Fréttablaðið - 19.12.2019, Qupperneq 56
Eðli málsins samkvæmt er kvikmyndagagnrýn-andinn alltaf bölvað fífl þar sem hann hrærist í heimi þar sem allt er afstætt. Gæði hugverka
verða aldrei metin með reglustik-
um, gráðubogum og öðrum sálar-
lausum mælitækjum þannig að rýn-
irinn engist eins og sturlaður maður
í guðlausum heimi þeirrar sérkenni-
legu þversagnar að hann hefur aldr-
ei rétt fyrir sér en hins vegar alltaf
rangt fyrir sér. Vefjist þetta fyrir
einhverjum er þeim hinum sömu
ráðlagt að gefa virkum í athuga-
semdum gaum þegar dómar um
nýjustu Star Wars-myndina birtast.
Starf gagnrýnandans er þó alltaf
sturlaðast þegar íslenskar bíó-
myndir eru annars vegar. Ef færri
en fjórum stjörnum er útdeilt er
það til marks um að rýnirinn sé
ryðgaður á sálinni, beiskur, bitur og
fatti ekki neitt. Sennilega er honum
í nöp við leikstjórann eða einhvern
leikarann.
Ekki tekur heldur betra við þegar
gagnrýnandinn verður fyrir því
óláni að hrífast af íslenskri kvik-
mynd og sáldrar yfir hana stjörnum
af sama ákafa og hann saltar fransk-
ar McCain-kartöflur.
Rangur misskilningur
Þegar k vikmyndagerðar fólkið
gleðst, væntanlega í þeirri frómu
trú að hrósið sé verðskuldað en
ekki kreist fram í meðvirkni, ganga
óstöðugir og virkir í alvisku af göfl-
unum og skrifa stjörnuregnið á
fámennið á Íslandi og ótta rýnisins
við að þurfa að sætta sig við blokk-
eringar á Facebook og líkamsárásir
á knæpum Reykjavíkurþorps.
Árið sem er að líða var því annus
horribilis fyrir kvikmyndagagn-
rýnanda Fréttablaðsins svo ekki
sé fastar að orði kveðið þar sem
það er vonlaust að halda kúlinu
þegar íslenskt kvikmyndagerðar-
fólk, konur fyrst og fremst að þessu
sinni, dæla hágæðamyndum í
kvikmyndahús eins og enginn sé
morgun dagurinn.
Án alls gríns og meðvirkni þá
standa þessar myndir ársins 2019
bara alveg undir sínum stjörnu-
himni og engin ástæða til þess að
leiðrétta bókhaldið við vörutaln-
ingu áramótanna.
Fullt hús af drama á Skaganum
Þegar rýnt er í stjörnukort ársins þá
skína leikstjórinn Silja Hauksdóttir
og fylgihnettir hennar skærast með
fullt hús af dramatík og hugvekjum
um lífið, tilveruna og þann f ljót-
andi kjarna sem svellur í brjóstum
hverrar manneskju með misjöfnum
afleiðingum.
Agnes Joy gat ekki fengið annað
en fimm stjörnur og ég tel mig ekki
þurfa að rökstyðja það með öðru
en að vitna í mína eigin niðurstöðu
sem birtist á þessari síðu í október:
„Agnes Joy er svo of boðslega góð
kvikmynd. Einföld og látlaus en
samt svo yfirþyrmandi víðfeðm og
djúp að mann skortir eiginlega orð.
Frábær.“ Auðvitað skortir mig samt
aldrei orð og þess vegna er líka bara
farsælla að lesa textann frekar en
stjörnurnar sem eru vitaskuld ekki
tommustokkur. Oftast segjum við
nefnilega miklu meira en stjörn-
urnar eins og í þessu tilfelli undir
Góðæri hins glataða gagnrýnanda
Bíóárið 2019 var öllum gott á Íslandi nema helst gagnrýnendum sem eru fangar fastir í þeirri þversögn að
stjörnufjöldi íslenskra mynda ræður því hvort þeir eru illa innrættar skepnur eða meðvirkir aumingjar.
fyrirsögninni Sálarháski hversdags-
leikans:
„Agnes Joy hverf ist fyrst og
fremst um þau óbærilegu ósköp
að vera manneskja. Þetta er ekki
aðeins saga persónanna þar sem í
myndinni koma saman ótal litlar,
sorglegar og fyndnar dæmisögur
um meðvirkni, sligandi stjórnsemi,
kvíða, traust, vantraust og nánast
fullkomlega vonlaust foreldrahlut-
verkið þar sem tilfinningarnar og
tilhneiging til ofverndunar snúast
sorglega oft upp í andhverfu sína.
