Fréttablaðið - 10.12.2019, Page 18
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Eva Laufey segir á allra færi að töfra fram réttina hennar. MYNDIR/HEIÐDÍS GUÐBJÖRG GUNNARSDÓTTIR
Eldamennskan er eins og allt annað; ef maður sýnir henni ást og umhyggju þá er líklegt
að útkoman verði stórgóð,“ segir
Eva Laufey sem safnaði saman
sínum eftirlætis uppskriftum um
langa hríð í glænýja matreiðslubók
sem ber nafnið Í eldhúsi Evu.
Bókin er þriðja matreiðslubók
Evu Laufeyjar. Í henni er að finna
yfir hundrað uppskriftir girnilegra
rétta fyrir öll tilefni en uppskrift-
irnar eiga sameiginlegt að vera fjöl-
breyttar og afar aðgengilegar.
„Það er á allra færi að töfra rétt-
ina fram. Hver einasta uppskrift á
sérstakan stað í hjarta mínu og ég
vona að þið njótið vel,“ segir Eva
Laufey sem hér gefur lesendum
æðislega uppskrift að heilnæmum
og gómsætum fiskrétti sem er til-
valið að gleðja bragðlaukana með á
aðventunni.
Fiskur er ekki bara bráðhollur
heldur er hann einnig algjört lost-
æti og segist Eva Laufey fá sér fisk
að lágmarki tvisvar í viku.
„Mér finnst algjör snilld hvað
það er hægt að útbúa marga og
góða rétti þar sem fiskur er í aðal-
hlutverki. Þessi uppskrift er afar
vinsæl á mínu heimili og mér finnst
langbest að nota þorskhnakka í
þennan rétt enda er hann á pari við
flottustu steikur í heimi,“ segir Eva
Laufey og gjörið svo vel:
Þorskhnakki með
pekanhnetukrönsi
800 g þorskur, roðlaus og bein-
hreinsaður
4 msk. sýrður rjómi
150 g pekanhnetur
2 msk. steinselja
1 tsk. sítrónubörkur
Safi úr ½ sítrónu
30 g parmesanostur
Salt og pipar
2 tsk. tímían
2 hvítlauksrif
Ólífuolía, magn eftir smekk
(krönsið á að vera þykkt)
Hitið ofninn í 180°C. Leggið fiskinn
í eldfast mót, kryddið með salti og
pipar og smyrjið fiskinn með sýrða
rjómanum. Setjið pekanhnetur,
steinselju, sítrónubörk, sítrónusafa,
parmesanost, salt, pipar, timían,
hvítlauk og ólífuolíu eftir smekk
í matvinnsluvél og maukið þar
til krönsið verður að fínu mauki.
Smyrjið maukinu yfir fiskinn og
rífið niður parmesanostinn og
sáldrið yfir fiskinn. Setjið hann í
ofn í 25 mínútur við 180°C. Berið
fram með ofnbökuðum kartöflum
og kaldri jógúrtsósu.
Köld jógúrtsósa
3 msk. sýrður rjómi
4 msk. grískt jógúrt
1 hvítlauksrif
20 g parmesanostur
1 tsk. sítrónubörkur
Safi úr hálfri sítrónu
Salt og pipar
1 msk. steinselja
1 tsk. hunang
Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél
og maukið þar til sósan er orðin létt
og fín.
Ofnbakaðar kartöflur
með fetaosti og
radísuspírum
600 g kartöflur
1 tsk. ferskt smátt skorið rós-
marín
1 tsk. ferskt smátt skorið tímían
1 msk. smátt skorin fersk stein-
selja
Salt og pipar
Ólífuolía
1 dl hreinn fetaostur
Radísuspírur
Skerið kartöf lurnar í litla báta og
setjið í eldfast mót. Saxið niður
ferskar kryddjurtir og blandið
þeim vel saman við kartöf lurnar
ásamt salti, pipar og ólífuolíu.
Setjið inn í ofn við 180°C í 30 til 35
mínútur, eða þar til kartöf lurnar
eru eldaðar í gegn. Rífið niður
hreinan fetaost og setjið yfir
kartöf lurnar þegar
þær eru komnar
út úr ofninum
ásamt fersk-
um radísu-
spírum.
Töfrandi þorskhnakkar Evu
Þorskhnakki með pekanhnetukrönsi er bráðhollur og einstaklega bragðgóður fiskréttur .
Matur er ekki bara matur í augum
sælkerakokksins og sjónvarps-
gyðjunnar Evu Laufeyjar Kjaran Her-
mannsdóttur. Í hennar huga er matur
sameiningartákn fjölskyldu og vina.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R