Fréttablaðið - 04.12.2019, Blaðsíða 12
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5055.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Sævar Brynjólfsson
skipstjóri,
Pósthússtræti 3, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
sunnudaginn 1. desember.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn
10. desember kl. 13.00.
Ingibjörg Hafliðadóttir
Bryndís Sævarsdóttir Einar Þ. Magnússon
Hafliði Sævarsson Jenný Lovísa Þorsteinsdóttir
Brynjólfur Ægir Sævarsson Áslaug Ármannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku faðir okkar,
Jónas Guðlaugsson
frá Eyrarbakka,
Hólabergi 82, Reykjavík,
lést á heimili sínu föstudaginn
29. nóvember sl. Útförin auglýst síðar.
Ingibjörg Jónasdóttir Gísli Ólafsson
Nicolai Jónasson Ásta Bjarney Pétursdóttir
Jónas Garðar Jónasson Jóhanna Gísladóttir
Guðlaugur Jónasson Guðrún Axelsdóttir
Sigurður Jónasson Bjarnþóra María Pálsdóttir
og fjölskyldur.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Haraldur Þórðarson
áður til heimilis að
Gunnarsbraut 36, Reykjavík,
andaðist á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja 21. nóvember. Útförin fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 6. desember kl. 11.00.
Aðstandendur.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sigríður Mekkín
Þorbjarnardóttir
Breiðagerði 19,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli
föstudaginn 29. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 6. desember kl. 11.00.
Ásgeir Egilsson Sara Sofia Roa Campo
Kjartan Egilsson Guðfinna E. Guðmundsdóttir
Unnur Egilsdóttir Þorsteinn Þorsteinsson
Pálmi Egilsson
ömmu- og langömmubörn.
Elsku pabbi okkar, tengdapabbi og afi,
Haukur Pálmason
fyrrverandi aðstoðarforstjóri
Orkuveitu Reykjavíkur, áður
Rafmagnsveitu Reykjavíkur,
lést 24. nóvember.
Útförin fer fram frá Neskirkju
miðvikudaginn 4. desember kl. 11.00.
Anna Soffía Hauksdóttir
Jóhannes Hauksson Inga Björg Hjaltadóttir
Helga Hauksdóttir Hafþór Þorleifsson
Haukur Óskar Auður Tinna
Margrét Aðalheiður Friðgeir Ingi
Hringur Ásgeir Ívar
Hildur Ylfa
Haukur Oddur
Urður
Það er mikið lagt í þessa tón-leika,“ segir Jónína Aradótt-ir söngkona um viðburðinn Jól í Ósló sem haldinn verður á laugardaginn í Nordic Black Theater. Hún
segir á þriðja tug manns munu koma
fram, bæði fólk sem starfar við tónlist
og hefur kórsöng og hljóðfæraleik að
áhugamáli. Meðal nafna á söngskránni
eru rokkarinn Eiríkur Hauksson og
óperusöngvarinn Kolbeinn Jón Ketils-
son og meðal hljóðfæraleikara er Gróa
Hreinsdóttir.
„Flestir f lytjendurnir búa í grennd við
Ósló, til dæmis í Drammen sem er álíka
langt frá borginni og Hveragerði er frá
Reykjavík. Ég bý líka í nágrannabæ Ósló
og er 45 mínútur í lest á æfingar,“ upp-
lýsir Jónína. Hún kveðst ætla að taka
eitt lag ein á tónleikunum og annað-
hvort verði píanó með henni eða hljóm-
sveit. „Ég syng lag sem heitir Það eru að
koma jól eftir Magnús Kjartansson og
Halldór Gunnarsson. Heyrði Guðrúnu
Árnýju syngja það og fannst það svo
geggjað. Svo tek ég dúett með henni
Guðbjörgu Magnúsdóttur, hún var einu
sinni í Frostrósum, mjög góð söngkona.“
Jónína segir að þetta sé annað árið í
röð sem slíkir jólatónleikar Íslendinga
séu haldnir í Ósló. Það hafi verið Gróa
Hreinsdóttir, organisti í Drammen,
og Ómar Friðriksson sem höfðu for-
göngu um þá. „Ómar er frá Hvolsvelli.
