Fréttablaðið - 21.12.2019, Blaðsíða 40
Heilbrigðisfulltrúi á sviði matvæla og hollustuhátta
Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis óskar eftir að ráða starfsmann
til að sinna verkefnum á sviði matvæla- og hollustuhátta. Leitað er að áhugasömum
og drífandi einstaklingi sem hefur áhuga á þjónustu við nærsamfélagið. Viðkomandi
þarf að hafa eða vera tilbúin að afla sér réttinda sem heilbrigðisfulltrúi.
Helstu verkefni:
• Eftirlit, sýnatökur og skýrslugerð.
• Móttaka erinda og undirbúningur
afgreiðslu.
• Móttaka ábendinga og samskipti
við almenning.
• Fræðsla og upplýsingamiðlun við
fyrirtæki á sviði heilbrigðiseftirlits.
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði
matvælafræði, heilbrigðisvísinda,
líffræði eða önnur sambærileg
menntun.
• Reynsla af sambærilegum
verkefnum er kostur.
• Góðir samskiptahæfleikar og
jákvætt viðhorf.
• Frumkvæði og metnaður.
Heilbrigðiseftirlitið starfar
samkvæmt lögum um matvæli
og lögum um hollustuhætti og
mengunarvarnir. Það hefur
m.a. eftirlit með framleiðslu,
dreifingu og sölu matvæla, og
sinnir almennu hollustuhátta-
og umhverfiseftirliti.
Umsóknarfrestur og upplýsingar:
Til og með 6. janúar 2020. Berist til
hordur@heilbrigdiseftirlit.is
sem jafnframt veitir upplýsingar um
starfið.
Jól 2019
Þyrluflugmaður
Nánari upplýsingar:
Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is)
Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is)
Umsóknarfrestur: 6. janúar 2020
Umsókn óskast fyllt út á: www.intellecta.is.
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Umsækjendur skulu einnig skila inn sakavottorði, afriti af
vegabréfi, afriti af ökuskírteini, afriti af flugskírteini og gildu læknisvottorði, ásamt afriti af síðustu tveimur blaðsíðum í flugdagbók. Fylgiskjölum skal skilað rafrænt með
umsókn eða útprentuðum á skrifstofu Intellecta, Síðumúla 5, 108 Reykjavík, í umslagi merktu viðeigandi starfi.
Landhelgisgæsla Íslands auglýsir lausa til umsóknar stöðu flugmanns á þyrlu. Landhelgisgæslan er með
í rekstri og viðhaldi Airbus AS332 & H225 þyrlur og DeHavilland Dash 8 300 flugvél. Starfsemin fer að
mestu fram á Íslandi en einnig að hluta til erlendis.
• Gilt EASA Part FCL atvinnuflugmannsskírteini á þyrlu með blindflugsáritun (blindflugsáritun verður
að vera í gildi út maí 2020)
• Bóklegu ATPL námi lokið. Tegundaréttindi á Eurocopter/Airbus þyrlur kostur
• Bóklegu námskeiði í áhafnarsamstarfi (MCC) lokið
• Afburða samskiptahæfni
• Góð íslensku- og enskukunnátta, hæfni til tjáningar í ræðu og riti
• Mikið álags- og streituþol
• Áhugi á starfsumhverfi og verkefnum Landhelgisgæslunnar
• Stúdentspróf skilyrði. Staðfesting á sambærilegri menntun þarf að liggja fyrir frá mennta- og
menningarmálaráðuneytinu
Landhelgisgæsla Íslands er löggæslu-
stofnun sem samkvæmt lögum er falið að
gæta ytri landamæra og standa vörð um
fullveldisrétt Íslands á hafsvæðinu kringum
landið.
Landhelgisgæslan sinnir meðal annars
löggæslu, eftirliti, leit og björgun
á hafi auk þess að annast daglega
framkvæmd öryggis- og varnartengdra
verkefna hér á landi samanber heimild í
varnarmálalögum.
Hjá Landhelgisgæslunni starfar tæplega
200 manna samhentur hópur sem hefur
að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks.
Gildi Landhelgisgæslunnar eru:
Öryggi – Þjónusta - Fagmennska
Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu
Íslands má finna á: www.lhg.is
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Landhelgisgæslan áskilur sér rétt til að láta umsóknir gilda í sex
mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Félags íslenskra atvinnuflugmanna vegna starfa
flugmanna hjá Landhelgisgæslu Íslands. Um er að ræða fullt starf. Allir, sem réttindi og áhuga hafa, eru hvattir til að sækja um starfið.
2 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R