Fréttablaðið - 10.12.2019, Side 24
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Þegar fólk er fast í umferðar-teppu er mjög algengt að finna til streitu. Ýmislegt
getur farið úrskeiðis í akstri sem
veldur hraðari hjartslætti og
hækkun á blóðþrýstingi. Rann-
sóknir benda til að streita í dag-
legu lífi til langs tíma geti tekið
sinn toll af heilsunni. Streita við
akstur líkt og önnur streita er talin
auka áhættu á bæði hjartasjúk-
dómum og hjartaáfalli. Það eru þó
til leiðir til að minnka streitu undir
akstri og rannsóknir hafa sýnt
fram á að eitt besta vopnið gegn
streitu í umferðinni er tónlist.
Í rannsókn frá því í október á
þessu ári sem birtist í læknatíma-
ritinu Complementary Therapies
in Medicine skoðuðu rannsakend-
urnir þau áhrif sem tónlist hefur á
hjartað. Fimm heilbrigðar konur á
aldrinum 18-23 ára voru rannsak-
aðar. Stjórnandi rannsóknarinnar,
Vito Engrácia Valenti, sagði að
konur hefðu orðið fyrir valinu
vegna þess að fyrri rannsóknir
sýndu að konur eru næmari fyrir
hljóðrænni örvun.
Konurnar sem valdar voru til
þátttöku voru ekki mjög reyndir
bílstjórar. Þær keyrðu að meðaltali
fjórum til átta sinnum í mánuði
og höfðu eins til sjö ára reynslu
af akstri. Ástæða þess að óvanir
bílstjórar urðu fyrir valinu var að
rannsakendurnir töldu að reyndir
bílstjórar gætu betur höndlað
streitu við akstur.
Konurnar óku sömu leið
með og án tónlistar í bílnum
Konurnar voru beðnar að keyra
sömu leið undir sömu kringum-
stæðum sitthvorn daginn. Eini
munurinn á bílferðunum var að
seinni daginn hlustuðu þær á
instrumental tónlist bílnum. Til að
meta hvernig streita hafði áhrif á
konurnar voru hjartsláttarmælar
tengdir við brjóstkassann á þeim.
Mælarnir voru notaðir til að hjart-
sláttartíðni sem er það hversu oft
hjartað slær á hverri mínútu. Þegar
fólk er afslappað minnkar tíðnin
en hún eykst við streitu. Rann-
sóknin sýndi að þegar konurnar
hlustuðu á tónlist við aksturinn
lækkaði hjartsláttartíðni þeirra
sem sýndi að þær voru afslappaðri.
Samkvæmt dr. Valenti losar
sympatíska taugakerfið adrenalín
og nor-adrenalín út í blóðrásina
þegar við lendum í streituvaldandi
aðstæðum. Þegar það gerist aukast
líkur á óvæntum dauðsföllum
vegna streitu hjá fólki sem er í
áhættuhópi fyrir hjartasjúkdóma.
Læknar segja þekkt að þegar fólk
verður fyrir gífurlegri streitu,
til dæmis vegna missis náins
aðstandenda, geti það leitt stækk-
unar hjartans. Dr. Ragavendra
Baliga, hjartalæknir við háskóla-
sjúkrahús í Ohio í Bandaríkjunum,
segir að það sé því ekki ólíklegt að
minni streita geti líka haft áhrif á
hjartað, en hjartað sé þó alla jafna
fjótt að ná sér.
Dr. Valenti sagði að þar sem
streita við akstur er stór áhættu-
þáttur fyrir skyndilega hjarta-
sjúkdóma ætti þessi vísindalega
sönnun á jákvæðum áhrifum
tónlistar á hjartsláttartíðni að
hvetja fólk til að hlusta á tónlist
við akstur. Þó skiptir máli að velja
tónlistina vel en rannsókn frá
árinu 2017 bendir til þess að róleg
klassísk tónlist sé líklegust til að
hjálpa fólki að slaka á.
Dr. Valenti segist hafa notað
instrumental tónlist, sem er tónlist
án söngs, í rannsóknina vegna þess
að notkun tungumálsins í tónlist
hafi mismunandi áhrif á fólk.
Einnig bendir hann á að önnur
rannsókn framkvæmd af sama
teymi hafi sýnt að sama tónlist og
notuð var í akstursrannsókninni
hafi aukið jákvæð áhrif blóðþrýst-
ingslækkandi lyfja.
Það er því líklega mjög líklegt
til árangurs að hlusta á rólega og
sefandi tónlist þar sem manns-
röddin kemur hvergi við sögu ef
streitan gerir vart við sig í hvers-
dagslegu amstri.
Að hlusta á rólega tónlist
minnkar streitu við akstur
Það er mjög algengt að finna til streitu við akstur. Mikil streita hefur verið talin auka áhættu á
bæði hjartasjúkdómum og hjartaáfalli. Nýleg rannsókn hefur leitt í ljós að það að hlusta á tónlist
við akstur getur minnkað streituáhrif á hjartað. Best er að hlusta á rólega klassíska tónlist.
Það er gott ráð að kveikja á útvarpinu finni fólk til streitu við akstur. Mikil streita eykur hjartsláttartíðni en tónlist getur lagað hana NORDICPHOTOS/GETTY
Konurnar óku
sömu leið sitthvorn
daginn. Annan daginn
hlustuðu þær á tónlist í
bílnum hinn ekki.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir
Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5654/ jonivar@frettabladid.is
BÓKAJÓL
Veglegt sérblað Fréttablaðsins um bækur
kemur út 13. desember nk.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R