Ég kannast við hann þaðan, hitti hann
svo í fyrra þegar ég var að f lytja hingað
og hann sagði strax: „Viltu kannski
vera með á jólatónleikunum?“ Það var
svo frábært því þá kynntist ég öllu tón-
listarfólkinu á einu bretti og hitti marga
Íslendinga meðal gesta.“
Tónleikasalurinn tekur 100 manns,
að sögn Jónínu. „Við vorum með tvenna
tónleika sama kvöldið í fyrra. Byrjuðum
að selja á 9.00-tónleikana og bættum
svo öðrum við. Þannig er það núna
líka. Við syngjum á íslensku, ensku
og norsku á þessum tónleikum. Fólki
fannst rosa gaman í fyrra, líka þeim
Norðmönnum sem komu.“
Jónína kveðst svo vera að fara, ásamt
Guðbjörgu og Gróu Hreins, í jólatón-
leikatúr um Noreg. „Þar ætlum við að
bjóða upp á íslensku jólalögin, eða
íslenska texta við íslensk og norsk og
sænsk lög, því Íslendingar hafa auð-
vitað samið texta við mörg slík.“ Spurð
um tilvonandi tónleikastaði í ferðinni
nefnir hún Bergen, Stavanger, Kristians-
and og Þrándheim. „Þetta er bara prufa
núna, verður vonandi árvisst. Fundum
engan stað til að koma fram á í Tromsö
en það gengur vonandi betur á næsta
ári.
Ég held þetta verði rosa gaman. Við
heyrðum í konum í Stavanger og Krist-
jansand. Þær voru strax til í að henda í
kaffi og kökur, þannig að þetta verður
svona eins og hjá konunum í sveitinni!“
gun@frettabladid.is
Jól í Ósló á laugardaginn
Hér er verið að æfa fyrir stórtónleikana. Guðbjörg og Jónína að syngja og
til hægri sést gítarleikarinn plokka strengina. MYND/SIGURÐUR RÚNAR
Sungið verður á íslensku,
norsku og ensku á stórtón-
leikum íslensks tónlistar-
fólks í Ósló og nágrenni
næsta laugardag,
7. desember. Meðal flytj-
enda er Jónína Aradóttir.
Mikið var um dýrðir í hátíðarsal Iðnó 2. desember þegar IÐNÚ útgáfa hélt þar afmælishóf í til-
efni sjötíu ára afmælis. Þar voru saman
komnir boðsgestir úr ýmsum áttum
sem hafa komið að starfsemi IÐNÚ með
einum eða öðrum hætti.
Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari
Tækniskólans, stýrði dagskránni og
gestir hlýddu á fræðandi og skemmtileg
erindi og tónlistaratriði á milli. Kór
Kvennaskólans söng jólalög og Már
Gunnarsson, tónlistar- og íþrótta-
maður, lék frumsamin lög á píanó og
söng. Veislugestir gæddu sér svo á dýr-
indis veitingum sem bakaranemar frá
Menntaskólanum í Kópavogi reiddu
fram.
Upphaf námsbókaútgáfunnar má
rekja til frumkvöðla iðnskólanna sem
komu saman árið 1948 og settu á fót
Samband iðnskóla á Íslandi. Ári síðar
var Iðnskólaútgáfan stofnuð, nú IÐNÚ
útgáfa, að henni standa í dag þrettán
iðn-, tækni- og verkmenntaskólar á
Íslandi. – gun
IÐNÚ útgáfa fagnaði sjötíu ára afmæli í Iðnó
Jóhannes Einarsson og Hjalti Jón Sveinsson, fyrrv. stjórnarmenn í Iðnú, Heiðar Ingi
Svansson og Erling R. Erlingsson, núverandi og fyrrv. framkvæmdastjórar Iðnú.
4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT