Fréttablaðið - 10.12.2019, Side 8
G-rjómi geymist vel
Laktósalaus G-rjómi er tilbúinn
til notkunar þegar þér hentar.
gottimatinn.is
HEILBRIGÐISMÁL „Við reynum auð-
vitað að vernda klíníska þjónustu
og höfum stífari aðhaldsaðgerðir á
stoðþjónustu. Þar að auki reynum
við að nota starfsmannaveltu þar
sem hægt er,“ segir Páll Matthías-
son, forstjóri Landspítalans, um
uppsagnir á starfsfólki spítalans.
Í forstjórapistli sínum síðastlið-
inn föstudag sagði Páll að aðhalds-
aðgerðum og skipulagsbreytingum
hefðu fylgt sársaukafullar uppsagn-
ir á starfsfólki. Páll staðfestir að þar
sé um fleiri starfsmenn að ræða en
framkvæmdastjórana sem sagt var
upp í sumar.
„Við dreifum út hagræðingarkröf-
unni og þá sérstaklega á stoðþjón-
ustu. Síðan er það hvers yfirmanns
að meta hvernig hann mætir henni.
Hvort hann geri það með að ráða
ekki í stað einhverra sem hætta,
segja upp fólki jafnvel í einhverjum
tilvikum eða grípa til annarra hag-
ræðingaraðgerða.“
Hann segist ekki hafa tölur yfir
þann fjölda sem sagt hefur verið
upp. „Þegar fram í sækir munum
við hafa þær tölur en það var okkar
reynsla í hruninu að það þurfi að
horfa á það hversu margir í raun
hætta. Það er oft þannig að áður en
þriggja mánaða uppsagnarfrestur-
inn er liðinn er búið að bjóða fólki
annað starf á spítalanum.“
Páll leggur áherslu á að rekstur
flestra af hinum 200 einingum spít-
alans gangi vel og sé í jafnvægi þótt
auðvitað séu alltaf álagspunktar á
vissum deildum.
„Það er skiljanlegt að þegar við
erum að hagræða, þótt við séum
að reyna að verja klíníska starf-
semi, taki það á. Við þurfum að
beita aðhaldi í ýmsum þáttum sem
snúa að launakjörum og umhverfi
starfsfólks. Ég skynja það samt hjá
mjög mörgum að fólk skilur mikil-
vægi þess að við séum fjárhagslega
sjálf bær.“
Þær aðgerðir sem farið hefur
verið í eiga að skila tæplega millj-
arði í sparnað á yfirstandandi ári og
tæpum þremur milljörðum á næsta
ári. Um tveir þriðju aðgerðanna
snúist um launaliðinn enda séu laun
um 70 prósent af kostnaði spítalans.
Í nýrri skýrslu OECD um íslenska
heilbrigðiskerfið kemur fram að
framlög til kerfisins nemi 8,3 pró-
sentum af vergri landsframleiðslu.
Meðaltal OECD-ríkja er 8,8 prósent.
Páll segir að sá samanburður segi
kannski ekki alla söguna þar sem
landsframleiðsla hafi aukist mikið.
„En það er líka hægt að horfa
til þeirrar fjárhæðar sem er varið
á hvern íbúa. Þar erum við næst-
neðst Norðurlanda, rétt fyrir ofan
Finnland. Við erum samt í mjög
litlu samfélagi þar sem mætti gera
ráð fyrir að það væri ef eitthvað er
dýrara að reka ýmislegt.“
Þjóðin sé að eldast sem muni
leiða til vaxandi áskorana innan
kerfisins á næstu áratugum. „Ef við
ætlum að mæta þeim þörfum þarf
að láta meira fé til heilbrigðismála.
Þannig að verkefnið verður vænt-
anlega á næstu áratugum annars
vegar að reyna að reka þetta áfram
á framúrskarandi hagkvæman hátt
en hins vegar að finna leiðir til að
láta stærri hluta af þjóðarkökunni
renna til heilbrigðismála.“
sighvatur@frettabladid.is
Umfang uppsagna liggur ekki fyrir
Reynt er að vernda klíníska þjónustu með aðhaldsaðgerðunum. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Forstjóri Landspítalans
hefur enn ekki tölu yfir
hversu mörgum hefur
verið sagt upp á Land-
spítalanum en reynt sé
að nota starfsmanna-
veltu til að milda áhrif-
in. Aðhaldsaðgerðir
sem snúi að launum
og starfsumhverfi taki
auðvitað á starfsfólk.
Magnus Carlsen, heimsmeistari í skák. NORDICPHOTOS/GETTY
ÍÞRÓTTIR Draumaliðsleikurinn
Fantasy Premier League nýtur
mikilla vinsælda. Um sjö milljónir
einstaklinga skráðu sig til leiks um
heim allan. Hér á landi skemmta
mörg þúsund Íslendingar sér við að
velja lið fyrir hverja umferð ensku
úrvalsdeildarinnar og safna stig-
um. Annar eins fjöldi Íslendinga
skráði sig síðan til leiks en hætti
f ljótlega að uppfæra liðið sitt eftir
af leitt gengi.
Vegleg verðlaun eru fyrir efstu
sætin í leiknum en Íslendingar
sem hugsa sér gott til glóðarinnar
hafa eignast verðugan keppinaut,
sjálfan heimsmeistarann í skák.
Magnus Carlsen, sem margir
telja besta skákmann sögunnar,
hefur átt góðu gengi að fagna í
leiknum vinsæla en hann situr í
sjötta sæti leiksins þegar þessi orð
eru skrifuð.
Carlsen er mikill áhugamaður
um knattspyrnu og eyðir drjúgum
tíma í að fylgjast með ensku úrvals-
deildinni. Uppáhaldsliðið hans er
þó spænska stórliðið Real Madrid
og sækir hann iðulega leiki liðsins
heim sem heiðursgestur.
Carlsen er stórstjarna í heima-
landi sínu Noregi og hafa f jöl-
miðlar ytra veitt gengi hans í Fan-
tasy mikla athygli. Fyrst var greint
frá því að hann væri í 162. sæti
sem þóttu mikil tíðindi en síðan
þá hefur heimsmeistarinn klifrað
rólega upp listann.
Í viðtölum hefur hann þó ekki
viljað meina að mikil hugsun sé á
bak við árangurinn heldur fyrst og
fremst heppni. – bþ
Heimsmeistarinn í skák nálgast
toppinn í Fantasy-deildinni
Magnus Carlsen er nú í
6. sæti af 7 milljónum.
1 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð