Fréttablaðið - 09.01.2020, Page 23
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Hljómsveitin kom fram á sjónarsviðið seinni hluta áttunda áratugarins, gaf út
sína fyrstu breiðskífu árið 1979,
og varð fljótlega þekkt sem ein af
helstu síðpönks- og nýbylgjusveit-
um þess tíma. Myrkrið og angur-
værðin sem sveif yfir vötnum á
annarri breiðskífu hljómsveitar-
innar, Seventeen Seconds, varð svo
til þess að sveitin varð fljótlega, og
er enn, talin hálfgerður tákngerv-
ingur gotneska rokksins og þess
menningarkima sem skapaðist í
kringum það.
Skuggalegar vinsældir
Skömmu fyrir útgáfu Porno-
graphy, fjórðu breiðskífu hljóm-
sveitarinnar sem var enn drunga-
legri en fyrri plötur, árið 1982, fór
útlit Smiths og annarra meðlima
að taka á sig þá sérstæðu mynd
sem þykir einkennandi og er löngu
orðin samofin ímynd hljóm-
sveitarinnar.
Í kjölfar Pornography fóru
vinsældir sveitarinnar vaxandi,
vonleysið vék fyrir viðmótsþýðara
andrúmslofti, tónlistin varð popp-
aðri og fór sveitin að gefa út hvern
slagarann á fætur öðrum. Segja má
að sveitin hafi notið umtalsverðra
vinsælda um allar götur síðan, þó
að tónlistarlegur hápunktur sveit-
arinnar hvað almennar vinsældir
snertir hafi óneitanlega verið
snemma á níunda áratugnum fram
til byrjunar tíunda áratugarins. Þó
er vert að taka fram að drunginn
var að vissu leyti endurvakinn á
plötunni Disintegration sem kom
út árið 1989. Sveitin hefur þó enn
ekki sagt skilið við gotneskt útlitið
en komið hefur fram í viðtölum
við Smith að hann máli sig ekki
almennt um þessar mundir nema
um viðburði sé að ræða.
Túperuð tilþrif
Það sem var og er einna mest áber-
andi við útlit Smiths er kolsvart
hárið sem stendur út í allar áttir og
minnir helst á úfinn köngulóarvef.
Þá er hann vanalega hvítmál-
aður í framan, svartmálaður
um augun og með blóðrauðan
varalit klíndan á og í kringum var-
irnar, því kámugri, því betri. Hvað
fatnað varðar, er hann þekktur
fyrir að klæðast gjarnan víðum,
síðum bolum og skyrtum ásamt
dökkum gallabuxum og striga-
skóm. Þá ber hann einnig gjarnan
perlufestar.
Smith hefur þó sagt í viðtölum
að þrátt fyrir að vera eins konar
táknmynd og einn helsti áhrifa-
valdur gota (e. goths) hafi hann
sjálfur aldrei litið, hvorki á sjálfan
sig né hljómsveitina, sem slíka.
Útlitið og klæðaburðurinn sé
fyrst og fremst afurð leikrænnar
tjáningar, en sveitin hefur alla tíð
lagt ríka áherslu á sjónræna þátt-
inn, eins og sjá má og njóta í fjölda
stórskemmtilegra myndbanda
sem hún gaf út á sínum gullárum.
Hvað sem því líður, þá er óhætt
að fullyrða að það er hægara
sagt en gert að skilgreina þessa
fjölbreyttu hljómsveit sem á sér
engan sinn líka, hvort sem um
ræðir hljóm sveitarinnar eða útlit.
Leyfum myndunum að tala sínu
máli.
Drungaleg ásýnd
Robert Smith, forsprakki hinnar ódauðlegu ensku hljóm-
sveitar The Cure, er þekktur fyrir sérstakan klæðaburð.
Útlitið og klæðaburðurinn er fyrst og fremst afurð leikrænnar tjáningar en
sveitin hefur alla tíð lagt ríka áherslu á sjónræna þáttinn. NORDICHPOTOS/GETTY
Einna mest áberandi við útlit Smiths er hárið sem stendur í allar áttir og minnir helst á úfinn köngulóarvef.
Stutthærður Smith. Jakkafataklæddur Smith.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
NETVERSLUN WWW.BELLADONNA.IS
ÚTSALAN ER HAFIN
30-50% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM ÚTSÖLUVÖRUM
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS
ÚTSALAN ER HAFIN
30-50% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM ÚTSÖLUVÖRUM
Bíóvarpið
FRETTABLADID.IS
á frettabladid.is
hlustaðu þegar þér hentar
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R