Fréttablaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 36
T I M E L E S S G I F T S
F O R H I M & H E R
Sölustaðir: Meba Kringlunni og Smáralind, Jón & Óskar Kringlunni og Smáralind, Klukkan Hamraborg, GÞ Bankastræti,
Halldór úrsmiður Glerártorgi, Karl R. Guðmundsson Selfossi, Michelsen Kringlunni, Klassík Egilstöðum.
Ef þú ert að taka til í snyrtivörunum þínum skaltu athuga hvernig er best að farga þeim. Það þarf að
flokka snyrtivörur eins og allt annað.
Þegar naglalakk verður gamalt, orðið
þykkt og leiðinlegt, lendir það oftast í
ruslinu. Hins vegar má ekki henda því í
ruslið því það á að fara í f lokkun undir
spilliefni. Þangað fara líka spreybrúsar
og ilmvötn.
Á endurvinnslustöðvum eru gámar
sem eru merktir spilliefnum og þangað
skal naglalakkið fara. Best er að safna
saman nokkrum hlutum sem eiga að
fara í spilliefnagáminn og gera sér ferð á
næstu endurvinnslustöð.
Naglalakk er hættulegur úrgangur
sem getur skaðað umhverfið og þess
vegna fer það í spilliefnagáminn. Það
sama á við um naglalakkseyði, þurr
sjampó og alls kyns hársprey. Gott er
að kynna sér hvernig best er að flokka
gamlar snyrtivörur en það er hægt að
gera inni á vef Sorpu.
Naglalakkið fer í spilliefnagám
Gamalt naglalakk á ekki að fara í ruslatunnuna.
Saoirse Ronan og Florence Pugh
voru smekklega klæddar í London.
Tvær aðalleikkvennanna í myndinni Little Women sem frumsýnd var fyrr í mánuðin
um voru flott klæddar í myndatöku
sem fór fram í London á dögunum.
Saoirse Ronan sem leikur Jo í
myndinni, sem er áttunda kvik
myndin sem gerð er eftir hinni
klassísku skáldsögu frá árinu 1868,
var klædd í brúna doppótta stutt
buxnasamfellu og brúna stutterma
kaðlapeysu yfir frá Michael Kors.
Florence Pugh sem leikur yngstu
systurina Amy var í svörtu pilsi og
peysu frá Marco de Vincenzo.
Myndin var frumsýnd á
nýlistasafninu í New York þann
7. desember en fer í almennar
sýningar í kvikmyndahúsum þar
ytra um jólin. Samkvæmt upp
lýsingum frá Kvikmyndir.is verða
Íslendingar að bíða til 24. janúar til
að sjá myndina.
Smekklegar
leikkonur
Marilyn Monroe söng um að
demantar væru bestu vinir stúlkna.
Hvaða jólagjöf skyldi það vera sem hittir konur í hjartastað? Jú, það eru demantar.
Demantar eru alltaf í tísku og passa
við öll tilefni lífsins, bæði hvunn
dags og spari. Þeir eru tímalaust
skart sem erfist til næstu kynslóða
og bæði fegurð þeirra og saga
undirstrika að demantar eru eilífir.
Þegar mönnum verður fóta
skortur á tungunni sjá demantar
um tjáninguna enda eru þeir
þaulreynd leið til tjáningar ástar
og aðdáunar, og ekkert segir „að
eilífu“ eins og demantur. Það er svo
engin fyrirstaða þótt kona eigi nú
þegar demantshring, hálsmen eða
eyrnalokka því konur geta aldrei
átt of marga demanta og mögu
leikarnir eru endalausir enda eru
engir tveir demantar nákvæmlega
eins og því mögnuð tilfinning að
bera demant sem enginn önnur á
eins. Demantar hæfa öllum aldri og
eru ógleymanleg jólagjöf handa ást
inni, mömmu, systur eða vinkonu;
þeir fara vel við allar húðgerðir og
húðliti. Sú stund þegar jólapakki
með demanti er opnaður gleymist
aldrei og minnir ætíð á þann sem
gaf hann og ástina sem bjó að baki.
Besti vinur
kvenfólksins
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R