Það er hægara sagt en gert að
koma öllum þessum tilfinninga-
flækjum til skila þannig að áhorf-
endur sökkvi ekki í hyldjúpt þung-
lyndi eða hreinlega drepist úr
leiðindum við að spegla sjálfa sig
og samferðafólk í persónum sem
eru einhvern veginn hver um sig
og í samskiptum óþolandi summa
okkar allra.“
Gagnkvæmt traust
Íslenska bíóárið 2012 hófst í febrúar
þegar Tryggð, ein besta mynd þessa
árs, læddi sér hógvær í kvikmynda-
hús á meðan saltsjokkeraður mann-
skapurinn ók sér enn í jólaspikinu á
hlaupabrettunum.
Ásthildur Kjartansdóttir gerði
Tryggð af látlausri natni upp úr
skáldsögunni Tryggðarpanti eftir
Auði Jónsdóttur þannig að niður-
staðan var fjórar stjörnur og: „Falleg
en átakanleg bíómynd sem á brýnt
erindi við íslenskan samtíma og
okkur öll. Mynd sem er ekki síður
mikilvægt að allir sjái en Lof mér að
falla. Við erum öll ein fjölskylda. Er
þetta eitthvað flókið?“
Þetta var síðan ítrekað með
hvatningu: „Tryggð er falleg, fanta-
vel leikin en átakanleg bíómynd
sem á brýnt erindi við íslenskan
samtíma og okkur öll. Drífa sig í
bíó!“ Pæling að eyða kannski minni
tíma og orku í að sálgreina gagn-
rýnandann og drífa sig bara í bíó.
Á mínum tuttugu árum í þessum
hrakningum hef ég ítrekað orðið
var við að lítið orsakasamhengi er
milli dóma og aðsóknar. Samt má
alveg stundum treysta okkur.
Spegilbrot sjálfsmynda
Kv ik my ndagerðarkonu r vor u
áberandi frekar til fjörsins í ár og
ég held að það sé ekkert á karlana
eða þeirra ágætu myndir hallað þótt
konunum sé að miklu leyti eignaður
heiðurinn af því hversu þétt, jafnt
og ánægjulega gott þetta bíóár var
í raun.
Við þurfum ekkert að vera ýmist
frá Mars eða Venus til þess að skynja
frekar en sjá að konur gera öðruvísi
bíómyndir og það er svo gott þegar
eitthvað öðruvísi kemur í bíó.
Rúnar Rúnarsson verður að vísu
seint sakaður um að gera venjulegar
myndir og hann kláraði þetta góð-
æri með undarlega heillandi furðu-
verki. Upplifun þegar hann gefur
„fullkominn skít í hefðbundinn
frásagnarhátt og ævafornar reglur
Aristótelesar í þeim efnum með
djarfri tilraun sem gerir talsverðar
kröfur til áhorfenda sem uppskera
ríkulega ef þeir nenna að leggja sitt
af mörkum til verksins.“
Fjórar stjörnur fóru á þessa
mósaík mynd í 58 spegilbrotum
sjálfsmynda okkar þar sem alls
konar fólk, á öllum aldri, úr ýmsum
áttum, eitthvað um 350 manns,
myndaði aðalpersónu myndarinn-
ar, samfélagið sjálft.
Þegar maður á lífsblóm …
Hlynur Pálmason fór ekki heldur
troðnar slóðir með áhorfendur í
Hvítum, hvítum degi og gerði einn-
ig kröfur til þeirra þótt haldreipin
væru kunnuglegri í þó að vissu leyti
draumkenndri martröð hverfandi
staðalmyndar hins alíslenska karl-
manns. Soldið eitraður svona, en
vel meinandi. Ingvar E. Sigurðsson
vinnur enn einn leiksigurinn sem
bergmál vonlausa frumkarlmanns-
ins sem kenndi sig við Sumarhús.
Hvítur, hvítur dagur er stemn-
ingsmynd sem nagar sig hægt og
bítandi en af sívaxandi þunga djúpt
í vitund áhorfenda. Hún er dálítið
bara eins og lífið sjálft. Ljót, falleg,
átakanleg og á köf lum fyndin en
þyngstur er slagkrafturinn í dásam-
legum samleik Ingvars Sigurðs-
sonar og hinnar ungu Ídu Mekkínar
Hlynsdóttur. Fjórar. En ekki hvað?
Góðir Framsóknarmenn?
Grímur Hákonarson er leikstjóri
með stíl og í Héraðinu brá hann
skemmtilega á leik og krækti í enn
eina fjarkakippuna með lítilli sögu
sem er lyginni líkust en fer um leið
sorglega nærri kunnuglegum, nöpr-
um, íslenskum raunveruleika og er
þannig helvíti hressileg hugvekja í
öllum sínum einfaldleika.
Arndís Hrönn Egilsdóttir er
prímusmótorinn sem knýr þessa
baráttusögu sterkrar bóndakonu
við ofuref li kaupfélagsveldisins
áfram af ótrúlegum krafti og
áreynslulausum stórleik þannig að
lúmskt fyndin tragikómedía úr al-
íslenskum raunveruleika springur
út í dæmisögu sem á við alls staðar
á öllum tímum.
toti@frettabladid.is
1 9 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R42 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