Fréttablaðið - 04.12.2019, Blaðsíða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
ÞAÐ GETA ALLIR SEM
VILJA FENGIÐ BOLLA
SAMA ÚR HVAÐA FLOKKI ÞEIR
KOMA.ILMKERTI,
LUKTIR OG
KERTASTJAKAR
FRÁ AFFARI
JÓLATILBOÐ
20%
AFSLÁTTUR
SMÁRATORG HOLTAGARÐAR
AKUREYRI ÍSAFJÖRÐUR
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
Fyrir þínar
bestu stundir
Afgreiðslutími Rvk
Mán. til fös. kl. 11–18.30
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
SMÁRATORG HOLTAG
ARÐAR
AKUREYRI ÍSAFJÖRÐU
R
www.dorma.is
ILMKERTI,
LUKTIR OG
KERTASTJAKAR
FRÁ AFFARI
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
Fyrir þínar
bestu stundir
JÓLATILBOÐ
AFFARI – RO
Ro ilmkerti. Nokkrir ilmir.
Fullt verð: 2.790 kr.
Jólatilboð aðeins 2.232 kr.
20%
AFSLÁTTUR
AFFARI
Sense ilmkerti.
Nokkrir ilmir.
Fullt verð: 3.590 kr.
Jólatilboð aðeins 2.872 kr.
BIANCO
Bianco ilmkerti. Nokkrir i
lmir.
Fullt verð frá: 990 kr.
Jólatilboð frá 792 kr.
Þú finnur jólabækling Dorma á www.doma.is
AFFARI
Sense ilmkerti.
Nokkrir ilmir.
Fullt verð: 3.590 kr.
Jólatilboð aðeins 2.872 kr.
Jólatónleikar til styrktar Líf styrktarfélagi Landspítalans
fimmtudaginn 5. desember kl. 12
Miðasala á tix.is og við innganginn - Miðaverð 2500.-
- í Fríkirkjunni í Reykjavík.
JólatónleikarJÓL Í BÆ
Bjarney heldur utan um söluna á Miðflokks-kaffibollunum á netfanginu bjarney@kopavogur.is. Stykkið kostar
3.000 krónur og hún sendir að sjálfsögðu út á land þaðan sem pantanir hafa þegar borist. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
V iðbrögðin hafa verið ótrúlega góð og fyr-irspurnum um boll-ana rignir inn. Enn eru samt nokkrir eftir og það er byrj-
að að búa til f leiri,“ segir Bjarney
Jóhannesdóttir, varabæjarfulltrúi
Miðf lokksins í Hafnarfirði, um
kaffibolla með merki f lokksins
sem f lokksfélagið í bænum selur
upp í húsaleigu.
„Allir oddvitar og þingmenn
verða að sjálfsögðu að eign-
ast svona bolla til að drekka
morgunkaffið úr og Gunnar
Bragi, Karl Gauti og
Siggi stormur hafa,
svo einhver jir
séu nefndir, nú
þeg a r t r yg g t
s é r n o k k u r
stykki,“ segir
Bjarney sem sér
jafnvel fyrir sér
þver p ól it í sk a n
áhuga á leirtauinu
eftirsótta. „Það geta
allir sem vilja fengið
bolla sama úr hvaða f lokki
þeir koma.“
Aðspurð segir Bjarney kanón-
urnar Vigdísi Hauksdóttur borgar-
fulltrúa og sjálfan formanninn,
Sigmund Davíð Gunnlaugsson,
ekki enn hafa tryggt sér Miðflokks-
bolla en það hljóti að breytast snar-
lega. „Vigdís hefur ekki falast eftir
bolla enda eru þeir nýtilkomnir og
salan rétt að byrja.“
Bolla beitt fyrir vagninn
Bjarney segir áhugann og kraftinn
slíkan að ekki verði hjá því komist
að leigja húsnæði undir starfsemi
Miðf lokksfélagsins í Hafnarfirði.
„Við höfum verið að leigja húsnæði
til að hittast enda er fólk áhuga-
samt og starfið hérna öf lugt og til
þess að halda svona starfi gangandi
þarf að hafa einhvern samastað og
allt kostar þetta pening.
Þeir sem þiggja laun fyrir setu
í ráðum og nefndum borga bara
leiguna úr eigin vasa og við höfum
verið sex eða sjö sem látum eitt-
hvað af hendi rakna í hverjum
mánuði. Við erum búin að vera að
skoða hvort við gætum ekki ein-
hvern veginn létt okkur róðurinn
og þá bara datt okkur þetta í hug.
Hvort það væri ekki hægt að setja
lógó á bolla og selja. Þannig að
þetta kom nú bara til vegna þess að
við erum að reyna að styrkja okkur
í þessum leigumálum,“ segir Bjarn-
ey sem gekk sjálf í málið og salan
hófst síðan um helgina í vikulegu
vöff lukaff i félagsins á laugar-
dögum.
Stilltur Sigmundur fær bolla
„Og þetta bara vakti svona
lukku að ég setti nýja pöntun af
stað strax eftir helgina þannig
að þetta sem var nú bara svona
tilraunastarfsemi hefur eigin-
lega fengið fáránlega góð við-
brögð,“ segir Bjarney hlæjandi
og bætir við að áhuginn leynist
víða. „Fólk utan af landi er meira
að segja búið að hafa samband
og biðja um að fá senda bolla.“
Bjarney hefur ekki enn fengið
pantanir í heilu stellin en algengt
er að fólk vilji fá ýmist tvo bolla eða
fjóra. Tveir séu eiginlega lágmark
þar sem það verði helst að drekka
Braga-kaffið með einhverjum.
Miðflokkurinn fær ekki krónu af
söluhagnaðinum en Bjarney segir
uppátæki þeirra í Hafnarfirði þó
njóta velþóknunar f lokksforyst-
unnar. „Þeim fannst þetta nú bara
sniðugt og Gunnar Bragi og Karl
Gauti eru nú allavega báðir búnir
að fá sína bolla. Þeir eru voða dug-
legir að koma og voru hjá okkur
á laugardaginn,“ segir Bjarney og
hlær. „En nei, f lokkurinn fær nú
engar prósentur en ef Sigmundur
Davíð hagar sér vel læt ég hann
kannski hafa bolla fyrir jólin.“
toti@frettabladid.is
Hestur Miðflokksins
heitur á kaffibollum
Miðflokksfélag Hafnarfjarðar safnar upp í húsaleigu með sölu á kaffibollum
sem skarta gæðingnum í merki flokksins. Miðflokkurinn fær ekki krónu en
Sigmundur Davíð fær kannski bolla fyrir jólin „ef hann hagar sér vel“.
4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð