Fréttablaðið - 09.01.2020, Page 1

Fréttablaðið - 09.01.2020, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —7 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 9 . J A N Ú A R 2 0 2 0 borgarleikhus.is SÝNINGAR HEFJAST AFTUR Í KVÖLD Flutningaskipið Francisca slitnaði frá bryggju í Hafnarfirði í fyrrinótt vegna óveðursins. Dráttarbátarnir Magni og Hamar drógu skipið, sem er 4.000 tonn, að bryggjunni. Varðskipið Týr skýldi Magna fyrir veðrinu. Björgunarsveit Hafnarfjarðar, sem hér sést að störfum, tókst svo að koma taug í skipið. Var skipið loks bundið við bryggju. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK SLYS Einn ferðamannanna 39 sem lentu í sjálf heldu í óveðri á Lang- jökli í fyrrinótt, kona, fékk brjóst- verki á jöklinum og var óttast að hún væri að fá hjartaáfall. Þurfti hún aðhlynningu sjúkraflutninga- manna á leiðinni niður af fjallinu en tekið var við fólkinu á kaffihúsinu við Gullfoss. „Við vissum ekki af ástandi þessa einstaklings fyrr en mjög seint í aðgerðinni,“ segir Ægir Guðjóns- son hjá björgunarsveitinni Björg á Eyrarbakka, en hann var í aðgerða- stjórn á meðan á þessu stóð. Þá lét konan björgunarsveitarfólk vita af vandræðum sínum. „Sjúkraf lutn- ingamenn fóru með Björg á vett- vang og þeir sinntu ferðamanninum á leiðinni niður,“ segir Ægir. Áður en björgunarsveitin kom á svæðið myndaðist óvissuástand þar sem talning leiðsögumanna var röng. Var það þessi umrædda kona sem óttast var að hefði týnst í bylnum. „Allir ferðamennirnir reyndust vera á svæðinu og í skjóli,“ segir Ægir. Ekki var farið með konuna á sjúkrahúsið á Selfossi heldur hlynnt að henni á kaffihúsinu við Gullfoss eins og hinum. Ferðamennirnir voru margir hverjir með kalsár, þreyttir og barn átti erfitt með gang. Héldu ferðamennirnir að þeir myndu týna lífinu á jöklinum þessa nótt. Díana Óskarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, segir að það hafi tekið langan tíma að ferja fólkið að kaffihúsinu. Þar voru bæði hjúkrunarfræðingar og læknar sjúkrahússins til staðar. „Þetta stóð yfir fram undir morgun og þeir sem voru búnir að vera þarna lengst fóru ekki fyrr en um hádegið daginn eftir.“ F e r ð a þ j ó n u s t u f y r i r t æ k i ð Mountaineers of Iceland hefur viðurkennt að hafa gert mistök, svo sem að kalla ekki björgunarsveitir til fyrr. Margir ferðamannanna eru reiðir fyrirtækinu og þegar hafa einhverjir þeirra leitað til lögmannsstofu með það að markmiði að fá miskabætur vegna ferðarinnar. – khg / sjá síðu 4 Með brjóstverki á leið af Langjökli Kona sem var á meðal þeirra 39 ferðamanna sem lentu í sjálfheldu á Langjökli fékk brjóstverki og óttast var að hún væri að fá hjartaáfall. Fékk hún aðstoð sjúkraflutningamanna á leið niður af jöklinum. Um tíma var óttast að sama kona hefði týnst í bylnum. Við vissum ekki af ástandi þessa einstaklings fyrr en mjög seint í aðgerðinni. Ægir Guðjónsson, björgunarsveitarmaður

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.