Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.12.2019, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 10.12.2019, Qupperneq 14
FÓTBOLTI „Menn fóru í það fyrir um hálfum mánuði síðan að taka á þessum vanskilaskuldum við leik- menn. Í dag er örlítið brot eftir af því og það verður klárað fyrir jólin. Þá getur FH sagt: Við skuldum engin laun. En auðvitað er félagið ekki að senda út tilkynningar um að það skuldi ekki – það er bara eðlilegt að skulda ekki laun. En þetta er búið að vera þungt í nokkra mánuði og menn kannski ekki nógu duglegir að klára málin,“ segir Viðar Hall- dórsson, formaður FH. Í gær bárust fréttir af því að barna- og unglingaráð knatt- spyrnudeildar FH (BUR) hefði fyrr í vikunni sagt sig frá öllum trúnaðar- störfum fyrir knattspyrnudeildina eftir að stjórn knattspyrnudeildar- innar tók pening af reikningum sem barna- og unglingaráð vildi ekki lána. Fundað hefur verið um málið og er unnið að sátt um ágreininginn. Viðar segir að enginn peningur hafi verið tekinn. „Þetta var lán, það var ekki verið að taka neina peninga. En þau sem voru í BUR vildu ekki lána peninginn. Það var ágreiningur um upphæðir. Smáar í mínum huga í félagi sem hefur fjárstreymi upp á einn og hálfan milljarð,“ segir Viðar. Barna- og unglingaráð FH sendi frá sér harðort bréf til foreldra. Þar var sagt að ástæðan fyrir afsögn- inni væri skoðanaágreiningur við formann og framkvæmda- stjórn knattspyrnudeildar og for- mann félagsins, trúnaðarbrestur og óásættanleg vinnubrögð þeirra síðustu vikur. Nýrri tilkynning var mildari þar sem talað var um að verið væri að vinna sameiginlega að sátt um ágreining aðila. Aðilar væru staðráðnir í því að tryggja að starfið fyrir iðkendur, foreldra og þjálfara haldist óbreytt. Fjölmörg lið skulda Fjármál FH hafa verið töluvert í fréttum að undanförnu eftir að Steven Lennon og Pétur Viðarsson létu vita að þeir ættu inni laun. Lennon birti mynd af syni sínum á Instagram þar sem textinn var: Sonur minn að leita að laununum mínum, og Pétur Viðarsson sagði í hlaðvarpsþættinum Fantasy Gand- alf að vandamál FH hefðu auðveld- að sér ákvörðun um að leggja skóna á hilluna. „Það þarf að fara í svona mál og það var gert. Ég veit að fjölmörg félög skulda leikmönnum laun, hvort þau skulda jafn mikið veit ég ekki, en fullt af félögum skulda laun og hafa gert í lengri tíma. Það er ekk- ert gaman að vita af því.“ Gert upp við leikmenn fyrir jól Fjármál FH hafa verið í brennidepli frá lokum Pepsi-deildarinnar. Barna og unglingaráð sagði af sér eftir að félagið færði peninga af reikningum til að greiða leikmönnum laun. Formaður félagsins og fyrrverandi formaður knattspyrnudeildarinnar fóru í málið. Steven Lennon birti mynd af syni sínum á Instagram. Við myndina skrifaði Lennon að sonur hans væri að leita að laununum hans. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Viðar Halldórsson sýnir hér uppbyggingarplön í Kaplakrika árið 2007. Hann iðar í skinninu að skrifa undir eignaskiptasamning við Hafnarfjarð- arbæ sem hefur legið á borði bæjarins síðan árið 2002. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR 6 milljónir voru fengnar að láni frá barna og unglinga­ ráði FH. Ekki byrjað að byggja í gær FH hefur verið að byggja við Kapla- krika undanfarin ár og tekið í notkun bæði Dverginn og nú Skess- una. Kaplakriki er orðinn eitt glæsi- legasta íþróttasvæði landsins. Það hefur kostað sitt en frá 1. nóvem- ber náði félagið samkomulagi við bæinn um þessi mannvirki. Var samningur þess efnis lagður til við bæjarráð Hafnarfjarðar á síðasta fundi ráðsins þann 5. desember. Viðar segir að nú séu 25 þúsund fer- metrar af húsnæði og mannvirki upp á hundruð milljóna króna á svæðinu. Það eina sem eigi eftir að gera sé að skrifa undir eignaskipta- samning. „Það er búið að vera mein- ingin að klára þann samning síðan 2002 en góðir hlutir gerast hægt. Með þeim samningi verður ljóst hvað bærinn á og hvað FH á. Sumir hafa sagt að ég hafi farið þetta á hnefanum en ég neita því og segi að ég hafi verið að verja hags- muni FH og standa á rétti þess. Ég er ánægður með að við náðum því sem við lögðum af stað með og þetta mun skipta máli. Ég held líka að ef menn horfa á byggingarsögu Kapla- krika og framsýni og dug þeirra sem hana byrjuðu, þá séu þeirra gjörðir varðar. Við byrjuðum ekkert í gær að byggja í Kaplakrika þó margir í pólitíkinni haldi það.“ benediktboas@frettabladid.is LYFJAHNEYKSLI Alþjóðalyfjaeftir- litið, WADA, dæmdi Rússland í gær í fjögurra ára bann frá alþjóðlegum íþróttakeppnum. Búist var við harðari refsingu en árin fjögur eru lágmarksrefsing. Rússar hafa þrjár vikur til að áfrýja málinu en þeir þykja hafa sloppið vel samkvæmt erlendum fréttum. Það verður því enginn kepp- andi undir merkjum Rússlands á Ólympíuleikunum í Tókýó á næsta ári sem dæmi en þeir íþróttamenn sem standast lyfjapróf mega keppa, en þá undir hlutlausum merkjum. Á Vetrarólympíuleikunum í fyrra unnu rússneskir hlutlausir íþrótta- menn 13 gullverðlaun sem dæmi. Rússar geta ekki sent lið til keppni á HM í Katar árið 2022 en verða þó með á EM á næsta ári þar sem keppt verður í Sankti Péturs- borg meðal annars. Skilgreinir WADA ekki UEFA og EM í fótbolta sem stórmót. FIFA á eftir að taka ákvörðun um hvort Rússum verði hleypt inn í undankeppnina fyrir HM í Katar sem rúllar af stað í mars 2021. Þá mun Rússland ekki keppa undir merkjum Rússlands heldur sem nafnlaust lið. Alþjóðalyfjaeftirlitið tók þessa ákvörðun þar sem rússneska lyfja- eftirlitið var talið hafa átt við gögn sem það sendi til Alþjóðalyfjaeftir- litsins í janúar síðastliðnum. Þeim gögnum urðu Rússarnir að skila sem eftirfylgni vegna lyfja- hneykslisins sem komst upp um árið 2015. Þá kom í ljós víðfeðm og skipu- leg lyf jamisnotkun rússneskra íþróttamanna á Ólympíuleikunum sem haldnir voru í Sotsjí í Rúss- landi árið 2014. Í kjölfar þess voru rússneskir íþróttamenn settir í þriggja ára bann og meiri kröfur gerðar til rússneska lyfjaeftirlitsins um að skila inn gögnum til Alþjóðalyfja- eftirlitsins. – bb Rússar fengu lágmarksrefsingu Brunað í Sotsjí árið 2014 á Vetrarólympíuleikum. Ári síðar kom skipulögð lyfjamisnotkun rússneskra íþróttamanna í ljós. NORDICPHOTOS/GETTY 1 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.