Fréttablaðið - 21.12.2019, Blaðsíða 60
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Jóna Kr. Eiríksdóttir
áður til heimilis að Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
andaðist á Sólvangi þann 16. desember.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
mánudaginn 30. desember kl. 13.00.
Margrét Pétursdóttir Guðmundur Frímannsson
Sigrún Pétursdóttir Jón Sveinsson
Daníel Pétursson Oddgerður Oddgeirsdóttir
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir hlýhuginn,
vináttuna og stuðninginn vegna
andláts og útfarar okkar ástkæra
eiginmanns, föður, tengdaföður og afa,
Einars Ármannssonar
Básahrauni 3, Þorlákshöfn.
Sérstakar þakkir færum við
Körfuknattleiksdeild Þórs Þorlákshafnar, þið eruð einstök.
Ásdís Garðarsdóttir
Una Björg Einarsdóttir Hallgrímur Stefánsson
Ármann Einarsson Þórhalla Sólveig Jónsdóttir
Emil Karel Einarsson
og barnabörn.
Ástkæri maðurinn minn,
pabbi, tengdapabbi, afi og langafi,
Þormóður Helgason
frá Kristnesi í Eyjafjarðarsveit,
lést 1. desember sl. á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sóltúns.
Rannveig H. Karlsdóttir
Þorgerður Þormóðsdóttir Guðmundur Ó. Ingvarsson
Karl Þormóðsson Irina Sukhanova
Halldóra Þormóðsdóttir Guðbjartur Halldórsson
Þormóður Þormóðsson Kolbrún Kristleifsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýju vegna andláts
og útfarar
Ólafs Einars Magnússonar
Safamýri 45.
Hlíf Kristjánsdóttir
Sylvía Bryndís Ólafsdóttir
Jón Þór Ólafsson Janis Ramos
Anna Kristín Sigurbjörnsdóttir Reynir Áslaugsson
Bjarni Þór Sigurbjörnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag?
Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is.
Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur
í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð
erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti.
Katla Þorsteinsdóttir,
lögfræðingur
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Örlygur notaði Hraundranga sem vörumerki í útgáfunni sinni enda voru markmiðin jafnan háleit. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Örlygur Hálfdánarson segist hafa verið sílesandi framan af ævinni en gera minna af því í dag, þó talsvert sé af bókum í kringum hann.
Hann stendur á níræðu en kveðst ekki
vera maður til að halda upp á afmælið,
þó líði honum ágætlega. Heyrnin er góð,
því tek ég eftir er við spjöllum saman í
síma.
Hann er sáttur við ævistarfið. „Ég
var bókaútgefandi, Örn og Örlygur hét
fyrirtækið og var nokkuð stórt á sínum
tíma,“ segir hann. Kveðst hafa stofnað
útgáfuna með Erni Marinóssyni, svila
sínum, og rekið hana í hátt í þrjá áratugi.
Hann vill ekki gera upp á milli bókanna
sem hann gaf út, spurningu um hvaða
ritverki hann sé þar stoltastur af svarar
hann: „Ja, þetta var allt nokkuð gott.“
Getur þess að Vigdís forseti hafi haft
samband við hann þegar þeir kump
ánar Ronald Regan og Míkhaíl Gorb
atsjov voru staddir hér á landi árið 1986
og pantað hjá honum bækurnar Dýra
ríki Íslands eftir Benedikt Gröndal, til
að gefa þeim. „Ég fór með þær á forseta
skrifstofuna.“
Barnsskónum sleit Örlygur í Viðey,
þar til hann var á tólfta ári. „Viðey var
einu sinni mikill athafnastaður, þá var
ég barn að aldri og man ekki þá tíð að
neinu ráði. En ég hef sterkar taugar
til hennar og hef kynnt mér sögu henn
ar, hef oft sagt hana þegar ég hef farið
þangað með fólki. Ég var í barnaskóla í
eyjunni en flutti upp á land þegar hætt
var að kenna þar vorið 1941. Það var
allt í lagi fyrir mína parta. Við f luttum
vestur á Seltjarnarnes, þar var frjálslegt
umhverfi. Ég fór í Mýrarhúsaskóla, Við
eyjarskóli var útibú frá honum og skóla
stjóri Mýrarhúsaskóla hafði komið út
í Viðey að fylgjast með og prófa okkur
á vorin.“
Örlygur kveðst hafa verið lánsamur í
einkalífinu, hann hafi eignast fjóra syni
en misst einn þeirra, Matthías árið 2014.
„Hinir heita Þorgeir, Hálfdan og Arnþór.
Konan mín er Þóra Þorgeirsdóttir úr
Gufunesi. Við kynntumst í Viðey þegar
við vorum börn, hún átti heima þar þá.“
gun@frettabladid.is
Þetta var allt nokkuð gott
Bókaútgefandinn Örlygur Hálfdánarson er níræður. Hann gaf út vegleg rit og vönduð
enda valdi Vigdís forseti bækur hjá honum handa leiðtogunum Gorbatsjov og Regan.
Viðey var einu sinni
mikill athafnastaður,
þá var ég barn að aldri og man
ekki þá tíð að neinu ráði. En ég
hef sterkar taugar til hennar og
hef kynnt mér sögu hennar.
Meðal verka sem Örlygur gaf út:
• Landið þitt Ísland - 6 bindi
• Íslandshandbókin - 2 bindi
• Reykjavík: sögustaður við Sund+
- 4 bindi
• Stóra ensk-íslenska orðabókin
• Ensk-íslensk skólaorðabók
• Íslenska alfræðiorðabókin
- 3 bindi
• Skútuöldin - 5 bindi
• Togaraöldin - 2 bindi
• Landið og Landnáma - 2 bindi
• Úr torfbæjum inn í tækniöld
• Sjósókn og sjávarfang
• Alfræði unga fólksins
• Íslandsleiðangur Stanleys
• Fornir sögustaðir
• Ferðabók Eggerts og Bjarna
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð
við andlát og útför okkar ástkæru
Gyðu Hjaltalín Jónsdóttur
hjúkrunarheimilinu Eir.
Kærar þakkir fær starfsfólk á
hjúkrunarheimilinu Eir fyrir einlæga
umhyggju og aðstoð.
Sendum vinum og ættingjum bestu óskir um gleðileg jól
og farsæld á komandi ári.
Kristín Ólafsdóttir Magnús Halldórsson
Jón Hjaltalín Ólafsson
2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT