Fréttablaðið - 04.12.2019, Blaðsíða 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000
Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Davíðs
Þorlákssonar
BAKÞANKAR
Í fyrradag voru nýjar niður-stöður alþjóðlega námsmats-kerfisins PISA birtar. PISA var
komið á fót af OECD árið 2000.
Þróuðustu ríki heims eiga aðild
að OECD og taka öll þátt í PISA
auk annarra ríkja. Sérfræðingar
frá öllum heimshornum hafa
komið að þróun kerfisins. PISA
er ekki fullkomið frekar en aðrar
kannanir. Það nýtist hins vegar til
að bera saman árangur íslenskra
ungmenna milli ára og bera
gengi þeirra saman við jafnaldra
í öðrum löndum. Enginn betri
mælikvarði er til. Niðurstaðan er
að lesskilningur og læsi á nátt-
úruvísindi dala og þar erum við
enn undir meðaltali OECD. Læsi á
stærðfræði batnar og við komumst
upp fyrir meðaltal OECD þar.
Samtök atvinnulífsins kynntu
fyrir mánuði níu tillögur að því
hvernig mætti bæta námsárangur
í grunnskólum. Tillögurnar eru
byggðar á samtölum við fjölda
innlendra fagaðila og á innlendum
og erlendum skrifum. Lagt var til
að aukin áhersla yrði lögð á lestur,
stærðfræði og vísindi, notaðar
yrðu alþjóðlega viðurkenndar
aðferðir við lestrarkennslu,
aðkoma f leiri fagstétta að grunn-
skólum yrði aukin, hlúð yrði
sérstaklega að drengjum, meðal
annars með fjölgun karlkennara,
að börnum innf lytjenda og að
þeim sem geta orðið af burðanem-
endur, sjálfstætt starfandi skólar
yrðu ef ldir, sjálfstæði opinberra
skóla yrði aukið og grunnskólinn
yrði styttur í níu ár með lengingu
skólaársins.
Á sama tíma erum við að verja
hærra hlutfalli þjóðarframleiðslu
til grunnskóla en nokkurt annað
OECD-ríki. Það hljóta allir að vera
sammála um að þetta er óásættan-
legt og við þurfum að skoða tafar-
laust hvað við getum gert til að
bæta þetta.
Skóli í vanda
FRÍTT KAFFI
Í DESEMBER
TVEIR RISALEIKIR
Á SÍMINN SPORT
Í kvöld mætir José Mourinho aftur á Old Traord
og Gylfi Sigurðsson og félagar sækja Liverpool,
topplið ensku deildarinnar heim á Anfield.
19.00 MAN. UTD. - TOTTENHAM
19.45
Síminn Sport 2
Síminn Sport LIVERPOOL - EVERTON
siminn.is/siminn-sport
Gefðu
í jólapakkann