Fréttablaðið - 21.12.2019, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 21.12.2019, Blaðsíða 8
Stafafuran er sögð vinsælasta íslenska jólatréð, hún bæði ilmar mjög vel og heldur vel barrinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ UMHVERFISMÁL Búast má við því að um tíu þúsund íslensk jólatré verði seld fyrir jólin. Brynjólfur Jónsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfé­ lags Íslands, segir að salan hafi verið svipuð síðustu fimm ár. Brynjólfur bendir á að íslensku trén séu umhverfisvænasti kostur­ inn en þrátt fyrir aukna áherslu á umhverfismál sjái þess ekki enn mikinn stað í aukinni sölu. Fyrir hvert tré sem er höggvið til sölu eru 40 til 50 sett niður í staðinn. „Fólk er kannski hægt og bítandi orðið meðvitaðra um að plasttrén eru ekki umhverfisvæn. Þau eru f lutt yfir hálfan hnöttinn, oftast frá Kína, þannig að kolefnissporið er margfalt meira en hjá íslensku trjánum,“ segir Brynjólfur. Þá sé plastið sjálft auðvitað óum­ hverfisvænt og telur Brynjólfur að það muni koma að því að fólk hætti að nota plasttré. Þó sé sjálfsagt að nýta áfram þau plasttré sem til séu eins lengi og hægt er. „En það er ekki mjög skynsamleg ráðstöfun til framtíðar að kaupa sér plasttré. Það eru algjörir umhverfis­ sóðar sem gera það.“ Kannanir sem MMR hefur fram­ kvæmt undanfarin ár sýna að rúm­ lega helmingur landsmanna notar gervitré á jólunum. Tæpur þriðj­ ungur hefur lifandi tré en tæp 14 prósent hafa ekki jólatré. Brynjólfur segir að fyrir utan íslensku trén séu seld á bilinu 20 til 30 þúsund inn­ f lutt tré sem komi fyrst og fremst frá Danmörku. „Við fundum fyrir töluverðri aukningu eftir hrun í sölu íslenskra trjáa. Þá kom fólk í meiri mæli út í skógana til skógræktarfélaganna en það hefur aðeins slaknað á því aftur. Það myndast ákveðnar hefðir í kringum þetta og þeir sem einu sinni hafa farið með fjölskylduna út í skóglendi koma yfirleitt aftur.“ Um tuttugu skógræktarfélög um allt land taka á móti fólki og bjóða upp á íslensk jólatré. Mörg þeirra munu hafa opið um helgina en hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðunni skog.is/jolatrjaa­ vefurinn. Brynjólfur segir að stafafuran sé vinsælasta íslenska jólatréð. „Hún er þeim eiginleikum gædd að hún bæði ilmar vel og heldur barrinu mjög vel. Hún getur staðið fram að páskum.“ Í gamla daga hafi rauðgrenið verið aðal jólatréð. „Það er frekar lítið af því núorðið en það hefur sinn sjarma. Lyktin er mjög góð og svo er formið þetta klassíska sem maður hefur kannski í huga þegar hugsað er um jólatré. Mér er sagt að þeir sem halda alvöru jól í Dan­ mörku og Noregi hafi rauðgreni.“ Það er mjög gott hljóð í skóg­ ræktar fólki og mikill hugur í því að reyna að taka þátt í þessum verk­ efnum í loftslagsmálum og gera sig gildandi þar. „Fyrir mörg skógræktarfélög er jólatréssalan helsta fjáröf lunar­ leiðin. Fólk getur þá stutt sitt heima­ félag og nærumhverfi.“ Allir séu velkomnir í útivistar­ skóga skógræktarfélaganna allt árið um kring en þeir hafi verið að mynda skemmtilega umgjörð í kringum þéttbýlið alls staðar í kringum landið. Brynjólfur segir skógana mikið nýtta og til að mynda komi á ári hverju rúmlega 600 þúsund manns í Heiðmörkina. sighvatur@frettabladid.is Umverfisvænast að hafa íslensk jólatré Sala á íslenskum jólatrjám hefur haldist svipuð undanfarin ár þrátt fyrir aukna umræðu um umhverfismál. Framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands segir það ekki skynsamlegt að kaupa plasttré. Um tíu þúsund íslensk jólatré verða seld fyrir jólin. En það er ekki mjög skynsamleg ráð- stöfun til framtíðar að kaupa sér plasttré. Brynjólfur Jónsson, framkvæmda- stjóri Skógræktarfélags Íslands JÓLIN ERU Á HAFNARTORGI Kíktu á glæsilegt úrval í verslunum okkar og kláraðu allt fyrir jólin. Gjaldfrjáls stæði í bílakjallaranum alla helgina. Opið öll kvöld til jóla til 22 Þorláksmessukvöld til 23 Aðfangadag til 13 er opinn 21.-23. desember frá 12 til 23.30. 2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.