafa
allt að 60 kílómetra drægni á
rafhlöðunni einni saman og nota
því bensínvélina mun minna.
Þeir henta okkur vel að því leyti
að þegar það þarf að fara lengri
leiðir eða utanbæjar þá er hægt að
skipta yfir á eldsneytið,“ upplýsir
Sif.
Sérstök hleðslustæði eru fyrir
bíla Vodafone og þar er hægt að
leggja þeim að jafnt degi sem
nóttu til að hlaða þá.
„Rafmagnið sem við notum
á Íslandi er nánast allt fram-
leitt með vistvænum hætti. Við
vinnum meira rafmagn á hvern
íbúa en nokkur önnur þjóð, raf-
magnið er hreint og umtalsvert
ódýrara en jarðefnaeldsneyti. Það
er því hentugt að reka raf bíla á
Íslandi ásamt því að f lestar bíl-
ferðir okkar eru frekar stuttar,“
segir Sif.
Vodafone leggur líka ríka
áherslu á heilbrigði og vellíðan
starfsmanna á vinnustaðnum.
„Við styðjum starfsfólk okkar
til að stunda vistvænar sam-
göngur, til dæmis með því að veita
samgöngustyrk sem starfsfólk er
duglegt að nýta sér en almenn-
ingssamgöngur eru mjög aðgengi-
legar frá Suðurlandsbrautinni. Við
bjóðum starfsfólki okkar einnig
upp á að hlaða einkabílana sína
í hleðslustöðvum í bílastæða-
húsinu við höfuðstöðvar okkar
og höfum tekið eftir töluverðri
aukningu í raf bílum meðal starfs-
manna okkar. Við erum einn-
ig að taka í notkun upphitaða
hjólageymslu með hleðslu fyrir
rafknúin reiðhjól. Þá erum við líka
með hleðslustöðvar fyrir framan
höfuðstöðvarnar fyrir viðskipta-
vini okkar,“ upplýsir Sif sem hefur
sjálf ekið eingöngu á rafknúnum
bíl undanfarin þrjú ár.
„Þetta er fjárfesting í upphafi en
til lengri tíma sparar það stórfé,
bæði mér sem einstaklingi og
einnig þjóðinni allri, svo ekki sé
minnst á þau jákvæðu loftslags-
áhrif sem það hefur.“
Staðráðin í að vernda umhverfið
Vodafone hefur sett sér skýr markmið í umhverfis- og loftslagsmálum. Þau eru til þess
fallin að draga úr mengun og hafa jákvæð áhrif á vistspor fyrirtækisins og starfsfólkið.
Þetta er fjárfesting
í upphafi en til
lengri tíma sparar hún
stórfé, bæði mér og
þjóðinni allri, svo ekki
sé minnst á jákvæð
loftslagsáhrifin.
Vodafone býður bæði starfsfólki og
gestum að hlaða rafbíla sína.
KYNNINGARBLAÐ 15 F Ö S T U DAG U R 2 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA