Fréttablaðið - 09.01.2020, Síða 19
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Rúmt ár er liðið frá því að íþróttavöruverslunin SPORT24 opnaði sína fyrstu
verslun hér á landi við Sunda-
borg 1 í Reykjavík. Í október var
þriðja verslun fyrirtækisins opnuð
í Garðabæ en fyrirtækið opnaði
verslun á Akureyri í febrúar.
Fanney segir SPORT24 vera
umsvifamesta söluaðila íþrótta-
vara í Danmörku, með mikinn
fjölda verslana undir sínum hatti.
„Þrátt fyrir að vörumerkið sé ekki
mjög þekkt hér á landi er SPORT24
stærsti seljandi íþróttavara í Dan-
mörku en þar rekur fyrirtækið 186
verslanir vítt og breitt um landið.
Forstjóri fyrirtækisins heitir
Henrik Bruun og starfaði áður hjá
Intersport. Fyrirtækið var stofnað
árið 2012 á grunni fjölda íþrótta-
vöruverslana að því er fram kemur
í Berlingske en höfuðstöðvar fyrir-
tækisins eru í Silkeborg,“ útskýrir
Fanney. Þá sé fyrirtækið búið að
vera að færa út kvíarnar jafnt og
þétt. „Árið 2016 keypti SPORT24
verslanir Sportigan og sænsku
íþróttavöruverslunina Stadium og
er því óhætt að segja að fyrirtækið
hafi verið í mikilli sókn á undan-
förnum árum en í fyrra störfuðu
yfir 1.000 manns hjá fyrirtækinu.“
Afar hörð samkeppni
Fanney segir vissar áskoranir
óneitanlega fylgja rekstri verslana
af þessu tagi, ekki síst hvað varðar
samkeppni við netverslanir.
„Rekstrarumhverfi íþróttavöru-
verslana hefur aftur á móti verið
afar krefjandi undanfarin ár, einna
helst þegar kemur að samkeppni
við stórar netverslanir.“
Staðsetning verslana sé einnig
brýnt viðfangsefni. „Þá er einnig
hart barist um bestu verslunar-
staðsetningarnar og samkeppnin
er mikil en SPORT24 er í dag til
að mynda orðið umfangsmeira á
dönskum markaði heldur en helsti
keppinauturinn, Sportmaster,“
segir Fanney. Hún segir viðtök-
urnar við versluninni hér á landi
hafa verið framar öllum vonum
og að sala hafi verið vel fram yfir
áætlanir á þessu ári.
Opnun fyrstu verslunarinnar
hafi því í sjálfu sér verið ákveðið
tilraunaverkefni fyrst um sinn.
„Við opnuðum fyrst niðri í Sunda-
borg til að prófa konseptið. Hvern-
ig f lutningaleiðirnar myndu virka
og hvernig tölvukerfin myndu
tala saman. Það er hæpið að fara í
einhverja risafjárfestingu ef bak-
landið er ekki 100%. Það var hug-
myndin með þessari búð,“ segir
Fanney en verslunin hér á landi er
beintengd við pantanakerfið hjá
SPORT24 úti í Danmörku.
Þetta fyrirkomulag hefur hag-
stæð áhrif á starfsemi fyrirtækis-
ins og gerir því kleift að bjóða upp
á öll helstu merkin, með minni
fyrirhöfn en ella. „Það hefur
gríðarlega hagræðingu í för með
sér fyrir okkar rekstur. Það fækkar
utanlandsferðum hjá okkur og við
fáum öll merkin í gegnum einn
aðila,“ segir Fanney en fyrirtækið
selur fjölda þekktra vörumerkja á
borð við Nike, Hummel, Adidas,
Puma, Speedo og Champion ásamt
mörgum fleirum.
Frábært fyrir fjölskylduna
Ásamt því að selja útivistarfatnað
fyrir unga sem aldna, úlpur, snjó-
buxur og kuldagalla, leggur fyrir-
tækið einnig mikla áherslu á sölu
almennra íþróttavara fyrir börn.
„Það var það sem vantaði hingað
til lands eftir að Intersporti var
lokað sumarið 2017,“ segir Fanney.
Það sé áríðandi að fjölskyldur hér
á landi hafi valmöguleika á borð
við þennan, þar sem hægt sé að
festa kaup á íþrótta- og útivistar-
Sara Ísabella og Fanney Bjarkadóttir, verslunarstjóri, segja móttökur verslunarinnar hafa verið vonum framar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Í SPORT24 er gott úrval af barnafötum á góðu verði.
Íþróttaskórnir fást í SPORT24. Skór fyrir alla fjölskylduna. Sjón er sögu ríkari.
Í SPORT24 eru útivistarföt á alla fjölskylduna.
Nýjasta verslun SPORT24 er til húsa í Miðhrauni 2.
Framhald af forsíðu ➛
fatnaði fyrir ört vaxandi börn á
sanngjörnu verði. „Við leggjum
mikla áherslu á að öll fjölskyldan
geti komið og fundið eitthvað fyrir
sig.“
Fanney segir SPORT24 taka sér-
staklega vel á móti fjölskyldum og
að öll umgjörð í kringum verslan-
irnar bæði einfaldi innkaupin og
dragi úr óþarfa kostnaði. „Það er
ekkert hlaupið að því að fara með
3-4 börn í verslunarmiðstöðvar,“
segir hún. „Eitt af því sem við-
skiptavinir hafa verið ánægðir
með, fyrir utan gott aðgengi og
annað slíkt, er að það er ekkert
annað í umhverfinu sem truflar og
því lítið mál að taka börnin með.“
SPORT24 býður einnig upp á
merkingar á fatnaði, til dæmis
fyrir íþróttafélög og þá er fyrir-
tækið einnig með „outlet“-verslun
innan nýrrar verslunar fyrir-
tækisins í Garðabæ, í Miðhrauni
2. Í outlet-versluninni er að finna
íþróttavörur á 30-80% afslætti allt
árið um kring. „Það er því tilvalið
að gera sér ferð og skoða úrvalið,“
segir hún. „Við erum alltaf með
einhver sértilboð í gangi á íþrótta-
vörum.
Ég mæli líka með að fylgja
okkur á Facebook undir SPORT24
Reykjavík, SPORT24Outlet og
SPORT24 Akureyri. Þá sérð þú
hvað er í gangi hjá SPORT24.“
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R