Fréttablaðið - 04.12.2019, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 04.12.2019, Blaðsíða 28
Mönn um finnst dá lítið eins og Rík is út varpið fljóti um á vind sæng með sólgler­ augu meðan all ir á einka markaði berj ast í bökk um. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra 29.11.2019 MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is Miðvikudagur 4. desember 2019FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL | Helgi Vífill Júlíusson SKOÐUN PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar, endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn. Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar 2019 Verðmæti Hafðu samband því þinn árangur er mikils virði. Hámarkaðu árangurinn þinn og verðmæti með því að nýta þér fjölbreytta þekkingu og víðtæka reynslu PwC á öllum sviðum rekstrar. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) bætti verulega við eignarhlut sinn í VÍS þegar sjóðurinn keypti meirihluta þess 7,25 prósenta hlutar sem Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir og Guðmundur Örn Þórðar- son seldu í tryggingafélaginu 21. nóvember síðastliðinn. Er hann nú stærsti hluthafi VÍS með 9,6 prósenta hlut en með kaupunum tvöfaldaðist næstum því hlutur sjóðsins. Samkvæmt heimildum Markaðarins keypti LSR, bæði A- og B-deild sjóðsins, sam- tals 80 milljónir hluta í VÍS, eða sem nemur rúmlega 4,1 prósents eignarhlut, fyrir um 877 milljónir króna. Aðrir kaupendur að bréfunum sem Svanhildur og Guðmundur seldu í VÍS, sem þau áttu í gegnum félagið K2B fjárfestingar, voru meðal annars lífeyr- issjóðirnir Frjálsi, Stapi, Birta og Lífsverk. Næststærsti hluthafi VÍS er Lífeyrissjóð- ur verslunarmanna með 8,13 prósenta hlut en þar á eftir koma erlendir sjóðir í stýringu Landsdowne og Miton. – hae LSR orðinn stærsti hluthafi VÍS Harpa Jóns- dóttir, fram- kvæmda- stjóri LSR. Stjórnendur fjölmiðla þurfa að gera betur þegar kemur að því að skapa fjölskylduvæna vinnustaði. Það er mikilvægt fyrir blaðamenn sem eiga ung börn að losna úr vinnu á skikkanlegum tíma til að sækja þau í dagvistun. Mín reynsla, sem nær aftur til árs- ins 2006, er að blaðamenn vinna ólaunaða yfirvinnu og fá ekki frí á móti. Hlúa þarf vel að starfs- mönnum enda er vinnuframlag þeirra sem eru ánægðir í starfi betra. Eftir að fréttalestur færðist á internetið er það heilbrigð fyrir- tækjamenning sem mun skapa þungavigtarfjölmiðlum sam- keppnisforskot. Í góðri menningu verða hugmyndir frjórri, sam- band við heimildarmenn sterkara og viðmið í fréttamennsku betri. Í ljósi langra vinnudaga þótti Blaðamannafélaginu ef laust ekki sannfærandi að hægt væri að stytta vinnuvikuna, eins og kveðið er á um í lífskjarasamn- ingnum sem okkur stendur til boða. Það er hins vegar hægt að stytta vinnuvikuna með sveigjan- legri vinnutíma. Að sama skapi hafa blaðamenn farið fram úr sér í kjarabaráttu sinni. Að sjálfsögðu vil ég hærri laun fyrir mig og samstarfsmenn mína. Of margir blaðamenn eru á alltof lágum launum. Flest eigum við skilið vænar launahækkanir. Veruleikinn er því miður sá, að það er ekki raunhæft eins og sakir standa að hækka launin. Fjölmiðlar standa höllum fæti enda hafa auglýsingatekjur dregist hratt saman og áskrif- endum fer fækkandi. Af koma fjölmiðla í ár verður án efa enn verri en í fyrra. Fyrirtæki verða að geta staðið undir launahækk- unum. Annars fara þau á hausinn eða segja upp starfsmönnum í hagræðingarskyni. Í ljósi erfiðs rekstrarumhverfis óttast ég að störfum muni fækka í greininni. Hvernig blaðamenn standa að kjarabaráttu okkar hefur aukið á þann ótta. Það er tvennt sem getur bætt stöðu einkarekinna fjölmiðla. Í fyrsta lagi ættu allar fjölskyldur sem láta sig þjóðfélagsmál varða að vera áskrifendur. Það liggur í augum uppi að lesendur verða að styðja við bakið á þeim fjöl- miðlum sem eru þeim að skapi. Í öðru lagi eru skattar á Íslandi með þeim hæstu sem þekkist. Það dregur úr krafti fyrirtækja til að auglýsa og endurspeglast til dæmis í háu tryggingagjaldi sem eykur launakostnað. Í þriðja lagi þarf að loka RÚV enda sogar það til sín auglýsingatekjur og almannafé. Vandi fjölmiðla

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.