Fréttablaðið - 09.01.2020, Page 21

Fréttablaðið - 09.01.2020, Page 21
Mögulega munum við bjóða upp á raðvígslur, endurnýjun- arathafnir og sérstakar viðburðavígslur þessa daga. Við prestarnir erum að ræða það næstu daga vegna fyrirspurna og umræðunnar. Sigurður Árni Þórðarson Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is TRAUST Í 80 ÁR Fylgdu okkur á Facebo ok S Í G I L D K Á P U B Ú Ð JANÚARÚTSÖLUSPRENGJAN HAFIN 30%-40%-50% NÚ ER TÆKIFÆRI AÐ EIGNAST FLOTTA MERKJAVÖRU Á ÚTSÖLUVERÐI Talið er að margir vilji gifta sig í febrúar á þessu ári. Þrír skemmtilegir dagar bjóðast þá til hjónavígslu sem hafa flotta tölu, það eru 02022020, 20022020 og 22022020. Aðeins einn ber upp á laugardag en það er 22. febrúar. Fólk getur þó gift sig á hvaða degi vikunnar sem er. Sigurður Árni Þórðarson, sóknarprestur í Hallgrímskirkju, segir að borist hafi fyrirspurnir um þessa daga. „Líklegast verða hjónavígslur 2. og 20. febrúar í Hallgrímskirkju. Mögulega munum við bjóða upp á raðvígslur, endurnýjunarathafnir og sér- stakar viðburðavígslur þessa daga. Við prestarnir erum að ræða það næstu daga vegna fyrirspurna og umræðunnar,“ segir hann. Sigurður bendir á að það séu alltaf nokkrar fyrirspurnir varðandi ákveðna daga sem hafa skemmtilegar tölur. „Ég minnist 10102010 sem var einn svona dagur. Þar áður voru 02022002, 03032003, 04042004 og svo fram- vegis. Svo eru persónulegir dagar sem fólk miðar við, fæðingardagar í fjölskyldunni og aðrir mikilvægir dagar af því tagi sem fólk notar,“ segir hann og bætir við að hann verði ekkert sérstaklega var við að árstími skipti sérstöku máli þegar fólk giftir sig þótt hjónavígslur séu mun algengari á bjarta, hlýja tíma ársins. Í Bandaríkjunum er talað um nokkra ákjósanlega brúðkaups- daga árið 2020 en varðandi tölur býður árið margar skemmtilegar og einfaldar útfærslur. n Sunnudagur 0202/2020 n Laugardagur 2202/2020 n Laugardagur 0404/2020 n Laugardagur 0606/2020 n Laugardagur 0808/2020 n Laugardagur 1010/2020 n Laugardagur 1212/2020 Umhverfisvæn brúðkaup Því er spáð að á þessu ári muni brúðhjón horfa til umhverfisins þegar skipuleggja þarf brúðkaups- veisluna. Sjálf bærni kemur þar sterkt inn, vistvænir valkostir og ekkert plast. Búast má við að lif- andi blóm verði í keramikpottum sem skreytingar sem síðan er hægt að planta í jörð eftir veisluna eða gefa gestum. Skreytingar geta líka verið ávextir, til dæmis sítrónur eða epli. Meira að segja er mælt með að vínin komi úr nærliggjandi héraði sé þess kostur sem er auð- vitað ekki hægt alls staðar. Brúðkaupsdagurinn 02022020 Einfaldleiki og umhverfisvernd munu einkenna brúðkaup ársins. Hægt er að velja um marga skemmtilega daga þegar kemur að tölum. Hér er fyrir- sæta í brúðarkjól frá Mira Zillinger fyrir 2020. NORDICPHOTOS/GETTY Brúðkaupsdagur- inn er sá dagur sem enginn vill gleyma. Það er því ekki verra ef hægt er að gifta sig á degi sem ber eftirminnilega tölu. Nokkrir slíkir dagar hafa komið upp undanfarin ár og verða fleiri en einn árið 2020. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.