Fréttablaðið - 21.12.2019, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 21.12.2019, Blaðsíða 58
Bumbubaninn 1991 Í upphafi tíunda áratugar- ins ætlaði landinn að koma sér í form og ýmis þrek- tæki urðu vinsæl. Vinsæl- astur var hinn svokallaði bumbu bani, Gym Trim, sem seldur var í Trimm- búðinni í Faxafeni. Til voru tvær útgáfur af ban- anum, önnur sem leit út eins og geimskip en hin ílöng sem einnig var hægt að spenna eins og langboga. Bæði tækin voru stór- hættuleg og gátu skotist af miklu af li fram ef sveittir lófar misstu gripið. Furby 1998 Þegar bandaríski leikfangafram- leiðandinn Tiger Electronics s e t t i a r m a l au s u l o ð - kvikindin Furby á markað seldust þau í milljónatuga vís um heim allan. Furby talaði sitt eigið tungu- mál en gat einnig lært af börnunum. Foreldrar sáu f ljótlega eftir því að hafa valið þessa gjöf fyrir börnin því að Furby gjammaði allan sólar- hringinn og verst var ef hann týndist á heimilinu. Furby er enn þá seldur í ýmsum útgáfum, bæði með tali og án, og hafa vinsældir hans rokkað mikið á 20 árum. Ávaxta- og grænmetis- pressa 2006 Þetta ár valdi Rannsók nasetur verslunarinnar jóla- gjöf ársins í fyrsta sinn og fyrir valinu va rð áva x t a- og g rænmet ispressa . Valið var úr 50 til- lögum og pressan Fondúsett 1972 Fyrsta jólagjafaæðið átti sér stað árið 1972 en þá rauk landinn upp til handa og fóta og keypti sviss- neskt fondúsett í massavís. Á þess- um árum voru jólagjafir almennt langtum hófstilltari en í dag. Bækur, ilmvötn og föt voru algengustu jóla- gjafirnar en ekki græjur. Fondú var tilvalin gjöf til að hrista fjölskylduna saman enda tók hver máltíð, þar sem kjöt var steikt eða ostar bræddir yfir spritt- loga, langan tíma. Kaupmenn hafa reynt að gera æði úr hinu svissneska raclette, sem er svipað og fondú, en með minni árangri. Fótanuddtæki 1982 Ekki er hægt að skrifa svona umfjöllun án þess að minnast á fótanuddtækið sem allir þurftu að eignast jólin 1982. Æði rann á land- ann og alls seldust u m 14 þú su nd tæki frá danska framleiðandanum Clairol, en það var Radíóbúðin í Skipholti sem hafði umboðið. Not k u nin á þessum tækjum var ekki beinlín- is í samræmi við eftirspurnina, og enduðu þau í langf lestum tilfellum inni í geymslu skömmu eftir hátíðarnar. Síðar meir fengu þau hins vegar sess sem költvara og ruku upp í verði. Til að mynda tók Toyota-umboðið tækin upp í bílaviðskipti árið 1995 og seldi áfram. Tækin voru þá vel með farin og lítið notuð. Litli ljósálfurinn 1983 Strax árið eftir kom næsta æði, Litli ljósálfurinn. Það var lítill lampi sem festur var á bækur til þess að ha f a með upp í r ú m ið eða í ferðalög. Ljósálfurinn var seldur í pakkn- ingum sem voru ei n s í lag i nu og bók og með fylgdi geymslu- taska. Var hann merktur enska heitinu The Itty Bitty Booklight og er hægt að fá ágætisverð fyrir hann á eBay. Trivial Pursuit 1985 Eitt best heppnaða jólagjafaæði landans var kanadíska spurninga- spilið Trivial Pursuit. Spilið var mjög snemma þýtt á íslensku, fyrr en á til dæmis dönsku og norsku, en margir Íslendingar höfðu þegar keypt sér ensku útgáfuna á ferða- lögum. Enn í dag þekkja allir Trivial Pursuit, og eiga sér sinn uppáhalds- lit eða spurningaflokka, og Íslend- i ng a r fe ng u viðurkenningu frá framleið- andanum árið 1998 fyrir f lest seld spil miðað við höfðatölu. Spilið var þá til á 33 prósentum hei m i l a en í öðru sæti voru Bandaríkin með 17 prósent. Engu að síður hefur spilið ekki komið út á íslensku í rúman áratug því að þá keypti leikfangarisinn Hasbro réttindin og taldi það ekki svara kostnaði. valin af því að hún félli vel að tíðar- andanum, höfðaði til breiðs hóps og seldist vel. En á þessum árum var mikil áhersla á heilbrigðan lífs- stíl og hið svokallaða boozt-æði að hefjast. Keppnin var hörð en í öðru sæti var tónlistargræjan iPod frá Apple, sem Árni Johnsen snaraði upp á íslensku sem tónhlöðu. GPS-staðsetningartæki/ Ryksuguvélmenni 2007 Á ári ofneyslunnar og hnignunar vestræns siðferðis er við hæfi að velja tvær gjafir sem settu mark sitt á jólavertíðina. Rannsóknasetrið valdi GPS-staðsetningartæki sem jólagjöf ársins en það var gripur sem sameinaði landakort og áttavita, og hentaði bæði til ferðalaga upp á firnindi sem og í morgunskokkið. Jólagjöfin sem var þó jafnvel meira áberandi þetta árið var ryk- suguvélmennið frá iRobot. Mörgum þótti það bara meira vesen að nota vélmennið en hefðbundna ryksugu en þetta var f lott og dýrt og smell- passaði við flottræfilshátt þessa árs. Spjaldtölva/Kerti og spil 2011 Á eftirhrunsárunum var ekki mikil stemning fyrir stórum og dýrum jólagjöfum enda landinn illa brenndur og gengið óhagstætt. Fyrstu árin eftir hrun valdi Rann- sóknasetrið til að mynda jákvæða upplifun og lopapeysu sem gjöf ársins. Árið 2011 var Mammon búinn að fá nóg af vosbúðinni og ákveðið var að velja hvorki meira né minna en spjaldtölvu sem jólagjöf ársins. En hann var of f ljótur á sér og fékk hol- skeflu af gagnrýni yfir sig. Bent var á að sambýliskona eiganda Epli. is væri í dómnefndinni og einnig þótti landsmönnum fráleitt að velja svo dýra gjöf í ljósi stöðu heimilanna. Kerti og spil voru meira í ætt við greiðslugetu þeirra. Þurfti Rann- sóknasetrið að biðjast afsökunar á þessari framkomu. Sous vide 2016 Sous vide aðferðin er ekki ný af nálinni. Fólk hefur pakkað inn kjöti og eldað á lágum hita síðan á átjándu öld. En árið 2016 var sous vide skyndilega orðið lífsnauðsyn- legt ef marka má hegðun íslenskra neytenda. Líkt og fótanuddtækin forðum hefur notkunin á græjunum verið mismikil en ólíkt þeim tíma eru þeir margir sem neita að horfast í augu við þetta og rífa græjuna fram af og til til þess að réttlæta tilvist hennar. Eftirminnilegar jólagjafir Neysluhyggjan ruddi sér til rúms með tilkomu Reagans og Thatc- her á sjónarsviðið fyrir tæpum 40 árum og tekur iðulega á sig furðulegar og, eftir á að hyggja, bráðfyndnar myndir. Þetta á ekki síst við á jólunum, enda eru þau vertíð kaupmanna. 2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 H E L G - I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.